Skák


Skák - 15.04.1956, Síða 10

Skák - 15.04.1956, Síða 10
SKÁKÞING REYKJAVÍKUR 1956 Benóný Benediktsson efstur í meistaraflokki. Skákþing Reykjavíkur var háð á tímabilinu 7. febrúar til 12. marz s.l. Þátttaka var mjög glæsileg, eða alls 122 manns, sem skiptust þannig i flokka: í meistaraflokki 22, I. flokki 14, II. flokki 38 og í Unglingaflokki 48. Síðastnefndi flokkurinn var stofnaður í ofan- greindu móti, og sýnir þátttakan ijóslega hinn vaxandi áhuga ungu kynslóðarinnar fyrir skákíþrótt- inni. Meistaraflokkur. Þar voru keppendur 22 eins og áður segir, og voru tefldar 9 um- ferðir eftir svissneska kerfinu. — Úrslit urðu þau, að efstur varð Benóný Benediktsson, hiaut 7 v., tapaði einni skák. Með sigri sínum hlýtur hann titilinn Skákmeistari Reykjavíkur 1956, en auk þess öðl- ast hann réttindi til þátttöku í næstu Landsliðskeppni. — Benóný tók forustuna þegar í byrjun og hélt henni fram í síðustu umferð, er hann beið ósigur fyrir Páli Jónssyni. Skákstill Benónýs er oft mjög frumlegur og sérkennilegur. Um hann hefur Guðmundur Arnlaugs- son komist svo að orði: „Benóný Benediktsson er áreið- anlega einn hinna sérkennilegri af íslenzkum skákmönnum. Tafl- mennska hans hvílir meir af eðl- isgáfum en kunnáttu. Taflbyrjun- in er hans veikasta hlið. Hann byggir taflstöðuna hægt og oft þunglamalega, og veitir þá stund- um andstæðingnum færi á að ná yfirtökunum. En í miðtaflinu er Benóný stórhættulegur andstæð- ingur. Hann er taktiskur fyrst og fremst, einfaldar stöður með hrein- um linum eru ekkert fyrir hann, en í gruggugum taflstöðum er hann fullur af taktískum glettum, sem vandi er að sjá við. Og kom- ist hann í bein sóknarfæri, er eins og hann finni beztu leiðina af eðlishvöt ....“. Næstur Benóný og jafn að vinn- ingum, varð Jón Einarsson, tapaði einni skák. En þar sem teflt var eftir svissneska kerfinu, hreppti Benóný Benediktsson, Slcákmeistari Reykjavíkur. Benóný fyrsta sætið samkvæmt stigaútreikningi. Önnur úrslit, sjá töflu. I. flokkur. Þar urðu efstir þeir Bragi Þor- bergsson og Samúel Jónsson, hlutu loy2 V. af 13. — Þeir flytjast báð- ir upp í meistaraflokk, þar eð þeir hlutu 80% vinninga. — Röð kepp- enda varð annars þessi: 1.—2. Bragi Þorbergsson 10V2 v. 1.—2. Samúel Jónsson 10% v. 3.—4. Peter Nagel 9 v. 3.—4. Sigurður Gunnarsson 9 v. 5. Ólafur Magnússon 8J/2 v. 6. Haraldur Sveinbjörns. 7% 7. Gunnar Hvammdal 7 v. 8. Jónas Jónsson 6y2 v. 9. Sigurður Bogason 5% v. 10.—12. Knud Kaaber 4 v. 10.—12. Birgir Ólafsson 4 v. 10. —12. Svavar Svavarsson 4 v. 13. Hákon Hafliðason 1 y2 v. 14. Jóhannes Lárusson % V. 11. flokkur. Þar var keppendum skipt í 4 riðla, og urðu úrslit sem hér segir: A-riðill: 1. Guðmundur Arons- son 8% v., 2. Jóhann Sigurjónsson 7y2 v., 3. Holger Clausen 6 v., 4. Sverrir Bjamason 4% v., 5.—8. Júlíus Loftsson, Gunnar Petersen, Bjöm V. Þórðarson og Magnús Jónsson 4 v. hver, 9. Snorri Jón- asson 2 v., 10. Sveinbjöm Sigurðs- son y2 v. Tveir efstu flytjast upp í I. fl. B-riðill: 1. Ríkharður Krist- jánsson 6% v., 2.—3. Þorsteinn Priðjónsson og Brynleifur Jónsson 6 v., 4. Ragnar Kristjánsson 4% V., 5.—6. Einar Lárusson og Hann- es R. Jónsson 3 y2 v., 7.—8. Gunn- laugur Hjálmarsson og Haraldur Sæmundsson 3 v., 9. Baldur Þórð- arson 0 v. Efsti maður flytzt upp í I. flokk. C-riðill: 1. Gylfi Magnússon 7% V., 2. Ólafur Gíslason 6y2 v., 3. Stefán Briem 6 v., 4. Þórketill Sigurðsson 5% v., 5.—6. Magnús Kristinsson og Marteinn Davíðs- son 4y2 v., 7. Egill Valgeirsson 4 V., 8. Björgvin Guðmundsson 3 v., 9. Oddur Þorleifsson 2% v„ 10. Sigmar Pétursson 0 v. Efsti maður flytzt upp í I. flokk. D-riðill: 1.—2. Grétar Haralds- son og Bjöm Höskuldsson 6% v„ 3. Finnbogi Ingibergsson 5J/2 v„ 4. Guðmundur Jónasson 4% v„ 5. —8. Jafet Sigurðsson, Agnar Höskuldsson, Sigvaldi Sigurgeirs- son og Magnús Sólmundarson 3 v„ 9. Daníel Benjamínsson 1 v. Tveir efstu flytjast upp í I. fl. U nglingaf Iokkur. Þar voru tefldar 9 umferðir eft- 4D S KAK

x

Skák

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.