Alþýðublaðið - 12.02.1926, Qupperneq 2
2
ALÞ.ÝÐUBLAÐID
„Frjálslyndi“ flokkurinn.
„Siálfstæðis“-forsprakkarnir,f)eir
Benedikt Sveinsson, Jakob Möller
og Sig. Eggerz, boðuðu til fundar
í Bárubúð á sunnudaginn var. Var
par samþykt tillaga um að „stofna
félag frjálslyndra manna í Reykja-
vík“ og kosin nefnd til að undir-
búa „lög og stefnuskrá" fyrir fé-
lagið. Er í „Vísi“ 9. þ. m. alllöng
ritstjórnargrein um þörfina á slík-
um félagsskap. Ekki er vel ljóst,
hverjir eigi að mynda þennan
flokk, því að hann á ekki að
verða flokkur neinnar stéttar.
Segir í greininni allrétt frá því,
hverjir skipi hina nú verandi
flokka í landinu, eða fyrir hverra
hag þeir starfi hver um sig:
„Framsóknar“-flokkurinn fyrir
baapdur,, íhaldsflokkurinn hefir
það að „markmiði, að hlynna að
efnuðustu mönnum þjóðfélags-
ins“, og jafnaðarmannaflokkurinn
beri hag verkamanna og allrar al-
þýðu fyrir brjósti. Eigi nú hvorki
bændur, efnamenn né verkamenn
að skipa hinn nýja flokk, þá þarf
varla að óttast þrengsli undir
vængjum þessa nýja félags.
Alplngi.
Neðri deild.
Þar var í fyrra dag frv. um
landsreikninga 1924 og um fjár-
aukalög s. á, vísað til fjárhags-
nefndar og 2. umr., og fjárlaga-
frv. vísað til fjármálanefndar,
eftir að Jón Þorláksson hafði
haldið venjulega fjármálaræðu.
í gær var frv. um fræðslu barna
vísað til 2. umr. og mentamála-
nefndar, bryggjugerð í Borgarnesi
til 2. umr. og samgöngumálan.,
og ákveðnar tvær umr. um hvora
þingsál.till. um sig, um símasam-
bandið við útlönd og um kosn-
ingu þriggja manna milliþinga-
nefndar til að gera tillögur um
síldveiðalöggjöf. Síðari till. er frá
Jör. Br., en hin frá stjórninni.
Efri deild.
3. fundur var í fyrra dag. Dag-
skrá: 1. Frv. um skipströnd og
vogrek. 2. Frv. urn veitingasölu,
gistihúshald o. fl. 3. Frv. um
happdrætti og hlutaveltur og 4.
Frumvarp um raforkuvirki. Öll
stj.frv. Voru þau samþ. til 2. umr.
og þeim vísað til allsherjar-
nefndar.
4. fundur var í gær. Á dagskrá
voru 3 mál:
1. Frv. um löggilta endurskoð-
endur (stj.frv. 13); 1. umr. Magnús
atvinnumálaráðherra Guðmundss.
reifaði málið. Gat hann þess, að
það hefði verið á ferðinni á þing-
i{pu í 'fyrra og verið samþ. í neðri
deild, en dagað uppi i efri deild.
Var frv. samþ. til 2. umr. og því
vísað til allsherjarnefndar.
2. Frv. um kosningar í mál-
efnum sveita og kaupstaða (stj.-
frv. 16); 1. umr. Magnús Guðm.
fór nokkrum orðum um frum-
varpið. Gat hann þess, að á síð-
asta þingi hefði verið skorað á
stjórnina að endurskoða sveita-
stjórna- og fátækra-löggjöfina, og
kvað hann frv. þetta vera ávöxt
þeirrar áskorunar. Kvað hann fátt
nýmæla í frv. annað en ákvæðið
um kosning borgarstjóra í Reykja-
vík, — að öðru leyti væri það
samsafn ýmissa gildandi laga-
ákvæða. Ingvar Pálmason gerði
nokkrar athugasemdir við frv., er
atvinnumálaráðh. svaraði. Frv.
var samþ. til 2. umr. og því vísað
til allsherjarnefndar.
3. Frv. um heimild fyrir ríkis-
stjórnina til að ganga inn í við-
bótarsamning við myntsamband
Norðurlanda. (Stj.frv. 5); 1. umr.
Jón Þorláksson fjármálaráðherra
skýrði tilgang frv., er fer í þá átt,
að erlend skiftimynt (Norður-
landamyntin) verði afnumin, sem
íöglegur gjaldeyrir hér á landi.
Frv. var samþ. til 2. umr. og
því vísað til allsherjarnefndar.
Tilkynning frá Fréttastofunni.
í vikublaðinu „íslendingi“, sem
gefið er út á Akureyri, kom þ. 5.
þ. m. fréttaklausu um stýfingu
dönsku krónunnar og er klausa
þessi birt með fregnum frá Frétta-
stofunni. Fréttaklausa þessi er ekki
frá fréttastofunni, og eignaði blað-
ið henni hana af vangá.
Fréttastofu Blaðamannafélags
Islands,
10. febrúar 1926/
A. Thorsteinsson.
Handavinnunámskeið.
Verkamannakonur ættu vegna
dætra sinna að gefa gaum handa-
vinnunámskeiðum þeim, sem Hall-
dóra Bjarnadóttir hefir komið af
stað hér og fyrir norðan. Á nám-
skeiðum þessum, sem standa í 3
mánuði, þrjá tíma á dag, er kend-
ur fatasaumur, viðgerð á fatnaði,
hekl og prjón og hannyrðir. Er
einum degi vikunnar varið til
hannyrðanna, öðrum degi til fata-
viðgerðar og til að prjóna og
hekla, en fjórir dagar fara til
fatasaums. Námskeið þetta er í
nýja Landsbankahúsinu, og var
þar fyrir nokkrum dögum til sýn-
is fatnaður og hannyrðir stúlkna
þeirra, er tóku þátt í nýafloknu
námskeiði. Alls voru þátttakendur
20 stúlkur, sem störfuðu í tveimur
flokkum. Gjaldið fyrir þátttöku
er 50 krónur fyrir allan tímann,
en verður sennilega töluvert
minna, ef bæjarsjóður leggur eitt-
hvað fram seinna, sem er. mjög
sennilegt. Kennari við námskeið-
ið er Anna Jónsdóttir. Halldóra
kennir ekki sjálf, en hefir komið
málinu af stað, og stjórnar fjár-
málunum af áhuga fyrir málefn-
inu.
Á þessu nýafstaðna riámskeiði
voru búnar til um 400 flíkur og
hannyrðaverk, og var um helm-
ingur af því á sýningunni, er áður
var nefnd. Þar var kvenfatnaður,
margvíslegur, t. d. peysuföt, káp-
ur og kjólar. Enn fremur barna-
fatnaður, drengjaföt og margvís-
legur nærfatnaður á unga og
gamla, karla og konur, og sumt
af honum útsaumað og bróderað.
Námskeið þessi hafa nú verið
haldin í 14 ár á Akureyri og fá
þar styrk bæði úr bæjarsjóði og
landssjóði. Eru þau einkum ætluð
fyrir kvenfólk innan tvítugs, en
eru auðvitað ekki fastákveðin við
ákveðinn aldur.
Gefið nú þessu gaum, alþýðu-
dætur! ó.
Mahatma fiandhi
hættir stjörnmálastarfsemi sinni.
Samkvæmt síðustu erlendum blöð-
um hefir hin alkunna sjálfstæðis-
hetja Indverja, Mahatma Gandhi,