Læknaneminn - 01.04.2022, Side 132
LÆKNANEMINN130
Samfélagsleg virkni og örorka ungs
fólks á Íslandi eftir snemmíhlutun í
geðrof
Ragna Kristín Guðbrandsdóttir1, Oddur
Ingimarsson1,2, Birna Guðrún Þórðardóttir2
1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Geðsvið
Landspítala
Inngangur
Þrátt fyrir lágt algengi geðrofssjúkdóma er
byrði sjúkdómanna fyrir einstaklinginn og
samfélagið mikil. Einstaklingar greinast
almennt ungir og þrátt fyrir meðferð hefur
stór hluti viðvarandi einkenni sem leiða oft
til skertrar samfélagslegrar virkni og örorku.
Markmið þessarar rannsóknar var að kanna
hversu hátt hlutfall ungra einstaklinga sem
fengu snemmíhlutun í geðrof hér á landi
árin 20102020 tók þátt í námi eða vinnu
að endurhæfingu lokinni og hversu stórt
hlutfall hafði framfærslu af örorku, ásamt
því að kanna hvaða þættir hefðu forspárgildi
um það.
Efniviður og aðferðir
Rannsóknin var afturskyggn ferilrannsókn
sem byggði á upplýsingum úr sjúkraskrám
allra sem útskrifuðust af Laugarásnum
meðferðargeðdeild á árunum 20102020 eftir
lengri en sex mánaða endurhæfingu (n=144).
Tvíkosta aðhvarfsgreining var framkvæmd
til að kanna hvaða breytur höfðu for spár
gildi um náms og atvinnuþátttöku og fram
færslu af örorku að endurhæfingu lokinni.
Niðurstöður
Við útskrift var rúmur helmingur
þjónustu þega í vinnu eða námi og tæpur
helmingur hafði framfærslu af örorku.
Þeir þættir sem reyndust bæði hafa
forspárgildi um náms og atvinnuþátttöku
og örorku við útskrift voru þeir þættir sem
endurspegla alvarlegan geðrofs sjúkdóm,
geð klofagreining og meðferð með geðrofs
lyfinu clozapine, en einnig stúdents próf
og atvinnuþátttaka fyrir endurhæfingu.
Meirihluti þjónustuþega (66%) hafði sögu
um kannabisneyslu sem reyndist hafa
neikvætt forspárgildi um náms og atvinnu
þátt töku við útskrift. Hins vegar virtist
starfsendurhæfing vera sá þáttur sem hafði
mest jákvætt forspárgildi um náms og
atvinnuþátttöku við útskrift.
Ályktanir
Niðurstöður þessarar rannsóknar benda
til þess að endurhæfing á Laugarásnum
geti aukið samfélagslega virkni ungra
einstaklinga með geðrofssjúkdóma, en færri
voru atvinnulausir eftir endurhæfinguna en
við innritun. En betur má ef duga skal, þar
sem að tæplega helmingur þjónustuþega var
hvorki í námi né vinnu við útskrift. Einnig
virðist mikilvægt að tryggja skilvirka
starfsendurhæfingu á Laugarásnum þar sem
starfsendurhæfing var einn fárra þátta sem
hafði forspárgildi um náms og atvinnu
þátttöku við útskrift sem hægt er að hafa
áhrif á í endurhæfingunni.
Samanburður á blæðingum frá
meltingarvegi hjá sjúklingum með
skorpulifur
Sara Margrét Daðadóttir1, Arnar Bragi
Ingason2, Jóhann Páll Hreinsson3, Einar
Stefán Björnsson2.
1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Landspítali
Háskólasjúkrahús, 3Sahlgrenska
Háskólasjúkrahús, Gautaborg, Svíþjóð
Inngangur
Blæðingar frá æðagúlum í vélinda eru
algeng orsök skyndilegra meltingar vegs
blæðinga hjá skorpulifrarsjúklingum
og tengdist áður fyrr hárri dánartíðni.
Markmið rannsóknarinnar var að bæta
við takmarkaða þekkingu um núverandi
horfur við blæðingar frá æðagúlum
auk þess að kanna eðli og horfur
annarra meltingarvegsblæðinga hjá
sjúklingahópnum.
Aðferðir:
Sjúklingar sem greindust með skorpulifur
á tímabilinu 20102021 voru þáttakendur í
framsýnni rannsókn 20102015 á Íslandi. Frá
2016 hafa allir nýjir skorpulifrarsjúklingar
verið skráðir í gagnagrunn. Upplýsingum
var safnað úr sjúkraskrám. MELD (model
for endstage liver disease: bilirubin, INR,
kreatinin) var notað sem mælikvarði á
alvarleika lifrarsjúkdómsins.
