Skák - 15.02.1983, Page 65
Erlingur vera öruggur með 3.
sætið, þar sem Haukur hafði
tapað fyrir Jóni Torfasyni og
var með 4 v., en einhverra hluta
vegna kemur Jón út með 0 á
mótstöflunni. Dettur mér í hug
að hann hafi annaðhvort hætt
í mótinu alveg undir lokin eða
ekki hirt um að senda skákstjóra
afrit af skákum sínum. A þetta
er minnst hér til að undirstrika,
að skák er ekki lokið fyrr en af-
rit af henni hefur verið sent
skákstjóra, svo ekki sé minnst á
þau leiðindi sem það hefur í för
með sér þegar raðast í verð-
launasæti með þessum hætti. —
Þess eru því miður of mörg
dæmi, hefur það eflaust verið
súrt í broti fyrir Erling, sem
þarna tók þátt í sínu fyrsta bréf-
skákmóti og eina til þessa, en
vonandi að hann birtist fljótlega
aftur meðal keppenda.
Um árangur Hauks er það að
segja að hann var sá eini er
tókst að vinna sigurvegarann.
Það var eftir ónákvæman leik af
hendi andstæðingsins snemma
tafls og tókst Árna aldrei að
rétta úr kútnum eftir það. —
Haukur varð fyrir alvarlegu á-
falli meðan mótið stóð yfir og
hefur það hugsanlega haft ein-
hver áhrif á taflmennskuna.
Næstir komu ofanritaður og
Jón Jóhannesson. Við áttum það
sameiginlegt að tefla nú í fyrsta
skipti í landsliðsflokki og miðað
við það hljótum við að geta un-
að vel við árangurinn. Eg fékk
þó talsvert betri útkomu en tafl-
mennskan gaf tilefni til og á ég
þá sérstaklega við skákirnar við
Gísla og Jón Jóhannesson, þar
sem ég mátti teljast mjög hepp-
inn.
Bjarni Magnússon hefur oft
náð betri útkomu en í þessu
móti, hann er og hefur verið
einn virkasti bréfskákmaður
þessa lands og er búinn að tefla
bréfskák á alþjóðavettvangi í
mörg ár. — Tvo neðstu menn
virtist skorta áhuga til að ná
betri árangri en raun ber vitni,
skákstyrkurinn er þó fyrir hendi
til að ná fleiri punktum en nú
varð.
Skákstjóri var Bragi Kristjáns-
son.
Skák nr. 5440.
Hvítt: Gunnar Finnsson.
Svart: Árni Stefánsson.
Drottningarpeðsleikur.
1. d4 d5 2. e3 c5 3. c3 Rf6
4. f4 Rc6 5. Bd3 Bg4 6. Rf3 Hc8
7. 0—0 e6 8. Da4 Bxf3 9. Hxf3
Bd6 10. Rd2 0—0 11. Ddl Dc7
12. Del Re8 13. Hh3 f5 14. Rf3
Rf6 15. Dh4 h6 16. Re5
Leikið með það fyrir augum
að reka riddarann á f6 í burtu,
en gallinn er sá að hvítur er of
liðfár í sókninni. Það er spurn-
ing hvort hvítur hefði ekki bet-
ur leikið 16. Bd2 með það fyrir
augum að koma hróknum á al
í spilið.
16. — Bxe5 17. fxe5 Re4 18.
Dh5 Db6
Þessi leikur sýnir að svartur
ætlar að tefla til vinnings. Ein-
hverjir hefðu eflaust leikið hér
Df7.
19. Bxe4 fxe4 20. Dg4
Hefði hvítur leikið Dg6 gat
svartur gert út um skákina með
20. - Db5 og hvítur verður að
gefa biskupinn á d2 til að forða
máti á fl.
20. — Hf5 21. Hxh6
21. Dg6 hefði verið svarað
með Re7.
21. — cxd4
Það er spurning hvort nú sé
ekki Dg6 besti kosturinn sem
hvíti stendur til boða. Ekki er
að sjá annað en svartur verði að
leika Re7 og eftir 23. Dxe6f
Dxe6 24. Hxe6 er ekki að sjá
annað en hvítur geti barist á-
fram. Lakara fyrir svart er 22. -
Re5 vegna 23. Dh7f Kf7 24.
Df5f exf5 25. Hxb6 axb6 26.
exd4 o. s. frv. Hvítur valdi hins
vegar:
22. Hxe6 Hcf8 23. Hf6
Þvingað og nú fer skjótt að
halla undan fæti fyrir hvítum.
Lokin þarfnast ekki skýringa.
23. — H5xf6 24. exf6 Hxf6
25. Dc8f Kh7 26. Dh3f Kg8 27.
Dc8f Kf7 28. Dd7f Kf8 29.
Dc8f Ke7 30. Dg4 g6 31. Dg3
Db5 32. h4 Dflf 33. Kh2 d3 34.
b3 Ke8 35. Bb2 De2 36. Ba3 d2
37. Dg5 Kf7 38. Dxd5f Kg7
Ert þú áskrifandi að Skák?
SKÁK 63