Bergmál - 01.07.1955, Qupperneq 43
Er hægt að vera of góður eiginmaður?
HANN VAR
OFGÓÐUR
Smásaga eftir Michael Carreck
„Ertu hamingjusöm?“ spurði
Símon mitt í öllum hávaða brúð-
kaupsveizlunnar. Júlía kinkaði
kolli og heilu steypiflóði af kon-
fetti rigndi yfir hana. Þegar þau
óku af stað í nýja bílnum, ætl-
uðu þau að ærast af hávaða, því
aftan í bílinn hafði verið hnýtt
mörgum blikkbrúsum og hinu
og þessu járnadrasli. Þetta hafði
Elliot föðurbróðir gert, því að
Elliot föðurbróðir gerði oft að
gamni sínu og fann upp á hinu
og þessu til gamans bæði fyrir
sjálfan sig og aðra. Símon keyrði
fyrir næsta horn, stöðvaði bíl-
inn og fór út úr honum. Eftir
andartak kom hann aftur. „Það
var eins og mér datt í hug,“
sagði hann. „Allt fest með sterk-
um járnvír.“ Hann opnaði verk-
<*■
færageymsluna og kom þar með
spánýtt járnsax. Það heyrðust
nokkrir smellir, og tveim mín-
útum síðar óku þau áfram, en
skildu járnaruslið eftir á vegin-
um.
„Keyptir þú járnsax aðeins í
þessum tilgangi?“ spurði Júlía.
„Já,“ svaraði Símon.
„Oh.“
„Oh, hvað?“ spurði hann.
„Ekkert, bara oh,“ sagði Júlía.
Og um kvöldið á hótelinu,
þegar hún sá Símon taka upp úr
töskunum, sagði hún: „Ég
heyrði á það, að Elliot föður-
bróðir þinn var að tala um að
binda náttfötin þín saman í
einn hnút.“
Símon tók fatavöndul úr bláu
næloni upp úr ferðatöskunni og
41