Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.06.2015, Page 5

Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.06.2015, Page 5
5 „Bara eins og að vera í paradís“ sagði Jónbjörg Sesselja Hannesardóttir þriggja barna móðir frá Akureyri um dvölina við Úlfljótsvatn. „Vatnasafaríið er skemmtilegast. Ég fékk mikið kikk út úr því að detta ofan í ískalt vatnið,“ segir hún og skellihlær. „En án gríns, að vera svona úti í náttúrunni og komast í tengsl við aðra er svo endurnærandi. Tíminn er bara alltof fljótur að líða, okkur langar ekkert heim strax.“ „Við setjum hægri höndin‘inn..“ Hókí pókí og rífandi stemning á kvöldvöku sumarfrísins þar sem var spilað, dansað og sungið fram eftir kvöldi. Dagskráin var þétt: boltaleikir, ratleikir, gönguferðir, bogfimi, sundferð, hestaferð, vatnasafarí, Adrenalíngarðurinn, kanóa- og hjólabátasigling... En svo er frjáls leikur alltaf skemmtilegur líka. Mömmurnar klifruðu, spiluðu fótbolta, fóru út á báta, í frisbígolf og vatnasafarí en á mömmukvöldi nutu þær þess að búa til tækifæriskort í ró og næði.

x

Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar
https://timarit.is/publication/1939

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.