Skák - 01.04.1994, Síða 23
Karl lenti snemma í erfiðleikum
í þessari skák og maður spyr
hvar mistök hans liggja. 9. Bg5
er sennilega nákvæmari leikur en
9. cxd4, því eftir 9. - Df5 10.
cxd4 Bb4t 11. Bd2 stendur
svarta drottningin lakar á f5 en
f6, þó þetta hafi allt sést áður
nema kannski 11. - b6.
„Hanga-peð“ hvíts eru furðu
veikburða og eftir 18. - g5! er
ljóst að hvítur á við ramman reip
að draga. Li fylgdi þessurn
öfluga leik ekki rétt eftir, 19. -
Dg7! 20. De5 Dxe5 21. dxe5
Kg7, er mun sterkara en 19. -
gxf4. Staða Karls er þó lengi vel
heldur lakari en honum tókst
nreð góðri vörn að halda sínu:
Skák nr. 7358
Hvítt: Karl Þorsteins
Svart: Wenliang Li
Enskur leikur
1. c4 Rf6 2. Rc3 e6 3. e4 d5 4.
e5 d4 5. exf6 dxc3 6. bxc3 Dxf6
7. Rf3 c5 8. d4 cxd4 9. cxd4
Bb4t 10. Bd2 Bxd2t 11. Dxd2
b6 12. Be2 Bb7 13. 0-0 0-0
14. Hfdl Hd8 15. De3 Rc6 16.
Habl Re7 17. Re5 Rf5 18. Df4
g5
19. Rg4 gxf4 20. Rxf6t Kg7 21.
Rh5t Kh6 22. d5 e5 23. Rf6
Kg7 24. Re4 Rd4 25. Bfl Hac8
26. Rd2 Ba6 27. Hdcl Hc7 28.
Hel 16 29. Bd3 Re6 30. Rb3
Rc5 31. Bfl Bc8 32. g3 fxg3 33.
hxg3 Bf5 34. Rxc5 Hxc5 35.
Hb3 Ha5 36. a3
- Jafntefli.
8. umferð:
Kúba - ísland 1:3
Bandaríkin - Kína 2A:VA
Úkraína - Sviss 2'A:Vá
Uzbekistan - Lettl. 3:1
Rússl. - Armenía VA:2'A
Kúbumenn komu jafn fáliðaðir
og við til Luzern en það var þó
af gjörólíkum ástæðum. Svo hart
er efnahagur landsisns leikinn að
skáksambandið er gjörsamlega
févana og sendi aðeins fjóra
menn til leiks. Þetta gerði
andstæðingunum vitaskuld auð-
velt með allan undirbúning og
var Kúbumönnunum það ljóst.
Vinur okkar, Amador Rodriquez,
barði ákaft lóminn og gaf okkur í
leiðinni örlítla innsýn inn í
daglegt líf landsmanna þar sem
harðvítugt skömmtunarkerfið
ræður ríkjum og er eiginlega
ekkert til skiptanna. Fall Sovét-
ríkjanna, viðskiptabann og óáran
ráða rniklu urn hvernig málum er
komið, en Castro er vinsælli en
nokkru sinni fyrr. Mér fannst á
stundum eins og allar heimsins
áhyggjur hvíldu á herðum þeirra
fjórmenninga og við tefldum við
þá á fremur heppilegum tíma.
Góður sigur var síst að þakka vel
heppnuðum byrjununr, heldur
fyrst og fremst sterkum sigur-
vilja:
A síðustu stundu kom Jón L. Arnason
inn á.
Ísland-Kúba 3:1
Jóhann - Nogueiras 'A:'A
Helgi - Vera 1:0
Hannes - Rodriquez 'A:'A
Karl - Arencibia 1:0
Jóhann Hjartarson hefur átt í
miklu basli með Nogueiras í
gegnum tíðina, þó stefnubreyting
hafi orðið á millisvæðamótinu í
Biel í sumar. Gegn „Broddgaltar-
afbrigðinu“ valdi Nogueiras leið
sem Jóhann hefur haft nokkra
reynslu af í skákum sínum við
Karpov og Andersson. Kúbu-
maðurinn byggir upp betri stöðu
en varnir Jóhanns eru traustar. I
30. leik leik Iætur Nogueiras peð
af hendi og er að ná fram f4-f5
þegar Jóhann skilar peðinu til
baka með 36. — d5 sem teljast
verður vafasöm ákvörðun, því
eftir 36. - Hf7 er ekki að sjá að
37. f5 Hxf5 38. Hxf5+ exf5 39.
Hxf5+ Kg7 40. Rd5 Bd8 sé svo
ýkja hættulegt. I 43. leik þegar
sannkallað vandræða hróksenda-
tafl er að koma upp býður
SKÁK 83