Læknaneminn - 01.04.2022, Síða 97
95 Stjörnuspeki Læknanemans
Vog: 23. september –23. október
Lofttákn
Elsku besta Vog. Það er ekki heimsendir þó þú lendir ekki með
öðrum læknanema á teymi, þú verður að læra að vera ein. Ég veit
þú vildir að þú hefðir getað fengið laun fyrir allan tímann sem þú
eyddir í að finna réttan lit af Littmann stethoscope, þó þú hafir
svo bara endað á að kaupa þér svarta. Þú þolir ekki átök og forðast
í lengstu lög að lenda á milli tveggja sem deila. Þú sérð jú allar
hliðar en það er einmitt frábær hæfileiki í þessu starfi. Í þannig
aðstæðum gengur ekki að endurtaka bara einhverjar línur úr
‘Scrubs’. Þar sem þú átt ótrúlega erfitt með að taka ákvarðanir þá ert
þú nú þegar komin með magasár yfir öllum ákvörðunum sem bíða
þín á starfsferlinum. Þú getur ekki sent alla á sjúkrahótelið þegar
kemur að útskrift. Þú munt aldrei koma að kexskúffunum auðum á
fimmtudögum í mars.
Bogmaður: 22. nóvember–21. desember
Eldtákn
Elsku sæti bogmaðurinn minn. Þú talar hátt, en hvernig ættirðu
annars að geta talað lágt þar sem allar þínar hugsanir og skoðanir
byggjast á tilfinningum? Enginn annar en þú getur talað á svo
ástríðufullan hátt um réttinn til staðvaktafrís. Þú ert alltaf að reyna
að bæta þig en slakaðu samt aðeins á, það þarf ekki alltaf að gera
endaþarmsskoðun. Þú ert svo dásamlega hreinskilinn en mundu
samt að hreinskilni án tilgangs getur komið fram sem grimmd.
Þú færð alla þína útrás í kennslukönnun Háskóla Íslands þar sem
þú lætur gamminn geisa. Fyrir nýjan einstakling í hópnum ert þú
manneskjan til að ræða við þar sem þú ert svo vinalegur. Þú munt
sjá útbrot í formi stjörnumerkis framtíðar makans þíns í verknámi á
heilsugæslu.
Vatnsberi: 20. janúar–18. febrúar
Lofttákn
Vinalegi vatnsberinn minn, þú hefur tröllatrú á gagnsemi
raðgreininga erfðamengis í stað sögu og skoðunar. En í þau skipti
sem þú hefur tekið sögu og skoðun þá hefur þú alltaf sett algjöra
sebrahesta efst á mismunagreiningalistann og verður hissa þegar
hinir á teyminu eru ósammála. Þú sérð beint í gegnum það þegar
sérfræðingurinn verður pirraður og fyrir vonbrigðum með þig,
þetta er vel þekkt taktík við að ‘sýna tennurnar’. Þú ætlaðir alltaf að
verða skriðdýrafræðingur en þar sem það hentaði ekki á Íslandi lá
læknisfræðin betur við. Þú ert búinn að upplýsa þig um ýmsa hluti
og þér finnst þú ekki geta útilokað að litlum örflögum hafi verið
komið fyrir í bóluefninu gegn COVID19. Þegar þú viðrar þessar
skoðanir við bekkjarsystkinin þín þá finnst þér þú ekki vera hluti
af hópnum. Má ekkert segja lengur?? Þú verður fyrri til að sjá alvöru
lifandi sebrahest en að greina einhvern með sjaldgæfan sjúkdóm.
Sporðdreki: 24. október–21. nóvember
Vatnstákn
Elskulegi sporðdreki. Þegar sérfræðingurinn gleymir að bjóða
þér með í skurðaðgerð þá er það ekki persónuleg árás á þig, vegir
sérfræðinganna eru óútreiknanlegir. Þú ert týpan sem brettir upp
ermarnar á stuttermasloppnum því þér finnst ermarnar ekki nógu
stuttar til að sýna upphandleggina. Þú ert OFT búinn að senda
ábendingar um að Landspítalafatnaðurinn ætti að vera úr leðri,
það er hvort eð er kalt á skurðstofunum. Í sjúkrasögunni tekur þú
sérstaklega langan tíma í hægðamál og félagssögu þar sem þér finnst
einkar skemmtilegt að geta rætt svona fumlaust um vandræðalega
hluti. Mörg bekkjarsystkini þín óttast þig því þau vita aldrei hvort
þú ert að djóka eða ekki. Skurðstofugríman gerir þig sérstaklega
ógnvekjandi þar sem þú ert með einstaklega stingandi augnaráð. Þú
munt þurfa að hafa mikla þolinmæði fyrir tvíburum, sérstaklega
þessum á skilunardeildinni.
Steingeit: 22. desember–19. janúar
Jarðartákn
Elsku stabíla steingeitin mín. Þú ákvaðst að verða læknir
í frumbernsku. Allur þinn menntaferill hefur undirbúið
þig fyrir þetta. Þú hefur alltaf fundið fyrir skyldu gagnvart
bekkjarsystkinum þínum að glósa fyrir þau, þetta hvetur þig
áfram til dáða. Þú ert einmitt þessi tryggi og góði vinur sem veit
alltaf hvað er til prófs. Margir eru þó lengi að kynnast þér þar sem
þú getur verið svolítið kuldaleg við fyrstu kynni. En þegar þau
fá að kynnast þér sjá þau hversu tryggur og góður vinur þú ert.
Allar neikvæðar tilfinningar sem geta komið í veg fyrir framann
þinn geta bara hoppað uppí r***gatið á sér fyrir þér. Kvíði? HVAÐ
ER ÞAÐ??? Mundu að það er í lagi að doka við og grenja í öxlina á
hjúkrunarfræðingnum. Finnskur sérfræðingur mun bjóða þér í
saunu á fullu tungli rétt fyrir jól.
Fiskur: 19. febrúar–20. mars
Vatnstákn
Elsku fallegi fiskurinn minn, þú ert svo fljótandi og fjölbreyttur.
Það mætti jafnvel segja að þú værir misþroska. Þú veist ekki alveg
hvort þú ætlir á barna eða öldrun, bæði er svo heillandi! Þegar þú
sást að það var Kentucky þorskur í matinn á LSH brunaðiru beint út
í Veiðifluguna og keyptir þér stöng. Eða var þetta kannski draumur?
Það er aldrei að vita með þig. Mörk eru stundum óljós fyrir þér enda
bauðst þú einu sinni sjúklingi með í stangveiðiferð eftir útskrift.
Passaðu þig bara að verða ekki ástfanginn af sjúklingnum aftur.
Við mælum ekki með að þú horfir á spítalalífið eins og Grey’s
Anatomy þátt, slík rómantísk fantasía á LSH er ekki holl fyrir neinn.
Þú munt finna ástina í verktakavinnu úti á landi en sú ást mun ekki
vera langlíf vegna starfsframa. Hún mun samt að minnsta kosti vera
í samræmi við siðareglur Læknafélags Íslands.