Skák - 01.10.1996, Blaðsíða 5
Útgefandi og ritstjóri:
Jóhann Þórir Jónsson
Ritnefnd:
Friðrik Olafsson
Guðmundur Sigurjónsson
Helgi Ólafsson
Jóhann Hjartarson
Jón L. Amason
Margeir Pétursson
Hannes Hlífar Stefánsson
Helgi Ass Grétarsson
Þröstur Þórhallsson
Karl Þorsteins
Guðmundur Amlaugsson
Guðmundur G. Þórarinsson
Birgir Sigurðsson
Auglýsingar:
J.Þ.J.
Einar H. Guðmundsson
Ut koma 10 tölublöð á ári.
Áskriftarverð 5000 kr. árg.
Einstök blöð 600 kr.
Gjalddagi er 1. janúar
Utanáskrift:
SKÁK, pósthólf 1179
121 Reykjavík
Skákprenl
Dugguvogi 23, símar 553 1335 (skrifst.),
553 1391 (tæknideild),
553 1975 (prentsalur),
553 1399 símbréf
Efni:
Skákþing íslands 1996
Stórmeistaramótið
í Wijk aan Zee 1996
Alþjóðaskákmótið
í New York 1996
Topalov sigrar í Novgorod
Barátta kynslóðanna
Kramnik sigraði í Mónakó
og Moskvu
Lesendahornið
Tafllok
Snarpar og snöggar
Ritstjórarabb
Enginn veit með vissu hvenær skáklistin hélt innreið sína á íslandi.
Hitt vitum við að allt frá upphafi eru til frásagnir um afrek okkar
manna á þessu sviði. Það er samt ekki fyrr en á þessari öld að við
getum talað um atburðina af vissu. Um aldamótin síðustu hófst
framrás sem enn er í fullum gangi og vegur okkar meðal þjóðanna
styrkist og hækkar í sífellu. Þannig er það ljóst að hvergi annars-
staðar höfum við jafn sterka stöðu þótt víða sé hún sterk og sláandi
afreksmenn skjóti upp kollinum æ oftar.
Hvað er það sem gerir skáklistina svona sérstaka? Hún reynir fyrst
og fremst á hugann. Við taflið stendur þú einn. Sigurinn er þinn.
Tapið er þitt. Hún byggir á innsæi, einbeitingu, sköpun, skipulagi
og síðast en ekki síst því að sjá fram í tímann. Við skákborðið er
allt fyrir opnum tjöldum. Hvemig þér vegnar er undir sjálfum þér
komið. Einmitt þetta hefur verið hið seiðandi aðdráttarafl hins
skarpa mannshuga. Keppnin, listin og fegurðin heilla. Sá sem gerist
fylgismaður skákgyðjunnar lætur ekki staðar numið við þetta. Hann
freistar þess að kynna þessa list fyrir sem flestum.
Guðmundur Arnlaugsson var í fylkingarbrjósti liðsmanna skákgyðj-
unnar. Ungur laðaðist hann að þessari torræðu gátu, og brátt varð
hann meðal þeirra fremstu án þess að það tefði hann frá öðrum mik-
ilvægum verkum. Á námsámm sínum tókst honum hið ótrúlega, að
eiga val um sæti í ólympíusveit tveggja þjóða. Hann var liðsmaður
fimm ólympíusveita, íslandssmeistari og margoft fararstjóri. Ævin-
lega stóð hann sig vel og aldrei var hávaðanum fyrir að fara. Um
miðjan sjötta áratuginn lagði hann kappteflið á hilluna og sneri sér
að uppfræðslu í skák með dálkum í blöð og þáttum í útvarpi.
Tvær bækur skrifaði hann um skák, Skákdæmi og tafllok og Skák
í austri og vestri. Handrit þriðju bókarinnar liggur tilbúið og er úrval
skákþátta hans. Vonandi líður ekki á löngu þar til hún kemur út.
Guðmundur var tímaritinu Skák ómetanlegur stuðningur síðustu
áratugina. Með greinum sínum og ráðum efldi hann útgáfuna og
víst er að hinir fjölmörgu aðdáendur hans meðal lesenda blaðsins
munu sakna skrifa þessa hljóðláta en seiðmagnaða manns. Allt varð
svo lifandi, forvitnilegt og skýrt í frásögn hans, jafnvel svo að hið
flókna varð auðskilið.
Þrátt fyrir glæsta sigra hans við skákborðið og ánægjulegar viðræð-
ur við hann í áranna rás mun ég minnast hans fyrst og fremst sem
leiðsögumannsins sem sjálfur hafði klifið fjallið.
SKÁK161