Skák


Skák - 15.02.1990, Blaðsíða 24

Skák - 15.02.1990, Blaðsíða 24
Keppendur í Göteborg-mótinu 1955. Sitjandi f.v.: Ilivitsky, Fuderer, Bronstein, Panno, Geller, Spassky, Pilnik, Petrosjan, Najdorf Szabó og Medina. Standandi f.v.: Stáhlberg, Bisguier, Unzicker, Donner, Filip, Keres, Pachman, Guimard, Rabar og Sliwa. á úrslitin. Mótið var svo haldið árið 1948 og fór fyrri hluti þess fram í Haag en síðari hlutinn í Moskvu. Þetta mót er eitthvert öflugasta mót sem haldið hefur verið og sigur Botvinniks þar einhver mesti sigur hans á löngum og afburða góðum skákferli. Haag - Moskva 1948: 1. Botvinnik 14 vinningar (af 20); 2. Smyslov 11; 3.—4. Keres og Reshevsky 10,5; 6. Euwe 4. Það sem mesta athygli vakti á mótinu var píslarganga Euwes sem var mjög miður sín. Hann var elstur keppenda en þó ekki nema 47 ára og átti eftir að rétta hlut sinn, en hann komst aldrei í námunda við heimsmeistaratitil- inn eftir þetta. Keres var heldur ekki í essinu sínu á þessu móti. Hann tefldi nokkrar góðar skákir en datt niður þess á milli og gegn Botvinnik virtist hann haldinn öflugri minnimáttarkennd, tap- aði fjórum skákum í röð fyrir honum. Keres tókst að vísu að vinna Botvinnik í síðustu lot- unni, en þá var Botvinnik orðinn fullviss um sigur. Virðum fyrir okkur eina skák Keresar frá þessu móti. Mér er hún minnis- stæð vegna þess að ég gat fylgst með henni nokkurn veginn jafnharðan og hún var tefld. Á þeim árum var sjaldgæft að menn gætu séð skákir fyrr en löngu eftir að þær voru tefldar FARK0RT FORSENDA GÓÐRAR FERÐAR VISAISLAND og þá í blöðum eða tímaritum. En í þetta sinn hafði Skák- sambandið - eða Taflfélagið - komist í beint samband við skák- staðinn og gat sýnt skákirnar í einhverjum húsakynnum er það hafði til umráða. Þarna voru nokkrir menn samankomnir, ég man best eftir Árna Snævarri. Þetta var fyrsta umferð mótsins, við vorum báðir miklir aðdá- endur Keresar og töldum að keppnin um efsta sætið myndi standa milli hans og Botvinniks, fylgdumst því af áhuga með skák Keresar við Euwe - og urðum ekki fyrir vonbrigðum. Skák nr. 6376 Haag 1948 Hvítt: Euwe Svart: Keres Spænskur leikur 1. e4 e5 2. Rf3 Re6 3. Bb5 a6 4. Ba4 d6 5. c3 Bd7 6. d4 Rge7 52 SKÁK

x

Skák

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.