Skák


Skák - 15.02.1956, Page 14

Skák - 15.02.1956, Page 14
Ai innlendum vettvangi Frn Taflfálngi S(okks«*yrsir Nýlokið er innanfélagskeppni, og var teflt í tveim flokkum. — í I. flokki varð efstur Hannes Ing- varsson, hlaut 5% vinning. Röðin í I. flokki varð annars þessi: 1. Hannes Ingvarsson 5% v. 2. Gunnar Jósteinsson 4 v. 3.—5. Guðfinnur Ottósson 3 v. 3.—5. Óskar Eyjólfsson 3 v. 3.—5. Frímann Sigurösson 3 v. 6. Sigurður Bjarnason 1% v. 7. Pétur Guðmundsson 1 v. í II. flokki varð röðin þessi: 1.—2. Hjörtur Sæmundsson 2% v. 1.—2. Helgi Guðmundsson 2% v. 3. Jón Hraundal 1 v. 4. Guðjón Bjarnason 0 v. Hraðskákkeppni var háð að mót- inu loknu og sigraði Frímann Sig- urðsson, hlaut 7 vinninga. Aðalfundur félagsins var hald- inn 10. febr. s.l. Stjórnin var öll endurkosin, en hana skipa þeir Frírnann Sigurðsson, formaður, Óska'r Eyjólfsson, varaformaður, Björgvin Sigurðsson, ritari, Pétur Guðmundsson, gjaldkeri, og Guð- finnur Ottósson, meðstj. Hin árlega sveitakeppni taflfé- laganna í Arnessýslu fór fram fyrir stuttu síðan. Fjögur félög tóku þátt í keppninni og var teflt um vandaðan farandbikar. — Úr- slit urðu þau, að Taflfélag Stokks- eyrar sigraði, hlaut 17 v. af 30. Teflt var á 10 boröum. — Önnur úrslit, sjá töflu. 1 2 3 4 V. 1. Taflfélag Stokkseyrar — 5% 6 5% 17 2. Taflfélag Selfoss 4% — 5% 6% 16% 3. Taflfélag Hraungerðishrepps 4 4Ú2 — 6 14% 4. Taflfélag Hveragerðis 4 % 3% 4 — 12 Fyrir nokkru síðan fór fram símskákakeppni á 8 borðum við Tafl- félag Patreksfjarðar, og sigruðu Stokkseyringar með 6 v. gegn 2. — Einstök úrslit urðu þessi: Stokkseyri: 1. Tómas Böðvarsson ........ % 2. Hannes Ingvarsson ....... 1 3. Gunnar Jósteinsson ...... 1 4. Guðfinnur Ottósson ...... % 5. Óskar Eyjólfsson ........ % 6. Frímann Sigurðsson ...... 1 7. Björgvin Sigurðsson ..... % 8. Sigtryggur Ingvarsson .., 1 6 Patreksf jörður: Þorvaldur Thoroddsen ...... % Snorri Gunnlaugsson ....... 0 Trausti Árnason ........... 0 Dagbjartur Gíslason........ % Gísli Bjarnason ........... % Haraldur Jósteinsson ...... 0 Hannes Finnbogason ........ % Steingrímur Sigfússon ..... 0 2 Eins og sjá má hér að ofan, er starfsemi Taflfélags Stokkseyrar með miklum blóma. Meðlimatala þess er um 30, og húsnæði hefur félagið á Hótel Stokkseyri. T I 1 A $ K n I F E N » A Gjalddagi blaðsins var 1. janúar s.l. Póstkröfur hafa þegar verið sendar til áskrifenda, og er þess vænzt að þeir leysi þær út sem allra fyrst, þvi hagur og velferð blaðsins byggist á því, að ailir geri skil. Fjöltolli Bont Larsens. Við 41 starfsmann Sameinaðra verktaka á Keflavfkurflugvelli 2. febrúar s.l. — Vann 36, tapaði 1 og gerði 4 jafntefli. — Við 51 á Selfossi 3. febr. s.l. Vann 41, tap- aði 6 og gerði 4 jafntefli. — Við 44 stúdenta í Reykjavík 4. febr. Vann 21, tapaði 8 og gerði 15 jafntefli. — Við 81 á vegum T. R. 6. febr. Vann 46, tapaði 9 og gerði 26 jafntefli. AIls tefldi Larsen við 217 manns. Af þeim vann hann 144, tapaði 24 og gerði 49 jafntefli. Hefur hann því hlotið rúm 77%, sem er prýðilegur árangur. Mikla athygli vakti það, hve fljótur Larsen var, en yfirleitt lauk hann fjölteflun- um á 4—5 klst., nema eðlilega því síðasta, sem stóð yfir í tæpar 8 stundir. Verölaunaafhending Sunnudaginn 5. febrúar s.l. efndi stjóm Skáksambands íslands til sameiginlegrar kaffidrykkju og verðlaunaafhendingar í sambandi við einvígi þeirra Friðriks Ólafs- sonar og Bent Larsens, um Norð- urlandatitilinn. — Sigurður Jóns- son, forseti Skáksambands ís- lands, setti hófið. Guðm. Arnlaugs- son flutti ræðu, og rakti hann m. a. sögu Skákþings Norðurlanda. Ambassador Norðmanna, Torgeir Andersen-Rysst, afhenti því næst verðlaun. Bent Larsen hlaut fagr- an bikar, gefinn af Hákoni VII, Noregskonungi. Friðrik hlaut silf- urskál, gefna af borgarstjórn Osló- borgar. — Þessu næst afhenti Sig- urður Jónsson þeim Larsen og Friðrik sérstök heiðursverðlaun Skáksambands íslands, en þau voru kr. 2500 til Larsens, og kr. 1500 til Friðriks, en þeir þökkuðu með nokkrum orðum. — Óperu- söngvaramir Guðmundur Jónsson og Kristinn Hallsson skemmtu með einsöng og tvísöng, en Fritz Weisshapel lék undir. Sátu menn þarna í góðum fagn- aði fram eftir degi, en hófinu lauk um kl. 7 síðdegis. Veizlustjóri var Elís Ó. Guð- mundsson. Skákþinjí Reykjavlkur. Þegar blaðið fór í prentun voru tvær umferöir eftir í meistarafl. (Framh. á bls. 32). 26 S KÁK

x

Skák

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.