Skák


Skák - 15.02.1990, Síða 28

Skák - 15.02.1990, Síða 28
13. cd4 Rc6 14. a3 Hvítur vill koma í veg fyrir Rb4. Svartur þarf ekki að óttast i4. d5 Rb4 15. Bbl a5 14. — ed4! Þessi leikur virðist veikja svart á miðborði en svartur fær ýms færi í staðinn, og hér verður leikurinn forleikur að óvenjulegri og djúpri fléttu. 15. Rb3 Rde5 16. Rfxd4 Bf6 17. Bd2 Nú hefst sannkallaður darraðardans. Öruggara var 17. Rxc6 Rxc6 18. Hbl, en Tal er ekki gefinn fyrir að ein- falda taflið. 17. — Rxd4 18. Rxd4 Rd3H 19. Rc6 Dansinn er hafinn. Eftir 19. Bxd3 Bxd4 á svartur betra þvi að hann getur svarað 20. Hbl með Df6. 19. — Rxf2H Fine gæti hafa verið að hugsa um þessa skák þegar hann skrifaði að hjá Keresi kæmu flétturnar stundum eins og þruma úr heiðskíru lofti. Kannski hefði verið skynsamlegast að skipta drottningum (20. Rxd8 Rxdl 21. Rxf7! Rxb2 22. Bb3) en Tal er ekki á því. Keres taldi sjálfur að 20. Dh5 væri besta úrræði hvíts en svartur þarf ekki að óttast 20. Dh5 Rxh3t 21. Kh2 g6 22. Rxd8 gh5 23. gh3 Hxd8. Leikur Tals virðist býsna öflugur. 20. Df3 20. — Rxh3t!! En ekki 20. - Db6 21. e5! Rg4t 22. Be3 Rxe3 23. ef6 Rxc2t 24. Khl Rxel 25. Hxel og hvítur á mjög hættuleg sóknarfæri. Nú eru möguleikarnir fleiri og flóknari en svo að hægt sé að gera þeim viðhlítandi skil. Dæmi: (a) 21. Dxh3 Db6t (b) 21. Kfl Db6 22. e5 Bg4 23. Be3 Bxf3 24. Bxb6 Bxc6 og svartur á tvö peð yfir. 21. Kh2 Be5t 22. Rxe5 Við 22. Khl á svartur bæði 22. - Dh4 sem Keres bendir á: 23. gh3 Bg3 24. Re7t Kh8 25. Rxc8 Haxc8 og vinnur, og hið einfaldara 22. - Dc7 sem Fine nefnir. 22. — de5 23. Hedl Rf4! Nú dugar hvorki 24. Bxf4 Dh4t 25. Kgl ef4 né 24. Bb4 Dh4t 25. Kgl Bg4. Tal leitar því annarra úrræða. 24. g3 Re6 25. Bc3 Nú myndi svartur svara 25. Bb4 með Rd4. 25. — Dg5 26. Hd6 Þetta kostar skiptamun en erfitt er að benda á betri leik. 26. Hd5 er bæði hægt að svara með 26. - f6 og 26. - Dh6t. 26. — Dh6t 27. Kgl Rd4! 28. Hxh6 Rxf3t 29. Kf2 gh6 30. Kxf3 Hfe8 31. Hhl Kg7 32. Bb3 Bb7 33. Bd2 f5 34. Hxh6 Had8 35. Hb6 Bxe4t 36. Ke2 Bf3t 37. Kel f4! 38. Bc3 fg3 39. Hxa6 Hd4! 40. Ha7t Kh6 41. Hf7 og gafst upp um leið. Eins og áður er getið vann Keres Geller í einvígi um annað sæti í áskorendakeppninni 1962 og hefði því teflt einvígi við Petro- sjan ef Botvinnik hefði dregið sig í hlé eins og hvarflaði að honum að gera. Hér kemur Iokaskákin úr því einvígi. Skák nr. 6379 Hvítt: Keres Svart: Geller Drottningarbragð 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. Rc3 c5 5. cd5 Rxd5 6. e3 Rc6 7. Bc4 Rxc3 8. bc3 Be7 9. 0-0 0-0 10. e4 b6 11. Bb2 Bb7 12. De2 Ra5 13. Bd3 Hc8 14. Hadl cd4 15. cd4 Bb4 Nái svartur nú að leika Bc3 má kalla að hann sé búinn að jafna taflið. En hvítur á leikinn. 16. d5! ed5 17. ed5 Nú hótar hvítur De4. Við He8 er svarið 18. Re5 með Dh5 sem nýrri hótun. Sennilega er best að leika 17. - Bc3; eftir 18. Bxc3 Hxc3 19. Hfel hefur hvítur sterk völd á mið- borði en erfitt er að segja hversu langt það hrekkur. 56 SKÁK

x

Skák

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.