Læknaneminn - 01.04.2022, Blaðsíða 109
107 Alþjóðafulltrúi
FINO
Það er kominn fimmtudagurinn 4. nóvember, ég er með tvo
skammta af Pfizer í öxlinni og ég rata einhvern veginn ennþá til
Keflavíkur. Eftir tvö FINOlaus ár eru Norðmenn loksins búnir að
bjóða til ráðstefnu og við Anna Karen Richardson, Bríet Jónsdóttir,
Fannar Bollason, Hafþór Sigurðarson, Halla Kristjánsdóttir, Herdís
Eva Hermannsdóttir, Katrín Kristinsdóttir, Melkorka Sverrisdóttir
og Telma Jóhannesdóttir erum á leið til Oslóar að heyra um þemað
„The Future of Medicine“.
Við komuna eru heilar 7°C og sól og ég kíki á símann: 6°C á Íslandi
skýjað. Noregur 1 Ísland 0, ferðin byrjar vel. Þar sem háskóla
stúdentar elska ódýr flug erum við mætt eldsnemma og getum ekki
innritað okkur fyrr en einhverjum þremur tímum seinna. Þess í stað
göngum við um miðbæ Oslóar með ferðatöskur að leita að mat og
helst bjór. Sumir leika að vísu Instagramlistir sínar mjög snemma
við komu. Það verður að segjast að þetta fólk – og sér stak lega Hafþór
– myndast ekkert eðlilega vel enda fengu allir lækna nemar landsins
að njóta þess á samfélagsmiðlum dagana eftir heim komu. Eftir smá
rölt finnum við norsku Hlemmur Mathöll og pöntum bjórinn Aass
(borið fram Ass, allavega af okkur) á ensku þrátt fyrir daglega heima
vinnu af SKAM þáttum síðustu misseri. Takk fyrir ekkert Noora.
Maturinn smakkaðist vel og við komum okkur loksins upp á hótel.
Ráðstefnuhaldarar voru búnir að bóka okkur á Citybox Oslo í
hugguleg herbergi í u.þ.b. 10 mín göngufjarlægð frá Legenes Hus þar
sem ráðstefnan sjálf var haldin. Allt var til fyrirmyndar, innritun
gekk hratt fyrir sig og herbergin hugguleg, Legenes Hus nýuppgert
sem höfuðstöðvar Félags norskra lækna og við með allt húsið fyrir
okkar starfsemi á ráðstefnunni og allt saman á besta stað í miðbæ
Oslóar.
Það verður að segjast að Norðmaðurinn kann að bjóða
fólki í heimsókn. Það var búið að tjalda öllu til þegar kemur að
fyrirlesurum. Við fengum kynningu um hlutverk gervigreindar í
læknisfræði framtíðarinnar, sýklalyfjaónæmi, hnattræna hlýnun
og áhrif hennar á áherslur læknavísindanna, einstaklingsmiðaða
meðferð í skurðaðgerðum og samtal læknis og sjúklings eftir því
sem upplýsingatækni miðar áfram. Jú og svo fengum við brúnost.
Við komumst fljótt að því að þegar Norðmaðurinn ætlar að gera
vel við sig – klukkan fjögur á daginn eða þegar hann er með gest í
heimsókn – þá fær hann sér brúnost.
Brúnostur er nokkurn veginn mysingur í ostaformi. Þetta
hljómar ekkert voðalega vel, og er bara eiginlega nákvæmlega eins
og þú ímyndar þér, en þegar brosandi Norðmaður réttir þér brúnost
með vöfflu og sultu þá brosirðu til baka og hugsar hlýlega til Aha.
Eftir fyrirlestra og umræður var skemmtidagskrá öll kvöld. Eftir
vandræða legt speeddate fyrsta daginn var boðið upp á pub quiz og
svo galakvöld með viðeigandi mat síðasta kvöldið. Yfir veislumat
var boðið upp á skemmtiatriði í formi ástarbréfa frá hverju landi
en hver þjóð hafði fengið aðra þjóð til að skrifa ástarbréf um og
flytja yfir matnum. Að sjálfsögðu eru öll ástarbréf trúnaðarmál en
okkar ástarbréf til Noregs, eftir að hafa verið með Danmörku og
slitið sambúð eftir að hafa komist að framhjáhaldi við Grænland
og Færeyjar, snerist um fallegar línur hans með þessum fjöllum og
fjörðum. Talandi um að vera thicc á réttu stöðunum, Noregur þú ert
alveg með þetta eins og Frikki myndi segja árið 2012. Að sjálfsögðu
var farið í bæinn eftir hvert kvöld með misjöfnum árangri enda er
Noregur ekkert fyrir vesen og virðist elska í staðinn reglufestu og
alúðlegt umhverfi. Í Noregi má ekki fara inn á skemmtistaði undir
áhrifum eða með rafrænum skilríkjum. Að tala við dyraverði í
Noregi er eins og að tala við foreldra mína eftir Verslóball í mennta
skóla, nei ég var ekki að drekka... ég er blááááedrú.
