Skák - 15.02.1990, Síða 21
Guðmundur Arnlaugsson:
Paul Keres
SÍÐARI HLUTI
8. Að lokinni heimsstyrjöld
Þegar heimsstyrjöldinni síðari
lauk árið 1945 fór alþjóðlegt
skáklíf smám saman að lifna við
að nýju. Bandaríkin og Sovét-
ríkin höfðu verið samherjar í
síðari hluta þessa mikla hildar-
leiks og enn var kalda stríðið
ekki farið að varpa skugga sínum
á samskipti þeirra. Einn vitnis-
burður um þetta vor í samskipt-
um landanna var landsleikur i
skák síðla árs 1945. Leikirnir
voru fluttir með útvarpi á milli,
teflt var á tíu borðum, tvöföld
umferð. Úrslit þessarar keppni
komu mjög á óvart. Það töldust
að vísu engin stórtíðindi að
Botvinnik vann Denker á fyrsta
borði 2-0. Denker var einn af
fremstu skákmönnum Banda-
ríkjanna og hafði sigrað á skák-
þingi Bandaríkjanna árið áður,
tefldi því á fyrsta borði. Hins
vegar var litill vafi á því að
Reshevsky og Fine, og jafnvel
Kashdan og Horowitz voru
honum öflugri. En það vakti
feikna athygli að Reshevsky
tapaði einnig 0-2 á öðru borði
gegn einhverjum Vassilí Smyslov,
ungum pilti sem menn höfðu þá
naumast heyrt nefndan. Og
Sovétríkin unnu þarna yfir-
burðasigur, hlutu 15,5 vinninga
gegn 4,5. Á árunum fyrir heims-
styrjöld hafði sveit Bandaríkj-
anna verið sæmilega öruggur
sigurvegari á hverju ólympíumóti
sem hún tók þátt í. Nú var
forystan greinilega komin austur
til Sovétríkjanna.
Fyrsta stórmótið í skák eftir
styrjöld var haldið í Groningen í
Hollandi árið 1946 til að minnast
75 ára afmælis skákfélagsins þar.
Þar háðu Botvinnik og Euwe
tvísýna keppni um sigurinn.
Úrslitin ultu á skák þeirra, þar
var Euwe nærri sigri en Bot-
vinnik tókst að halda jafntefli
með snjallri taflmennsku.
Groningen 1946:
1. Botvinnik 14,5; 2. Euwe 14; 3.
Smyslov 12,5; 4.—5. Najdorf og
Szabo 11,5; 6.—7. Boleslavskí og
Flohr 11; 8.—9. Lundin og Stoltz
10,5. Þátttakendur voru 20.
Ekki bar mikið á Keresi á
alþjóðavettvangi í fyrstu eftir
heimsstyrjöldina. Hann tefldi
ekki mikið en stundaði skákina
þó af fullum krafti, fékkst við
rannsóknir og ritmennsku. Hann
tók þó þátt í skákþingi sem
Eystrasaltslöndin héldu í samein-
ingu um áramótin 1944-45 og
vann glæsilegan sigur (+10 =1
-0). Á skákþingi Eistlands í
Tallinn árið 1945 sigraði hann
aftur með yfirburðum ( + 11 =4
-0). Vorið 1946 fór Keres í langt
ferðalag suður um Sovétríkin
með Mikenasi. Þar tóku þeir þátt
í skákþingi Georgíu, utan
keppni, og enn vann Keres góðan
sigur (+17 =2 -0). Annað jafn-
teflið var gegn 16 ára pilti sem
tapaði peði en reyndist býsna
úrræðagóður og hélt skákinni.
Þetta var Tigran Petrosjan.
Sama ár kom tíu manna skák-
sveit frá Bandaríkjunum til
Moskvu og þreytti landskeppni á
nýjan leik. Þar hitti Keres á
gamlan stríðsbróður, Reuben
Fine, og sigraði hann í fyrri
skákinni en hin síðari varð jafn-
tefli.
Skák nr. 6374
Moskva 1946
Hvítt: Keres
Svart: Fine
Vængtafl
1. e4 c5
3. Rc3 d5
5. e3 Rxc3
7. Da4t Rbd7
2. Rf3 Rf6
4. ed5 Rxd5
6. bc3 g6
8. Ba3
Á fléttunni 8. Bc4 Bg7 9. Bxf7t Kxf7
10. Rg5t Ke8 11. Re6 Db6 12. Rxg7t
Kf7 er sá galli að riddarinn sleppur
ekki út.
8. — Dc7 9. Be2 Bg7
10. 0-0 0-0 11. d4 a6
Einfaldara var 11. - b6 og síðan Bb7
og e7-d5.
SKÁK 49