Bergmál - 01.07.1955, Síða 20
B E R G M Á L --------------------------- J Ú L í
tímum eyddu karlmennirnir
stórum fjárhæðum í fallega
cl'k’.sokka og guilbróderuð föt.
T á minntist enginn á hógværa,
H-'lmannlega glæsimennsku,
breiðar axlir o. s. frv. Ef karl-
maðurinn átti að hafa einhverja
minnstu von um að ganga í aug-
un á stúlkunum, varð hann að
hafa sterklega fætur með viss-
um boglínum, og væru fætur
karlmannanna of grannir og
spóalegir, þá var hjálpað upp á
sakirnar með fölskum fótleggj-
um og þá urðu menn svei mér
að gæta sín, svo að þeir yrðu
ekki fyrir háði og spéi frá hinu
veikara kyni. En vitanlega kom
fyrir að illa fór, eins og sjá má
af auglýsingu í dagblaði í Kaup-
mannahöfn árið 1766, þar var
auglýst að fundizt hefðu falskir
fótleggir rétt við Kristjánsborg.
Ungfrúrnar í Kaupmannahöfn
hafa áreiðanlega flissað nokkuð
mikið þann dag á kostnað karl-
mannanna.
Enn fremur höfðu karlmenn-
irnir á þeim tíma betri aðstöðu
en við nú á tímum að því leyti
að þeir gengu með hárkollur,
hver einasti karlmaður án und-
antekningar. Nú á tímum meg-
um við oft hlusta á þá athuga-
semd, niðurlútir og orðvana, að
hárið á okkur sé farið að þynn-
ast allmikið, en er það annars
nokkuð að undra. Á átjándu
öldinni, aftur á móti, voru allir
karlmenn þunnhærðir, eins
þunnhærðir eins og yfirleitt
hægt er að vera, því að þeir voru
blátt áfram bersköllóttir, eða í
versta lagi alveg snoðklipptir
og í stað lubbans báru þeir svo
glæsilega hárkollu, því það var
blátt áfram talin skömm að því
að ganga með sitt eigið hár.
Þannig var lífið á margan hátt
miklu auðveldara á þeim tím-
um.
Klæðnaður karlmannsins hef-
ir sem sagt lítið breytzt á síð-
ustu 100 eða jafnvel 150 árum,
þar sem aftur á móti fatnaður
kvenfólksins, hefur verið sífelld-
um breytingum undirorpinn.
Ýmist eiga stúlkurnar að vera
bústnar hér og þar eða þá að
þær eiga að vera flatþrjósta og
þunnar eins og þvottabretti.
Ýmist eiga kjólarnir að vera
síðir eða stuttir og í hvert skipti,
sem ný uppfinnding berst út um
heiminn frá tízkusölum Parísar
þá segja menn oft: „— Nei, nú
er sannarlega of langt gengið.
Þetta gengur aldrei hér á
Norðurlöndum.“ Og hálfum
mánuði síðar ganga allir klædd-
ir samkvæmt nýjustu Parísar-
\r
18