Læknaneminn - 01.04.2022, Page 87
85 Valtímabil skólaárið 2021–2022
Hvað gerðir þú?
Byrjaði gagnasöfnun fyrir mastersverkefni sem ég er að gera út frá
BS rannsókninni minni.
Hvernig komstu því í kring?
Var nú þegar skráð í mastersnám með leiðbeinanda og var búin að
sækja um leyfi og slíkt löngu áður, svo ég sótti í rauninni bara um að
fá að vinna að þessu verkefni á valtímabilinu sem var ekkert mál.
Hvað fannst þér þú læra af þessu?
Í rauninni bara gott að fá tíma til að vinna að þessari rannsókn sem
ég hef aldrei náð að vinna neitt markvisst að nema bara með skóla
og vinnu. Flestir eru komnir með miklu meiri klíníska reynslu á
6. ári m.v. í BS verkefninu á 3.ári sem auðveldar gagnasöfnun og
rannsóknir talsvert.
Myndir þú mæla með þessu?
Þetta er gott á ferilskrána og frekar rólegir og kósý dagar, bara að
fletta upp upplýsingum og vinna rannsóknarvinnu, svo já algjörlega
ef fólk hefur áhuga á rannsóknum og/eða vill krydda uppá CVið.
Líka auðvelt að ráða sig í vinnu meðfram, þar sem vinnutíminn er
frjálslegur.
Hvað hefðir þú gert öðruvísi?
Í rauninni ekkert, var barnshafandi á 1.trimesteri með tilheyrandi
ógleði/uppköstum, svo þetta var mjög fínt valtímabil upp á það, að
geta stjórnað sínum tíma svolítið sjálfur.
Stjörnur fyrir námslegt gildi
Eldur fyrir skemmtanagildi
Hvað gerðir þú?
Ég tók netáfanga sem heitir Personalised Medicine from a Nordic
Perspective og fékk afganginn af einingunum metinn með
greinaskrifum.
Hvernig komstu því í kring?
Ég skráði mig á Coursera en sú síða heldur vel utan um ýmsa
áhugaverða áfanga.
Hvað fannst þér þú læra af þessu?
Mér fannst ég læra um sniðlækningar á mínum eigin hraða en
það er einmitt stækkandi fag innan læknisfræðinnar. Áfanginn
inniheldur mjög áhugaverða fyrirlestra um allt frá tölfræðilegum
hluta sniðlækninga til siðfræðinnar í kringum þær. Mér fannst ég
líka almennt læra að netáfangar eru gagnlegir ef maður vill skerpa á
einhverri vitneskju.
Myndir þú mæla með þessu?
Já, mér fannst þægilegt að hafa stjórn á hvernig ég háttaði
valtímabilinu mínu þar sem hægt er að fara í gegnum netáfanga
á sínum hraða og velja nákvæmlega hvaða tíma dags maður vill
verja í þá. Ég mæli með þessari leið ef löngun er á að komast til
dæmis erlendis á valtímabilinu en ekki er möguleiki á að fara í neitt
sérstakt verknám erlendis.
Hvað hefðir þú gert öðruvísi?
Ekkert sérstakt kemur til hugar. Þetta hentaði mér mjög vel á
valtímabilinu.
Stjörnur fyrir námslegt gildi
️
Eldur fyrir skemmtanagildi
Rakel Hekla Sigurðardóttir Sigríður Óladóttir