Bautasteinn - 01.04.2004, Side 5

Bautasteinn - 01.04.2004, Side 5
Nú á dögunum komu til landsins tveir danskir steinsmiðir frá fyrirtækinu Poul Hansens Stenhuggeri. Þeir félagar, Flemming Brian Nielsen og Rico Skovgaard, voru hingað komnir á vegum Kirkjugarða Reykjavíkur til að ástands- skoða Hólavallagarð í Reykjavík, en ætl- unin er að þeir muni vinna að viðgerðum á ýmsum eldri steinum í garðinum. Vinn- an við viðgerðirnar felst m.a. í því að taka legsteinana niður og smíða nýjar undir- stöður undir þá, hreinsa steinana og gera við þá og setja þá svo upp aftur. Danirnir hafa áralanga reynslu af sambærilegri vinnu í Kaupmannahöfn og víðar, en átak hefur verið gert í varðveislu minningar- marka í mörgum dönskum görðum eftir að í óefni stefndi. Þeir segja viðbrögð Dana góð við þeirri vinnu og fólk kunni að meta það þegar kirkjugörðunum er vel viðhaldið. Aðspurðir segja þeir mikla vinnu framundan hér á landi og margt megi laga í Hólavallagarði. „Steinarnir hér eru þó margir hverjir í ágætu ástandi, en undirstöðurnar slæmar. Megináherslan verður því á viðgerðir og endurbyggingu á undirstöðum og svo hreinsun steinanna. Það er gaman að sjá hversu marga glæsi- lega steina er að finna hér, stóra steina sem hefur þurft að flytja inn með ærnum tilkostnaði. „Starfsmenn KGRP munu sjá um viðgerðir á undirstöðum og undirbúa komu Dananna sem munu snúa aftur til Íslands í ágúst og vinna þá að viðgerðun- um um tveggja vikna skeið. Þeir segjast hlakka til og að vinnan á Íslandi sé góð til- breyting frá vinnunni heima í Danmörku þar sem mestur tími þeirra fer í að vinna fyrir listamenn og myndhöggvara. ánægju með nýja garðinn og við erum spenntir að sjá hvernig hann kemur út í sumar með meiri gróanda.“ Safnaðarheimilið orðið þjónustuhús Í garðinum er lítið þjónustuhús sem áður gegndi hlutverki safnaðarheimilis, en nú stendur yfir bygging á 80 fm safnaðarheimili við kirkjuna sem leysir það gamla af hólmi. Þjónustuhúsið mun hýsa verkfæri og vinnuaðstöðu fyrir umsjónarnarmenn garðsins, auk þess sem til stendur að hengja upplýsingar um garðinn og starfsemi hans utan á húsið. Aðstaða í nýja garðinum er því öll að verða með besta móti og er rétt að óska Rangæingum til hamingju með þennan fallega nýja kirkjugarð sem svo vel hefur tekist til með. 5 Mikil vinna framundan - segja danskir steinsmiðir um ástand legsteina í Hólavallagarði Þetta fallega minnismerki stendur í miðjum kirkjugarðinum. Séð yfir garðinn. Svona leit svæðið út áður en framkvæmdir hófust. Ljósm.: ÓH Dönsku steinsmiðirnir frá Poul Hansens Stenhuggeri. Flemming Brian Nielsen og Rico Skovgaard við einn af stærri steinunum í Hólavallagarði. Ljósm.: HGG

x

Bautasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bautasteinn
https://timarit.is/publication/2037

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.