Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.06.2015, Blaðsíða 16
Gjafakort Hjálparstarfs kirkjunnar
fást í verslunum Hagkaups
Á síðasta ári bjuggu um 2% landsmanna, yfir 6.000 manns, við verulegan
skort á efnislegum gæðum. Sem betur fer er samt fátítt að börn á Íslandi
skorti lífsgæði - með einni undantekningu þó en það er þátttaka barna í
reglulegri tómstundaiðju. Árið 2014 var tæpur þriðjungur barna á Íslandi ekki
í reglulegu tómstundastarfi. Fjárhagsleg afkoma foreldranna er breyta sem
skiptir máli í þessu samhengi en í fyrra voru 37% barna í lægsta fimmtungi
tekjudreifingarinnar ekki í reglulegri tómstundaiðju samanborið við 18,5% í
hæsta fimmtungnum.
En hvað þýðir þetta þegar maður er 10 ára og langar að taka þátt í
tómstundaiðju með vinum sínum? Hvað þýðir það að hafa ekki þann möguleika
og upplifa sig útundan? Og ekki bara núna í sumar heldur líklegast líka næstu
ár? Rannsóknir hafa sýnt fram á tengsl fátæktar og félagslegrar einangrunar
barna sem hefur varanleg neikvæð áhrif á sjálfsmynd og sjálfstraust þeirra
þannig að þau komast við illan leik út úr vítahring aðstæðna.
Í fyrra aðstoðaði Hjálparstarf kirkjunnar um 5900 einstaklinga sem búa við
fátækt. Við beinum sjónum okkar fyrst og fremst að barnafjölskyldum með
það að markmiði að draga úr hættunni á félagslegri einangrun og þá barna
alveg sérstaklega. Þess vegna veitum við styrki til íþróttaiðkunar, tónlistarnáms
og tómstunda barna. Við erum að safna fyrir verkefninu núna með því að
selja tækifæriskortið „Gleðilegt sumar“ á 1200 krónur í verslunum Hagkaups
á höfuðborgarsvæðinu. Myndirnar framan á kortunum eru eftir 5 ára gamalt
listafólk í leikskólanum Austurborg í Reykjavík.