Bergmál - 01.07.1955, Síða 35
Bercmál
1955
ingi og hljómlistin er Bizets, þótt hún
sé kennd við Oscar Hammerstein.
Dorothy Ðandridge hefir hrafnsvart
hár, og hörund hennar er kaffibrúnt.
Hún er fædd í Ohio í Bandaríkjunum,
en þar var faðir hennar fríkirkju-
prestur.
Hún hefir frá unga aldri gefið sig
að söngnámi og dramatískri leiklist,
en ekki tókst henni að vekja neina
sérstaka athygli fyrr en henni var
boðin staða sem söngkona með hljóm-
sveitinni í Mocambo, sem er einn af
frægustu næturklúbbunum í Holly-
wood. Og loks fékk hún tækifæri til
að sýna hvað í henni byggi, er henni
var boðið aðal-hlutverkið í kvikmynd-
inni „Carmen Jones“. Hún brást ekki
vonum kvikmyndafélagsins, því að
hún hlaut einróma lof fyrir frammi-
stöðuna og jafnframt er henni spáð
glæsilegri framtíð, sem söng og leik-
konu.
Rödd hennar er mikil, en þó mjúk
og vel þjálfuð. Auk þess er hún gáfuð
og áhugasöm leikkona, gædd næmum
skilningi og kvenlegum yndisþokka.
Litla myndin er tekin er Dorothy
mætti á frumsýningu kvikmyndar-
innar „Carmen Jones“.
FORSÍÐUMYNDIN er af hin-
um frœga ORSON WELLES í
gervi Othellos. En svo sem kunn-
ugt er stjórnaði Orson Welles
kvikmynd eftir samnefndu leik-
riti Shakespeares og lék auk
þess sjálfur tiltilhlutverkiö.
Kvikmynd þessi hefir nýskeð
veriö sýnd hér, og er áreiðan-
lega ógleymanleg þeim sem sáu
hana.
BAKSÍÐUMYNDIN er af leik-
konunni SUZANNE CLOUTI-
ER. Hún lék Desdemonu í kvik-
myndinni Othello á móti Orson
Welles, sem getið er hér að
framan. Og á þessari mynd aftan
á heftinu er Suzanne Cloutier
einmitt í gervi Desdemonu, sem
hún lék mjög sannfœrandi.
Frá Hollywood berast alltaf nógar
fréttir af kvikmyndaleikurunum. Hér
er sumt af því nýjasta:
Clark Gable ku ekki hafa önnur
meiri áhugamál nú en veiðar. Hann
ekur um þjóðvegina í snjóhvítum
Ford-bíl með hlaðna byssu og veiði-
stengur í aftursætinu, en við hlið hans
í framsætinu situr — — — veiði-
hundur, (en ekki fögur kona).
★
Edmund Purdom, sem lesendur
Bergmáls kannast við, hefir nú 1200
dollara laun á viku hjá Metro-félag-
33