Læknaneminn - 01.04.2022, Page 63
61 Smokkaherferð Ástráðs 2022
stutta stund og svara spurningum sem þau
vildu svara af listanum. Einnig var í boði að
handleika smokk fyrir framan myndavél.
Framkvæmd
Innan Ástráðsnefndar voru níu ein
staklingar sem komu að verkefninu með
einum eða öðrum hætti. Hér til hliðar má
sjá þátttakendur frá Ástráði. Eftir marga
fundi á vormánuðum ársins 2022 var búið
að fá aðgang að stúdíói í Grafarvogi. Þá næst
kom að því að hafa samband við mögulega
þátt takendur. Send voru skilaboð á um
150 einstaklinga. Flestir svöruðu ekki.
Sumir afþökkuðu þátttöku. Um tíma leit
út fyrir að fólk hefði almennt ekki áhuga
á að taka þátt í verkefninu og reyndist það
skipuleggjendum innan Ástráðs erfitt. Það
breyttist allt einn daginn tveimur vikum
fyrir upptökur, þá jókst skyndilega fjöldi
einstaklinga sem höfðu áhuga á þátttöku.
Í lokin vorum við komin með tæplega
30 einstaklinga sem voru tilbúnir í að
taka þátt. Hér til hliðar má sjá lista yfir
þátttakendur. Förinni var fyrst heitið í
Stjórnarráðið til að taka upp svör Katrínar
Jakobsdóttur, forsætisráðherra við
spurningum herferðarinnar. Í kjölfarið
voru tveir tökudagar í stúdíóinu, 12. og 13.
apríl. Kristín Waage hjá Waage sound sá um
tæknileg atriði og fulltrúar í Ástráðsnefnd
sáu um að þátttakendur mættu á réttum
tíma, fóru fyrir hvaða spurningum þeir
myndu svara og sáu um léttar veitingar.
Gengu tökudagarnir mjög vel og eftir þá var
komið tæplega 8 klukkustunda efni sem er
bæði fyndið og fróðlegt.
Eftirvinnsla
Næstu vikurnar tók eftirvinnslan við en
það gekk hægt vegna lokaprófa hjá öllum
þátttakendum í Ástráðsnefnd. Einnig var
greinilegt að klippivinna og skilningur á
henni er ekki kennd í læknadeild og var það
okkur fjötur um fót. Þessi vinna teygðist
því í kjölfarið fram á sumarið en þá kom
upp annað vandamál hversu duglegir
læknanemar eru að vinna á sumrin og ekki
er endilega mikil orka í að hafa skoðun á
fagurfræðilegum málum í lok vinnudags.
Eftir talsverð tölvupóstsamskipti, sím töl
og staðfundi þá eru komin 14 stutt mynd
bönd þar sem þjóðþekktir ein stak lingar
svara þeim spurningunum sem fylgja með.
Þetta eru stutt myndbönd sem munu fara á
sam félags miðlana TikTok og Instagram. Eitt
lengra myndband varð svo til í lok sumars
og mun því vera dreift á fréttamiðla.
Framhald
Þegar þessi texti er ritaður erum við að fara
að setja myndböndin á samfélagsmiðlana.
Mikill hraði er í samfélaginu og þá sérstak
lega á samfélagsmiðlum. Því gætu mynd
böndin farið fram hjá mörgum sem myndu
hafa gagn af þeim. Möguleiki er á að þau
muni hafa þveröfug áhrif á einhverja en
þrátt fyrir það er hugsunin aðeins sú að
vekja athygli á smokknum. Skólarnir eru
að byrja enn eina ferðina og von er um
að smokkurinn verði settur í aðeins af
slappaðra samhengi ef fólk getur að minnsta
kosti rætt um hann.
Heimildir:
1. World Health Organization. [Sótt þann
21. nóvemerber]. Sexually transmitted
infections (STIs). Aðgengilegt á: https://
www.who.int/en/newsroom/fact
sheets/detail/sexuallytransmitted
infections(stis)
2. European Center for Disease Prevention
and Control. Chlamydia infection
Annual Epidemiological Report for 2018.
Stockholm: ECDC; 2020.
Fulltrúar Ástráðs sem tóku þátt í
verkefni
Yfirumsjón
• Snædís Inga Rúnarsdóttir
• Sigríður Óladóttir
Ástráðsfulltrúar
• Elísabet Mjöll Guðjónsdóttir
• Hera Björg Jörgensdóttir
• Hugrún Lilja Ragnarsdóttir
• Lilja Ósk Atladóttir
• Ólafur Hreiðar Ólafsson (skólaárið
2020–2021)
• Sunneva Roinesdóttir
• Unnur Lára Hjálmarsdóttir
Listi yfir þátttakendur
• Atli Óskar Fjalarsson leikari
• Álfgrímur Aðalsteinsson áhrifavaldur
• Bergsveinn Ólafsson áhrifavaldur og
sálfræðingur
• Birta Abiba fyrirsæta
• Erlingur Sigvaldason háskólanemi og
stjórnmálamaður
• Erpur Eyvindarson rappari
• Gógó Starr dragdrottning
• Guðmundur Felixson leikari og grínisti
• Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir læknir
og áhrifavaldur
• Ingunn Lára Kristjánsdóttir fréttakona
• Isabel Alejandra Díaz, forseti Stúdentaráðs
Háskóla Íslands
• Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra
• Lenya Rún Taha Karim, alþingiskona
• Mars M. Proppé, aktívísti og
stjórnarmeðlimur í Samtökunum 78
• Pálmi Freyr Hauksson, leikari og grínisti
• Ragna Sigurðardóttir læknir og
stjórnmálakona
• Sigríður Dögg, kynfræðingur
• Sólborg Guðbrandsdóttir, áhrifavaldur
og rithöfundur
• Sylvía Hall háskólanemi
• Sigríður Klingenberg, spákona
• Stefán Ingvar Vigfússon, grínisti
• Tara Mobee, söngkona
• Vigdís Hafliðadóttir, söngkona og grínisti
• Vilhelm Neto, leikari
• Þorbjörg Þorvaldsdóttir, grunnskóla
kennari og stjórnarmeðlimur
í Samtökunum 78
• Þorsteinn V. Einarsson, áhrifavaldur
• Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir