Leikskrár Þjóðleikhússins - 17.10.1952, Page 21
HÖFUNDURINN
Jan de Ilartog.
Jan dc Hartog cr Hollendingur að ætt og uppeldi. Hann er sonur dr. A. H.
de ITartogs prófessors og konu hans, fæddur 22. apríl 1014 í Ilaarlem í Hollandi.
Að loknu skólanámi fór Jan de Ilartog í siglingar, var háseti og kyndari á
hollenzkum skipum, cn árin fvrir ófriðinn var hann í þjónustu hafnarlögregl-
uiinar í Amsterdam og skrifaði jafnframt smáletursgreinar í blöð og leynilög-
reglusögur. Arið lí)3G kom út fyrsta skáldsaga hans, Ave Caesar, en á þessu
sviði vann hann fyrst viðurkenningu með skáldsögunni „Heiður HolIands“, sem
kom út 1940 og í 22. prentun 1950, auk þess þýdd á fjölda tungumála. Af leik-
ritum Jan de Hartogs eru kunnust „Schipper naast god“ (í enskri þýðingu:
„Skipper next to God“) og „The Fourposter“ (Rekkjan), en kvikmyndahandrit
hefur hann skrifað nokkur, eitt með tengdaföður sínum, enska leikritahöfund-
inum J. B. Priestley.
Þegar Þjóðverjar ruddust inn í Holland, fór Jan de Hartog huldu liöfði um
hríð en tókst í apríl-mánuði 1943 að flýja til Englands og tók þar borgararétt.
Þar var leikrit hans „Skipper next to God“ sýnt í Embassy-leikhúsinu í London
(Frarnh. á bls. 21).
[ ]