Skák - 15.02.1983, Síða 34
FYRSTA SKÁKMÓTED Á ÚTHAFINU
Farskip hafa í samvinnu við tímaritið Skák ákveðið að efna til fyrsta skákmótsins á úthafinu,
en samkvæmt bestu heimildum hefur slíkt mót aldrei farið fram áður, þótt teflt hafi verið um
borð í skipum og einhverri stuttri siglingu á Miðjarðarhafinu. Þótt naumur tími sé til stefnu
hefur verið ákveðið að gera úr þessu eins mikinn viðburð og kostur er, enda í ráðagerðinni að
halda slíkt mót árlega og færa það y.fir á alþjóðlegan vettvang, ef nægur áhugi reynist vera fyrir
hendi. — Hugur Farskipsmanna til skáklistarinnar og þessa viðburðar Ijómar skærast af hinu
lága verði sem í boði er til væntanlegra þátttakenda og jafnframt hinum stórglæsilegu verð-
launum. Fullvíst er að reynt verður að vanda til þessarar einstöku ferðar á sem bestan veg.
FYRIRKOMULAG MÓTSINS
Öll umgjörð mótsins verður með þeim hætti að samvinnu hafi á sem bestan hátt, skákmót og
ánægjulegt ferðalag fyrir alla fjölskylduna. Þannig verður tími manna sem mest til ráðstöfunar
að eigin geðþótta, en um borð er afar margt forvitnilegt og skemmtilegt til dægrastyttingar. —
Skákmótið sjálft verður með þeim hætti að tefldar verða sex umferðir eftir hinu vinsæla „Skák“-
Monradkerfi og umhugsunartími verður 1 klst. á mann fyrir 30 fyrstu leikina og 30 mínútur til
að Ijúka skákinni. Þá er gert ráð fyrir að menn skrifi a. m. k. 30 fyrstu leiki hverrar skákar og
helst alla. Tvær fyrstu umferðirnar verða þó með öðru sniði, eða 45 mín. á mann fyrir alla skák-
ina, en þær tvær umferðir eru tefldar sama daginn. Allar umferðirnar verða tefldar milli kl. 15
og 18 daglega og fyrsta umferðin hefst kl. 15 fimmtudaginn 18. ágúst og önnur umferð kl.
16.30 sama dag. Síðan verður ein urnferð á dag, föstudag, laugardag, sunnudag og mánudag,
og verðlaunaafhending þriðjudag kl. 16.00. Ef færi gefst og ástæða þykir til, verður farið í gegn-
um helstu skákir hverrar umferðar eftir nánari ákvörðun. Sá fyrirvari er þó hafður á um tíma-
setningu að færa megi til ef nauðsyn krefur.
VERÐLAUN ALLS 85.000 KR.
Nú eiga allir möguleika á verðlaunum
OPINN FLOKKUR
1. verðlaun kr. 20.000 2. verðlaun kr. 15.000 3. verðlaun kr. 10.000
Auk þess verða veitt eftirfarandi aukaverðlaun:
ELO 2200-2000:
1. verðlaun kr. 5000 2. verðlaun kr. 3000 3. verðlaun kr. 2000
ELO 2000-1800:
1. verðlaun kr. 5000 2. verðlaun kr. 3000 3. verðlaun kr. 2000
ELO 1800 og minna:
1. verðlaun kr. 5000 2. verðlaun kr. 3000 3. verðlaun kr. 2000
„Old boys“ verðlaun, Kvennaverðlaun, Unglingaverðlaun, Óvæntustu úrslitin: Ólympíubókin,
kr. 2500.