Skák


Skák - 15.02.1990, Qupperneq 26

Skák - 15.02.1990, Qupperneq 26
skorast undan því að tetla við öflugasta áskoranda sinn. En hann gat sett skilyrði um fjár- öflun sem erfitt var að fullnægja og svo gátu samningar milli hans og áskoranda dregist á langinn eða jafnvel farið alveg út um þúfur. Nú var búið að koma í veg fyrir þetta, einvígi um heims- meistaratitilinn skyldu fara fram þriðja hvert ár og áskorandinn valinn í margföldum hreinsunar- eldi: svæðismótum, millisvæða- mótum og áskorendamótum. Áskorendamótin voru aðeins haldin fimm sinnum, en þá var breytt í einvígi. Ástæðan var sú að Sovétríkin höfðu svo mikla yfirburði yfir önnur ríki að keppendur frá þeim voru fjöl- mennir á hverju áskorendamóti og var þá hugsanlegt að þeir ynnu saman ef á þyrfti að halda. Önnur hlið á því máli var sú að vegna þessara yfirburða voru settar fjöldatakmarkanir á keppendur frá Sovétríkjunum og var því örðugra fyrir sovéska skákmeistara að komast í úrslita- keppnina en skákmeistara frá öðrum ríkjum. Framgöngu Keresar í heims- meistarakeppninni verður ekki betur lýst en með því að birta skrá um áskorendamótin: Fyrsta áskorendamótið Búdapest apríl-maí 1950. Tíu keppendur, tvöföld umferð. 1.-—2. Boleslavskí og Bronstein 12; 3. Smyslov 10; 4. Keres 9,5 (Síðan koma Najdorf, Kotov, Stáhlberg, Flohr, Lilienthal og Szabo) Annað áskorendamótið Neuhausen - Zúrich sept.-okt. 1953. Fimmtán keppendur, tvöföld umferð. Þetta var stærsta og minnisverðasta áskorendamótið og eitt af merkari mótum skák- sögunnar. Um það haf'a verið ritaðar rnargar bækur, snjöllust og læsilegust er sú sem Bronstein skrifaði og Bragi Halldórsson þýddi á íslensku. 1. Smyslov 18; 2.—4. Bronstein, Keres og Reshevsky 16; 5. Petrosjan 15 (Síðan komu Geller, Najdorf, Kotov, Tajmanov, Averbak, Boleslavskí, Szabo, Gligoric, Euwe og Stáhlberg). Þriðja áskorendamótið Amsterdam apríl 1956. Tíu keppendur, tvöföld umferð. 1. Smyslov 11,5; 2. Keres 10; 3.—7. Bronstein, Geller, Petro- sjan, Spasskí og Szabo (Síðan komu Filip, Panno og Pilnik). Fjórða áskorendamótið Bled- Zagreb-Belgrad sept.-okt. 1959. Átta keppendur, fjórföld umferð. 1. Tal 20; 2. Keres 18,5; 3. Petro- sjan 15,5; 4. Smyslov 15. (Síðan komu Fischer, Gligoric, Friðrik og Benkö). Fimmta áskorendamótið Curaeao-Willemstad maí-jtíní 1962. Átta keppendur, fjórföld um- ferð. 1. Petrosjan 17,5; 2.—3. Geller og Keres 17; 4. Fischer 14 (Síðan komu Kortsnoj, Benkö, Filip og Tal). Keres sigraði Geller í keppn- inni um annað sætið og var þar með orðinn næstur Petrosjan í röðinni. Á þessu yfirliti sést að Smyslov er öflugasti skákmaður heims á skákmótum á árunum 1953-56, þá sigrar hann á tveimur áskor- endamótum í röð og hafa ekki aðrir leikið það eftir. Hins vegar er Keres jafnastur, hann nær öðru sæti á fjórum áskorendamótum í röð, enda var hann kallaður krónprinsinn. Það má kalla óheppni hans að þegar hann er kominn upp fyrir Smyslov kemur nýr maður til sögu: Tal sem fór eins og storm- sveipur um löndin og sigraði meira að segja sjálfan Botvinnik á fyrsta sprettinum. En sigur Tals á áskorendamótinu byggðist á ótrúlega háu vinningshlutfalli gegn neðri keppendunum. Sagt var þá og gildir raunar enn i dag að Keres væri öflugasti skák- kappi í heimi er aldrei hefði náð því að tefla einvígi við heims- meistarann. Á þessum árum var hann búinn að losa sig við minni- máttarkennd sína gagnvart Botvinnik og er líklegt að einvígi þeirra 1960 eða 1963 hefði orðið skemmtilegt og tvísýnt. Lítum á dæmi um viðureign Keresar við Botvinnik. Skák nr. 6377 Hvítt: Keres Svart: Botvinnik Franskur leikur Skákþing Sovétríkanna 1955 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 Rc6 4. c3 e5 5. ed5 Dxd5 6. Rgf3 Bg4? Betra er 6. - ed4. Keres nýtir færin á snjallan hátt. 7. Be4 Bxf3 8. Db3! Ra5 Botvinnik hafði treyst á þennan leik. En 8. - Dd7 9. Rxf3 Ra5 10. Bxf7f Dxf7 11. Db5t er heldur ekki gott. HVERNIG ÉG VARÐ HEIMSMEISTARI Eftir M. Tal Munið áskrifendaafsláttinn! SKÁKPRENT Dugguvogi 23 — Sími 31975 54 SKÁK

x

Skák

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.