Kristilegt skólablað - 01.09.1944, Blaðsíða 4
KRISTILEGT SKÓLABLAÐ
ur oss syndirnar og hreinsar oss af öllu rang-
læti“. — Og ég minnist þess, að þessi kapítuli
varð mér einmitt til lijálpar, þegar ég háði bar-
áttuna um það, livort ég ætti að lifa lifanda
Guði eða þjóna heiminum. Guði séu þakkir
fyrir það, að liann hefir frelsað mig frá heim-
inum og frá eilífri glötun. „Hann dró mig upp
úr glötunargröfinni, upp úr hinni botnlausu
leðju og veitti mér fótfestu á kletti“ (Sálm.
40, 2—3).
En þú, ungi vinur, sem lest þessar línur,
átt þú frið við Guð? Hefir þú tekið á móti
jesú Kristi sem þínum persónulegum frelsara ?
Ef þú átt ekki enn frið við Guð, — þá bið
ég þig mn að gera útvalningu þína vissa. Gefðu
Jesú hjarta þitt. Veldu liann, meðan þú enn
ert ungur, en frestaðu því ekki. Komdu til
Jesú eins og þú ert með allar áhyggjur og
syndir, sem á þér hvíla. — „Komið til mín
allir þér, sem erfiðið og þunga ernð hlaðnir,
og ég mun veita yður hvíld“, segir Jesús.
Þegar þú hefir stigið þetta skref frá dauð-
anum til lífsins, þá fær lífið fyrst gildi, fyrir
þig — og í samfélaginu við Krist Jesúm öðl-
ast þú mestu sælu, sem nokkrum manni get-
nr hlotnazt, og ég reyni alls ekki að líkja líf-
inu í Kristi við lífið í heiminuin. Sé ég spurð-
ur, hvers vegna ég vilji ekki fara á þennan
og þennan stað til þess að skemmta mér, þá
svara ég því aðeins, að ég geti ekki skemmt
mér þar. Mér er oft og tíðum kvöl af því að
vera annars staðar en í samfélagi trúaðra. —
Að vísu er samfélagið við Drottin Jesúm ekki
einn óslitinn sælndraumur. Oft koma erfiðir
reynsluthnar, sem stundum er erfitt að stand-
ast. En engu að síður eru erfiðleikarnir nauð-
synlegir, því að þeir kenna mér að minnsta
kosti margt. Stundum t. d. lifir kristinn mað-
ur ekki mjög innilegu bænasamfélagi við Drott-
in — og það hlýt ég að segja um mig, en erf-
iðleikarnir kenna mér að flýja algerlega í faðm
Jesú — þá er bænin hið eina, sem getur hjálp-
að hrelldri samvizku. Og ég skoða mótlætið
líka sem kærleik Guðs, alveg eins og allar aðr-
ar gjafir hans, það er gjöf til mín einmitt til
þess gert, að ég leiti enn innilegra samfélags
við Drottin Jesúm, —- „því að Drottinn agar
þann, sem hann elskar og liirtir harðlega hvern
þann son, sem hann að sér tekur“.
Ungi vinur. Jesús elskar þig líka. Hann dó
á krossinum fyrir mínar syndir — fyrir þín-
ar syndir, og hann vill líka afmá þær og aldrei
framar minnast þeirra. Hið eina, sem þú þarft
að gera, er að krjúpa niður við krossinn og
taka á móti Jesú Kristi sem þínum persónu-
legmn frelsara. Þá fyrst, þegar þú hefir feng-
ið fyrirgefningu allra þinna synda — þá fyrst
verður gleði þín fullkomin. — „Eg hefi feykt
burt misgerðum þínum eins og þoku og synd-
um þínum eins og skýi, liverf aftur til mín.
því að ég frelsa þig“ (Jes. 44, 22).
Heilræði
Kristinn maður, sem heíir sól réttlætisins
í hjarta sínu, flytur sólskin með sér, hvert sem
liann fer.
Þú átt aldrei að tala um yfirsjónir annarra.
Þú átt aldrei að fara að heiman með óvin-
gjarnleg orð á vörmn.
Þú átt aldrei að lilæja að óförum annarra.
Þú átt aldrei að gefa gjöf til þess að fá liana
endurgoldna.
Þú átt aldrei að lofa án þess að efna.
Þú átt aldrei að vera með vondum félögum.
Sæktu góðan félagsskap — eða vertu einn.
Þú átt aldrei að hefna þín.
Þú átt aldrei að vanrækja tækifæri til þess
að láta gott af þér leiða.
Fótspor þín á leiðinni til himins eru betri
leiðbeining fyrir aðra, heldur en lýsing þín á
veginum.
Viljir þú verða andlega sinnaðri, ættir þú
að tala meira við Guð en minna við menn.
Hvert fyrirheit Guðs er jafn áreiðanlegt og
gangur himintunglanna.
9