Alþýðublaðið - 15.02.1926, Qupperneq 3
ALÞ.ÝÐUBL'AÐID
3
mál á dagskrá n. d. í dag. —
Fyrra mál á dagskránni er um
lokunartíma sölubúða, þar með
taldar rakarastofur, og er frá Jak.
Möller.
Neðri deild.
Þar var i fyrra dag stjórnarfrv.
um lærða skólann vísað til 2. umr.
og mentamálanefndar og þingsál,-
till. um sæsímasímbandið við út-
lönd (þ. e. samþ. á samningnum
við „Mikla norræna ritsmafél.“)
vísað til samgöngumálanefndar
og þingsál. um skipun milliþinga-
nefndar til að gera tillögur um
síldveiðalöggjöf vísað til sjávar-
útvegsnefndar og fyrri umr. um
þær báðar frestað.
Frv. urn lærða skólann hefir
Bjarni frá Vogi sett saman að
nýju, en Jón Ófeigsson kennari
síðan fengið því breytt að nokkru.
Sarnkv. því skal latína vera það
erlent mál, sem mest sé kent í
neðri bekkjunum og málfræði-
deildinni, en í þessu frv. er latínu-
kunnátta þó ekki heimtuð við inn-
tökupróf í 1. deild. Heimavistir
skulu vern við skólann fyrir
a. m. k. 50 nemendur. Eitt skil-
yrðanna fyrir því að verða skip-
aður kennari við skólann, er, að
umsækjandinn hafi reynst hafa
„þá skapshöfn, sem kennurum er
nauðsyn!eg“. Kennari fái starfs-
hvíld 10. hvert ár. — Aðalvan-
kanturinn á þessu frv. er sá, að
það gerir fulltíða mönnum lítt
eða ekki kleift að leggja út á
skólabrautina. Smærri breytingar,
sem til bóta horfa, vega ekki þar
á móti. Draugur verður aldrei
gerður að manni né latínan að
lifandi máli, hvað svo sem Bjarni
segir.
Við umr. um síldveiðamálið
rninti Jón Baldvinsson á, að bezta
lausnin á því er, að samþ. einka-
sölu ríkisins á útfluttri síld, eins
og hann hefir tvívegis flutt frv.
um á alþingi, og að útvega fleiri
erlenda markaði. Bj. Líndal ætl-
aði að andmæla einkasölu, en tal-
aði óviljandi með henni, því að
hann varð að viðurkenna, að ein-
stakir menn myndu ekki vilja
leggja mikið af mörkum til að
útvega nýja markaði, sem svo
kœmu peim sjálfum ekki ad meiru
gagni en ödrum.
I efri deild var skotið á fundi
til að útbýta þingskjölum.
Um claijmsi og veglnit.
Næturlæknir
er í nótt Daníel Fjeldsted, Lauga-
vegi 38. Sími 1561.
Maður missir framan af tveimur
fingrum.
Guðm. Kr. Magnússon, stýrim. ð
Lord Fisher frá Hafnarfirði, varð
fyrir því slysi fyrir stuttu, að missa
frarnan af tveimur fingrum. Lenti
höndin í akkerisvindunni.
Jafnaðarmannafélagsfundur
er kl. 8 í kvöld í Bárubúð, uppi.
Félagar! Fjölmennið!
„Gluggar",
eftir John Galswbrthy, verða
leiknir i kvöld. Alþingi og bæjar-
stjórn er boðið.
Togararnir.
Apríl kom af veiðum í fyrra dag
með 900 kassa, en Mai, Tryggvi
gamli og Otur frá Englandi í gær.
Leiknir kom í morgun til að fá sér
kol. Hann hafði fengið 67 tunnur í
salt. Leggur upp á Patreksfirði. í
gærkveldi kom inn enskur línuveið-
ari, bilaður, og þýzkur togari til að
fá sér kol. Einnig kom enskur togari
inn í morgun.
Jafnaðarmannafél. íslands
heldur fund miðvikud. 17. þ. m., en
ekki á morgun, eins og tilkynt var á
síðasta fundi. Félags-menn og -kon-
ur! Þenna fund þurfið þið öll að
sækja! Rætt verður um bardagaað-
ferðir hinna ýmsu jafnaðarmanna.
Fundurinn verður í kaupþingssaln-
um og hefst kl. 8.
ísfisksala.
Skaliagrímur seldi nýlega afla
sinn fyrir 900 sterlingspund.
Guðfræðipröfi
lauk í fyrra dag Sigurður Einars-
son tneð hárri I. einkunn, 113Va stigs.
Veðrið.
Hiti mestur 5 stig, minstur 2 st.
frost. Átt víðast austlæg, hæg, eða
logn. Loftvægislægð fyrir vestan
land og önnur fyrir sunnan Færeyj-
ar á norðausturleið. Veðurspá: Hæg
suðaustanátt og nokkur úrkoma á
Suðvesturlandi. Breytileg vindstaða
og hægviðri norðan lands og austan.
I nótt sennilega vaxandi norðaustan-
átt á Austurlandi, hægur vestan
lands.
Ofviðri
með miklu regni gerði hér í fyrra
kvöld í nokkrar stundir.
Um brunann
í kjallaranum undir- „Gamla bíó“
hefir sannast, að kviknaði út frá
rafmagnsleiðslu. Salt var geymt
þarna í kjallaranum, og hafði ein-
angrari rafmagnsleiðslunnar skemst
af þeim sökum.
M 1!®“ Allir reyltja
I Elepliaiif
H
H
i
LjúSf eugar og kaldar
Einknsalar á Islandl.
Tóbaksve^lun Islands h.f.
„Hvar færðu svona gott fiskfars?11
„Ég kaupi það i verzl. Kjöt og
Fiskur; þar fæ ég nýtt kjötfars og fisk-
fars á hverjum morgni. Hefirðu ekki
reynt það?“
„Nei; en ég liefi heyrt til vélanna,
þegar ég kem þangað inn; þeir eru
víst nýbúnir að fá þær.“
„Já, og síðan þeir fengu vélarnar,
er farsið hjá þeim svo dæmalaust gott;
það hæla þvi líka allir, sem hafa
bragðað það. Það er sent heim, ef
simað er eftir því, en vissara er að
hringja snemma, því oft er mikið að
gera.“
„Ég hringi bara strax og panta
í sima 828.“
Verzl. Kjöt og Fiskur,
Laugavegi 48.
Jafnaðarmannafélags-
fundur
i Báru uppi kl 8 í kvöld. Á dag-
skrá viðurkenning sóvétlýðveldis-
íns, siðustu fréttir af rikislögreglunni,
kaupdeilan o. fl. Kornið með rauðu
bækurnar! Stjórnin.