Skák - 15.02.1956, Side 24
Fariö
aö ráðum
sigur-
vegarans
frá
Hastings
BRÉFASKÓLI S.í. S.
„Áhugi fyrir skákíþróttiiuii hér á Islandi hefur farió mjög í vöxt nú hin
síðustu árin. Kennsla í þessum efnum hefur þó ýmissa orsaka vegna reyn/.t
örðug viðfangs og lítt gætt utan Reykjavíkur. Það veitti því íslenzkum skák-
unnendun . ærkomið og langþráð tækifæri, þegar Bréfaskóli S. i. S. hóf á sín-
uin vegum skákkennslu, sem Baldur Mölier veitir forstöðu eins og kunnugt er.
Kennslubréfin eru samin af sænska stórmeistaranuin G. Stáhlberg, og
heíur honuin að mínu áliti tekizt einstaklega vel upp. Hami veitir lesendum
sinum haldgóða þekkingu á undirstöðuatriðum skákarinnar, almennt yfirlit
yfir byrjanir og sýnir í stuttu máli ljóslega, hverju ber að keppa að og hvað
ber að varast.
Ég ráðlegg því sérhverjum skákmanni, jafnt byrjanda sem lengra komn-
um, að notfæra -sér þetta einstaka tækifæri. Sá, sem hefur notið þessarar
kennslu, hefur öðlast næga þekkingu og innsýn í skákina til þess að hafa
skemmtun af og er jafnframt undir það búinu að kynna sér skák nánar( ef
hann heíur áhuga á því“.
Friðrik Ólafsson.