Farmasía - 01.06.1946, Blaðsíða 10

Farmasía - 01.06.1946, Blaðsíða 10
Þótt lyffræði eigi sér að vísu langa sögu, hefur lítið verið ritað um lyffræðileg efni á íslenzku, og aldur íslenzkrar lyffræðistéttar verður vart talinn 2 tugir ára. Það má segja með sanni, að sérhver grein eða ný bók varðandi raunvísindaleg efni, sem gefin er út á íslenzku, sé hlaðin þýðingum og nýyrðum, sem eru jafn óskiljanleg fræði- mönnum sem almenningi. Eitt orð, sem „þýtt“ hefur verið á íslenzku með vafasömum árangri, er orðið apótek. Hafa ýmsir notað þess í stað orðið lyfjabúð, og enn fremur orðið lyfsali til að tákna þann, sem apótek rekur. Samkvæmt íslenzkri merkingu þessara orða tákna þau aðeins brot þeirra hugtaka, sem hin orðin merkja í raun og v'eru. Þegar þess er og gætt, að orðin apótek og apótekari hafa verið notuð hér á landi og um önnur Norðurlönd um langan aldur, sýnist lítil ástæða vera til að leggja þau niður, og enn minni sýnist árangur nýyrðasmiðanna hafa orðið. Apótekarafélag ísland hefur því ákveðið að nota eingöngu hin gömlu orð, meðan önnur betri hafa eigi fengizt, og hefur leitað álits dr. phil. Björns Guðfinnssonar um þetta efni. Er svar hans svohljóðandi: „Ég er eindregið fylgjandi því að íslenzka þau erlend heiti, sem notuð eru í málinu, svo sem frekast er unnt. Hins vegar viðurkenni ég örðugleika á íslenzkun ýmissa fræðiheita, t, d. í læknisfræði og lyíjafræði. Orðin apótek og apótekari geta talizt meðal þessara fræðiheita, og fellst ég, eftir atvikum, á rök yðar, — meðan ekki er völ á hæfari orðum yfir þetta en lyfjabúð og lyfsali." Á A 1 þ i n g i. IL Alþingis hefur frá upphafi legið leið íslendinga til þess að ráða málum sín- um og reyna að beina þeim þjóðinni til fram- fara og heilla. Þangað hafa lyffræðingar og apótekarar einnig slitið skóm sínum með erindi, sem varðar íslenzka lyffræði miklu. Er það frum- varp til lyfjalaga. Þau lög, sem gilda um íslenzka lyffræði, éru frá 1672. Munu þau hafa verið fullnægj- andi, meðan hér drottnaði dönsk einokun og á meðan lyffræðingar og apótekarar hér á landi voru nær eingöngu danskir menn, sem aldrei festu hér rætur en sneru flestir heim til átthaganna eftir skemmri eða lengri við- dvöl. En það á jafnt við um lyffræði sem læknis- fræði og aðrar starfsgreinar, sem víðtæka þýðingu hafa, að henni verður að búa lög og reglur, er svara kröfum tímans. Og íslenzk lyffræðistétt gerir þá kröfu til Alþingis, að það búi henni viðunanleg vinnuskilyrði með lögum, sem samin eru í samráði við stéttina og fræðilega þekkingu hennar, og skipi þar með þjóðinni á þessu sviði í flokk nútíma menningarþjóða, en reyni ekki að viðhalda úreltum ólögum eða setja önnur ný. Apótekarafélag íslands og Lyffræðingafélag íslands hafa í sameiningu samið frumvarp til lyfjalaga og hafa notið til þess þeirrar aðstoð- ar, sem á þurfti að halda hjá lagprófessor við Háskólann og öðrum mönnum hérlendis og erlendis. Var frumvarpið sent heilbrigðis- málanefnd neðri deildar síðasta Alþingis með beiðni um, að nefndin flytti það í þinginu. Nefndin tók frumvarpinu vel, að því er vitað er, en taldi þó eigi rétt að flytja það að þessu sinni, vegna þess að heilbr.málanefnd efri deildar fékk sent frá landlækni frumvarp til lyfsölulaga, sem samið var af nefnd, er hann tilnefndi og ráðherra síðan skipaði 1943. En frumvarp þetta telur stéttin vera stór- gallað og horfa til ófarnaðar, ef yrði að lögum. Hvorki Lyffræðingafélaginu né Aþótekara- félaginu gafst neinn kostur á að tilnefna menn í þessa nefnd né fylgjast með eða hafa áhrif á störf hennar, og mun slíkt vera fáheyrt í lýðfrjálsu landi, þegar um það er að ræða, að semja frumvarp til laga, er varða m’un þróunarskilyrði og hag hennar miklu um langa framtíð. Heilbr.málanefndir Alþingis töldu heppi- legast, að skipuð yrði milliþinganefnd til þess að vinna eitt frumvarp úr báðum frumvörp- unum. Var þingsályktunartillaga borin fram í sam- einuðu þingi þessa efnis, og afgreidd frá alls- 2 F \RMASÍA

x

Farmasía

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Farmasía
https://timarit.is/publication/1978

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.