Farmasía - 01.06.1946, Blaðsíða 21

Farmasía - 01.06.1946, Blaðsíða 21
Smyrslisgrunnurinn er steríliseraður á venjulegan hátt og penicillíninu bætt asept- ískt saman við. Smyrslið er afgreitt í sterílum tintúbum og er talið geymast virkt í 3 vikur, ef það er geymt við hita undir 10 stigum. INJECTABILE PENICILLINI OLEOSDM Svo sem kunnugt er, útskilst penicillín mjög ört úr líkamanum. Konsentrasjón penicillíns í blóðinu, eftir innspýtingu, fellur um 75% á 15 mínútum og um 90% á 30 mínútum, og eftir 3 klukkustundir finnst varla nokkurt penicillin í blóðinu. Margt hefur verið gert til þess að lengja penicillín verkunina og má gera það með tvennu móti, annars vegar með því að seinka útskilnaðinum í nýrunum eða hins vegar með því að tefja absorpsjónina. Með því að gefa stóra skammta af röntgen- skyggingar lyfinu díodrast eða af p- amíno- hippurín sýru eða natríumsalti hennar má tefja útskilnaðinn um tvo þriðju tímans. Á ýmsan hátt má tefja absorpsjónina, t. d. með staðbundinni vasosamherpingu með að- renalíni eða íspoka. Með plasmaproteínum má einnig mynda penicillínkomplex, sem díalys- erast mjög seint en bezta aðferðin til þessá hefur reynzt sú, að spýta inn olíususpensj ón af penicillíni intramusculert. Er til þess notuð svonefnd Romansky suspensjón með hvítu býflugnavaxi. Gefur hún konsentrasjón í blóð- inu, sem varir frá 7—10 klst. Formúlan er þessi: Natrii penicillinum 1000,000 ein. Cera alba gm 0,2 Oleum olivae sterilisatum ad 5 cc Hvíta vaxið er brætt á vatnsbaði og síað heitt í gegnum sexfalt gaze (þarf um 5 gm til þess að fá 0,2 gm af filtr.). Ólívuolían þarf að hafa verið filtreruð og þarf að vera peroxiðhrein og er hún hituð upp í 37 stig í sterílli kolbu. Er hvíta vaxið vegið í hana úr heitri sterilli pippettu. Blandan er hrist vel saman. Penicillínið er mulið með sterilum glerstaf í sterílu glasi eða kolbu, olíunni bætt saman við ásamt nokkrum sterílum glerkúl- um, ílátinu lokað með sterílum tappa og blandan hrist vel, þar til penicillínið er vel dreift. Alit skal verkið fara aseptískt fram. Áður en lyfið er notað, þarf að hita það upp í 37 stig og hrista það vel. Betri suspensjón fæst með því að nota kalcíum penicillín og ber að nota það, ef fáanlegt er. Við hita undir 10 stigum heldur suspensjónin fullum styrkleika í meir en mánuð. Venjulegur skammtur er lcc. Ofangreindar lyfj aformúlur með penicillíni, eru í samræmi við formúlur, sem nú eru notaðar viða um heim. INJECTABILE B-COMPLEX 1 cc inniheldur 0,5 mg af ríbóflavíni, 10 mg af nikotínamíði, 2 mg af kalcíum pantoþenati, 1 mg af pyrídoxín hydroklóríði og 5 mg af tíamín hydroklóríði. Formúlan er þessi: Riboflavinum gm 0,05 Nicontinamidum (niacinamidum) — 1,00 Calcii pantothenas — 0,20 Pyridoxini hydrochloridum — 0,10 Thiamini hydrochloridum — 0,50 Natrii chloridum — 0,80 Acidum hydrochloridum n/10 (ca. gm 3) q.s. Aqva redestillata N.F.VII ad 100 cc Natríum klóríðið er leyst upp í 90 cc af tví- eimaða vatniu. Ríbóflavíninu er bætt út í og blandan er hituð, þar til það er uppleyst. Upplausnin er látin kólna, og er hinum efnun- um síðan bætt út í eftir röð. Upplausnin er þá stillt á pH=3,8—4,2 með n/10 Hcl (skal gefa sterk-gula reaksjón með metyl-orangi-I en sterk-rauða reaksjón með metyl-rautt-I). Mælt upp í 100 cc með tvíeimuðu vatni og filtrerað. Steriliserað í autoklava við 120°C í 20 mín. B-complex upplausnir halda bezt gildi sínu við pH=3,5—4,5. Lyfið er ýmist gefið í æð eða vef. Innflúenzu vírus vaccín, sem herir Banda- manna hafa notað með góðum árangri, er nú að koma á markaðinn til almenningsnota. Það gefur vernd gegn A og B tegund inn- flúenzu vírusa, en ekki gegn innflúenzu, sem stafar af öðrum orsökum. F ARMASIA 13

x

Farmasía

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Farmasía
https://timarit.is/publication/1978

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.