FINO er því miður bara 34 dagar, í raun bara kvöldið á fimmtu
deginum, föstudagur, laugardagur og ef maður er heppinn, sunnu
dags morgunn. Það var því ömurlegt að kveðja allt fólkið sem við
höfðum kynnst áður en við fórum heim á sunnudeginum, nýbúin að
kynnast þeim í raun og veru. Svona er lífið í IFMSA, eftir að maður er
búinn að kynnast fólki er það eina sem maður getur gert að vonast
eftir því að maður hitti það á ráðstefnum seinna meir. Eftir að vera
bitinn af veirunni er eina leiðin að huga að næstu ráðstefnu.
MM
Marsmánuður er runninn upp og við Halla Kristjánsdóttir, Íris
Brynja Helgadóttir, Jenný Jónsdóttir, Katrín Wang og Sigurður
Karlsson gefum Omicron löngutöng á leiðinni út eftir að hafa þurft
að skilja tvo fulltrúa Íslands eftir heima.
March Meeting var haldið á þremur hótelum á bökkum Ohrid
vatns, einu stærsta stöðuvatni Evrópu og því stærsta í Norður –
Makedóníu. Þangað mættu hundruðir læknanema frá hinum fjöl
mörgu þjóðum heims, hver í sínum tilgangi að sitja fyrirlestra um
lýðheilsu, kynheilbrigði, skiptinám, hlutverk læknisfræðinnar í
mann réttindum og friðargæslu o.s.frv. Á MM og AM hafa ýmsar hug
myndir komið upp sem hafa nýst íslenskum læknanemum vel í þeirra
starfsemi og eigum við því alþjóðastarfsemi IFMSA mikið að þakka.
Ég sjálfur missti því miður af þeim umræðum sem fóru
fram á meðal hinna mörgu fastanefnda IFMSA þar sem ég sat
kosningafundi félagsins. Eftir mína allt of mörgu klukkutíma að
hlusta á umræður um lagabreytingar varðandi orðalag alþjóðalaga
læknanema tók við skemmtidagskrá á kvöldin.
Á MM og AM er tryggt að læknanemar hafi eitthvað að gera
eftir umræður og fundi dagsins. Tvö kvöld eru frátekin fyrir fasta
liði ráðstefnanna, þ.e.a.s. National Food and Drink Dinner Party
og Culture Night. Það má segja að hið fyrrnefnda sé aðalkvöld
ráðstefnunnar svona stemmingslega séð. Þá koma þjóðirnar með
rétti og drykki síns heimalands og bjóða upp á svo hægt er að labba
á milli borða og smakka á veitingar frá hverju landi. Fólk klæðir
sig upp í þjóðbúninga og fljótlega finnur fólk sér sameiginlegan
grundvöll í menningu hvers lands svo úr verður fögnuður ólíkra
menningarheima.
Þó svo að læknanemar deili vali á námi eru þeir jafn ólíkir og
bakgrunnur þeirra. Ráðstefnur IFMSA eru ómetanlegur grundvöllur
til að hitta fólk með svipaðar væntingar og áætlanir þó svo að
fortíð þeirra beri ólíka hluti með sér. Ég hef hitt mann sem ætlaði
í sama nám og ég þó svo að hann sé fjórum árum á eftir mér vegna
hernaðarskyldu og ég hef hitt konu sem leggur allt sitt kapp á
hlutverk læknisfræðinnar eftir hnattræna hlýnun þar sem sú ógn er
orðin áþreifanleg í hennar landi.
Hvort sem þú vilt bæta félagslíf læknanema á Íslandi, kynnast
fólki, fræða þig, víkka sjóndeildarhring þinn fyrir menningu annarra
læknanema eða bara taka þátt og skemmta þér þá hvet ég þig svo
eindregið til þess að sækja um á ráðstefnum komandi árs. IFMSA
er ómetanlegt tækifæri til að ferðast og bæta við reynslu bankann,
lýðheilsulega, félagslega og menningarlega. Til allrar hamingju á ég
núna vini um allan heim og hlakka til að rækta tengsl við þá með sem
flestum íslenskum læknanemum á komandi skólaári.