Niðurstöður
Alls greindust 402 sjúklingar með skorpu
lifur. Miðgildi eftirfylgni var 23 mánuðir
(spönn 0126). Alls blæddu 111 (28%) frá
meltingarvegi, 70 (63%) við greiningu og 41
(37%) síðar, 86 (77%) frá efri hluta en 13 (12%)
frá neðri hluta meltingarvegar, staðsetning
var óljós hjá 12 (11%) sjúklingum. Meðaltal
MELD var 13,6 hjá þeim sem blæddu
og 11,6 hjá þeim án blæðingar (p<0,05).
Fleiri sjúklingar sem blæddu voru með
skinuholsvökva (e. ascites) (p<0,05) og einnig
voru þeir líklegri til að vera með lifrar
heilakvilla (p<0,05). Fjórir sjúklingar (2,5%)
létust úr bráðri blæðingu sem ekki gekk
að stöðva. Í öllum þeim tilvikum var um
blæðingar frá æðagúlum að ræða og var
meðal MELD skor 16.
Ályktanir
Blæðingar frá efri meltingarvegi voru
mun algengari en þær frá neðri. Merki um
alvar legan lifrarsjúkdóm höfðu tengls við
aukna blæðingartilhneigingu .Mjög lítill
hluti sjúklinga lést úr blæðingu því hana
tókst að stöðva hjá allra flestum en þeir sem
létust úr blæðingu höfðu verulega skerta
lifrarstarfsemi.
Slímseigjusjúkdómur á Íslandi
Selma Rún Bjarnadóttir1, Helga Elídóttir2,
Brynja Jónsdóttir3, Ólafur Baldursson3
1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Barnaspítala
Hringsins, 3Landspítali
Inngangur
Slímseigjusjúkdómur (e. cystic fibrosis,
CF) er arfbundinn eingena sjúkdómur sem
erfist víkjandi og er tíðni hæst í fólki af
norðurevrópskum ættum. Sjúkdómurinn
orsakast af stökkbreytingu í CFTR geninu
sem veldur afbrigðilegum jónaflutningi
yfir frumuhimnur og leiðir til óeðlilegrar
seigju í seyti útkirtla. Sjúkdómsmyndin
einkennist helst af vanstarfsemi briss og
langvinnum öndunarfærasýkingum sem
valda lungnaskemmdum og að lokum
öndunarbilun, en lífslíkur sjúklinga með
CF hafa þó aukist á undanförnum árum
með bættri meðferð og eftirliti. Markmið
rannsóknarinnar var að lýsa arfgerð og
svipgerð einstaklinga með CF á Íslandi
og kanna hvernig greiningu, meðferð og
eftirliti er háttað. Slík rannsókn hefur ekki
áður verið gerð hér á landi.
Efni og aðferðir
Rannsóknin var afturskyggn og náði
til einstaklinga sem greindust með
slímseigjusjúkdóm á Íslandi á árunum
19552020. Leitað var að upplýsingum um
arfgerð, greiningu, öndunarfærasýkingar,
lungnastarfsemi, næringarrástand,
fylgikvilla, meðferð og eftirlit í sjúkraskrám.
Niðurstöður
Alls greindust 30 einstaklingar með slím
seigju sjúkdóm á árunum 19552020 og
var útreiknað algengi sjúkdómsins 3,84
á 100.000 manns árið 2020. Algengustu
gena breytur í íslenska hópnum voru ΔF508
(46,4%) og N1303K (44,6%). Miðgildi aldurs
við greiningu á Íslandi var 4,5 mánuðir og
leiddu einkenni tengd brisvanstarfsemi
og meltingarfærum oftast til greiningar.
Allir sem greindust með CF á tímabilinu
höfðu vanstarfsemi briss. Algengasti CF
mein valdurinn sem ræktaðist úr öndunar
færum var Staphylococcus aureus og tíðni
lang vinnra Pseudomonas aeruginosa
sýkinga var 26%. Á tímabilinu greindust
átta með CF tengda sykursýki, fjórir
með CF tengdan lifrarsjúkdóm, þrír með
barnabiksgarnalömun og einn með allergic
bronchopulmonary aspergillosis (ABPA).
Með ferð virtist vera svipuð og annars staðar
á Vesturlöndum, en hlutfall notkunar á inn
úðasterum og azithromycin var þó hærra
hér á landi. Fimm af 14 í virku eftirliti höfðu
hafið meðferð með CFTR modulators.