Kristilegt skólablað - 01.09.1944, Side 9
KRISTILEGT SKÓLABLAÐ
HVERSVEGNA ÉG ER KRISTINN
Jónas Gíslason.
Hvers vegna er ég kristinn? Þessari spurn-
ingu er auðvelt að svara. Eg er kristinn vegna
þess, að ég trúi á Jesúm Krist, Guðs son. Ég
fann, að kall Jesú Krists hljómaði til mín, og
þá sá ég, að ég var syndari, sem þurfti á frels-
ara að lialda. Ég fann, að ég með synd minni
liafði fyrirgert sonarréttinum lijá Guði. En
Guði sé lof fyrir það, að ég sá einnig dýrð
Guðs, sem birtist oss mönnunum í syni hans,
Jesú Kristi. Það var þess vegna, að ég gekk
honimi á hönd. Það er þess vegna, að ég er
kristinn.
En þó að vér höfum gengið Jesú Kristi á
liönd og lielgað honum líf vort, þá er síður en
svo, að vér álítum oss flekklausa og hreina
frammi fyrir Guði. Þvert á móti. Vér sjáum
glöggt vora eigin synd og hryggjumst yfir
lienni, en huggun vor er fólgin í blóði Jesú
Krists.
Það hefir verið komizt svo að orði, að það
sé aðeins eitt, sem Guð ekki sér, en það eru
þær syndir, sein huldar liafa verið með blóði
Krists.
í einu af bréfum sínmn víkur Páll postuli
einmitt að þessu marki, sem allir kristnir menn
eiga að keppa að. „Ekki er svo, að ég liafi þeg-
ar náð því eða sé þegar fullkominn, en ég keppi
eftir því, ef ég skyldi geta höndlað það, með
því að ég er höndlaður af Kristi“ (Fil. 3, 12.).
Það er einmitt þetta mark, sem vér keppum
að. Vér berjumst gegn syndinni í krafti Krists
og vér munum sigra að lokum, þrátt fyrir all-
an veikleika vorn og breyskleika, því að Guð
hefir gefið oss sigurinn. En ef vér reynum að
berjast í eigin krafti, þá hljótum vér að bíða
ósigur og falla fyrir syndinni. Eg hefi fundið
það, og það er þess vegna, sem ég trúi á Jesúm
Krist. Ég veit, að „Það orð er satt og í alla
staði þess vert, að við því sé tekið, að Kristur
Jesús kom í heiminn til að frelsa synduga
menn, og er ég þeirra fremstur“ (I. Tím. 1,
15.).
Hversu sælt er það ekki, að eiga vin og frels-
ara, sem vér getum algerlega treyst í stóru og
smáu. — Átt þú þennan vin og frelsara? Hef-
ir þú tekið á móti lionum inn í líf þitt? Hefir
þú gefizt honum, sem gaf sjálfan sig til lausn-
argjalds fyrir oss mennina til að sætta oss við
Guð? Ef þú hefir ekki gert það, þá gerðu það
strax. Nú er náðartími. Allt er fullkomnað frá
hans liendi. Það stendur aðeins á þér. Villt
þú ekki koma til Iians og játa syndir þínar
frammi fyrir honrnn? Þii þarft ekkert annað
að gera. Þá er hann trúr og réttlátur og fyrir-
gefur þér allar þínar misgjörðir.
Ef þér finnst erfitt að slíta þig frá heimin-
um, þá eru til tvö ráð handa þér. Þú skalt lesa
Guðs orð með einlægum huga, og þú skalt
biðja Guð. Ef þú breytir samkvæmt þessum
ráðum, þá veit ég, að þú munt öðlast frið við
Guð. Jesús Kristur sagði sjálfur: „Komið til
mín allir þér, sem erfiðið og þunga eruð hlaðn-
ir, og ég mun veita yður hvíld“ (Matt. 11, 28.).
Ef þú leitar til lians, þá munt þú komast að
raun um, að hver sá syndari, sem til lians leit-
ar, getur eignazt öruggt athvarf hjá Guði, ef
hann aðeins leitar til lians í einlægni. En um-
fram allt verðum vér að muna, að það er „blóð
7