Skák - 15.02.1990, Page 7
A-FLOKKUR
ELÓ 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 V.
S.Ke. 2385 X /2 1 1 0 1 /2 1 /2 1 1 1 8/2
T.R. 2270 '/2 X 0 ‘/2 1 1 1 1 1 1 1 ‘/2 8/2
UMFB 2285 0 1 X /l 1 0 0 1 1 0 1 1 6/2
T.R. 2245 0 ‘/2 /2 X /2 1 1 /2 0 1/2 1 1 6/2
S.A. 2210 1 0 0 /2 X 0 Vi /2 1 1 1/2 1 6
T.R. 2240 0 0 1 0 1 X Vi 0 /2 1 ‘/2 1 5/2
T.R. 2220 >/2 0 1 0 /2 /2 X 1 1/2 0 1 0 5
T.R. 2255 0 0 0 /2 /2 1 0 X /2 1 1 ‘/2 5
S.A. 2265 >/2 0 0 1 0 ‘/2 /2 /2 X 1 /2 0 4/2
T.R. 2205 0 0 1 /2 0 0 1 0 0 X /2 1 4
2155 0 0 0 0 ‘/2 /2 0 0 /2 1/2 X 1 3
T.R. 2125 0 /2 0 0 0 0 1 ‘/2 1 0 0 X 3
1. Björgvin Jónsson
2. Sigurður Daði Sigfússon
3. Halldór G. Einarsson
4. Jóhannes Ágústsson
5. Áskell Örn Kárason
6. Ásgeir Þór Árnason
7. Snorri G. Bergsson
8. Dan Hansson
9. Jón G. Viðarsson
10. Hrafn Loftsson
11. Bragi Halldórsson
12. Lárus Jóhannesson
mótinu stóð enda hrúguðust
lengst af upp biðskákir hjá mér
svo Ólafur Ásgrímsson skák-
stjóri mátti sitja yfir mínum
skákum einum nokkur auka
biðskákkvöld.
Um einstaka keppendur í A
flokki er það að segja að Sigurð-
ur Daði varð skákmeistari T.R.
1989. Þetta er í fyrsta skipti sem
Sigurður hlýtur þann titil enda er
hann aðeins nema 17 ára gamall.
Sigurður hefur nokkuð sérstakan
skákstíl miðað við hvað algengt
er hjá ungum mönnum. Hann
rakar ekki saman vinningum
með taktískum kaffihúsabrellum
heldur skila vinningarnir sér
fyrst og fremst í vandaðri varnar-
taflmennsku. Sigurður er flest-
um fremri í að halda sér fast og
bíða eftir rétta tækifærinu.
Marga rekur eflaust minni til
skákar hans við sigurvegara
Fjarkamótsins Balashov. Bala-
shov hafði rýmri stöðu með
hvítu en komst ekkert áleiðis, og
sættist fljótlega á jafntefli.
Svona taflmennska skilar oft
ekki háu vinningshlutfalli en
gerði það nú, ef til vill líka af því
að andstæðingarnir voru auð-
fúsir að taka áhættu gegn
honum og leggja allan punktinn
undir í lengstu lög þegar hálfur
vinningur var kannski nærri því í
höfn! Sigurður er stöðugt að
bæta við sig, hækkaði um rúm
100 stig á íslenska listanum í
janúar í ár og á Haustmótið þar
stærstan hlut að máli. Hlýtur
hann nú að vera kominn í hóp
þeirra sem vænta mega áfanga
að alþjóðlegum meistaratitli
hvað úr hverju.
Undirritaður varð jafn Sigurði
að vinningum og hlaut reyndar
hálfu stigi meira og fyrsta sætið
að nafninu til en tefldi sem
gestur þar sem hann er ekki
félagi í T.R. Mér sýnist farsælast
Björgvin Jónsson
að fjalla ekki frekar um eigin
árangur og sný mér að frammi-
stöðu annarra.
Halldór náði forystu eftir 7
umferðir eftir að hafa deilt henni
með öðrum fram að því. Allt
gekk honum í haginn framan af
ef frá er skilin skák hans við
undirritaðan í 4. umferð. Skákir
hans einkum við Jón G. í 3.
umferð og Lárus í þeirri fimmtu
bentu til að Halldór hefði lesið
nýjustu skáktímaritin að undan-
förnu og nú virtist komið að
stökki hjá honum fram á við.
Fyrst benti heldur ekkert til að
hann tefldi verr í nýja húsnæð-
inu. Þar byrjaði hann með því að
taka einn forystuna með sigri á
Sigurði Daða í fyrstu umferðinni
sem tefld var í Faxafeninu. En
síðan fór allt á aðra leið svo
sem fyrr er lýst. M.a. tapaði
Halldór þá skák gegn Ásgeiri
Þór þar sem hann lék sig í mát
fullri lúku af liði yfir. í síðustu
umferð var hann svo búinn að fá
nóg og gerði stutt jafntefli við
Jóhannes Ágústsson enda var
fyrsta sætið þá ekki Iengur í
sjónmáli. Þeir félagar enduðu
saman í 3.—4. sæti.
Jóhannes náði aldrei verulega að
blanda sér í toppbaráttuna sem
þó hefði mátt búast við fyrir
SKÁK 35