Jólapósturinn ([Akureyri] : 1949-1951) - 01.12.1949, Page 14

Jólapósturinn ([Akureyri] : 1949-1951) - 01.12.1949, Page 14
J Ó L I N JÓLAPÓSTURINN 1 949 Húsgagnabólstrun Hinriks Hinrikssonar Smíðum alls konar stoppuð húsgögn svo sem: Sófosett, ótol gerðir Svefnsófo Alstoppaðo sfóla Armstóla Borðstofustóla Dívona og margt fleiro. Svefnsófi. ) —> Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er GLEÐILEG JÓL! FARSÆLT KOMANDIÁR! Þakka viðskiptin á liðna árinu. HÚSGAGNABÓLSTRUN HINRIKS HINRIKSSONAR Ifafnarstræti 105 . Aknreyri Konan leit tortryggnislega á hann, og hún rétti honum ekki höndina í kveðjuskyni fyrr en maður hennar hafði sagt: — Skrifstofustjórinn átti leið hérna fram hjá, og þá datt honum í hug að líta inn til okkar. — Ég vona, að ég geri ekki neitt ónæði, sagði skrifstofu- stjórinn. Frú Kahler muldraði eitthvað óskilj anlegt. Eiginmaður hennar gekk að dyrum, sem lágu út úr eldhúsinu, opnaði þær og sagði: — Og hérna er dóttir okkar. Berntson gekk þegjandi inn. Hann nam staðar fyrir innan dyrnar. Það fyrsta, sem blasti við augum hans, var jólatréð. Það var búið að kveikja á kertum þess. Bréffánarnir hreyfðust fram og aftur fyrir hitanum. Þá kom hann auga á Gimnu. Hún sat í körfustól, og .... Berntsen starði á hana. Hún hélt á pínulitlu krakkakríli í örmum sér. Aldrei á ævi sinni hafði Berntson átt jafn erfitt með að koma orðum að því, sem hann vildi segja. Hann stóð þegj- andi og velti loðhúfunni sinni milli handa sér. Hann leit aftur á Gunnu. Hún var fögur kona og ung. Og síðan leit hann aftur á nakið, spriklandi barnið í örmum hennar. — Fyrirgefið .... ég bið afsökunar, að ég skuli ryðjast hingað inn .... og gera yður ónæði, stamaði hann Ioksins. Gunna leit á hann. Fyrst var einungis undrun í svip hennar,en síðan varð andlit hennar hörkulegt. Festulegir hörkudrættir fóru um munn hennar, eins og hún byggist til varnar gegn óvini sínum. En svipur hennar varð aftur mildari, þegar hún sá, hversu vandræðalegur hann var. Hann starði á litla angann með næstum því tilbeiðslusvip. — Auðvitað eruð þér velkominn, sagði hún og roðnaði. Þér komuð bara svo óvænt. — Ég get ekki neitað því, að ég varð dálítið undrandi líka, ungfrú, sagði Berntsen og og brosti hlýlega. Ég á við .... ég bjóst ekki við .... ég á við .... — Það er líklega litli snáðinn, sem þér eruð svo undrandi yfir að sjá? — Já, — já, einmitt. Ungfrú — þér vilduð líklega ekki segja mér, hvort hann er .... sonur Hans og yðar? — Jú, þetta er sonur okkar Hans, svaraði hún. Og nú var það hún, sem brosti. — Guð minn góður, hvíslaði skrifstofustjórinn. Er þetta satt í raun og veru? Hann gekk til barnsins og tók utan um litlu, hnubbaralegu fingurna. Hann leit inn í bláu augun, sem voru dálítið undr- andi. En hvað hann kannaðist vel við þessi augu. Hann stóð lengi hljóður. Litli snáðinn brosti framan í hann.

x

Jólapósturinn ([Akureyri] : 1949-1951)

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólapósturinn ([Akureyri] : 1949-1951)
https://timarit.is/publication/1962

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.