Skák


Skák - 01.10.1996, Blaðsíða 26

Skák - 01.10.1996, Blaðsíða 26
25. - Db6 26. Bxd4! Dxd4 27. Hfdl Vonlaust væri að skipta upp á dl og b7, því hvítur fengi unnið hrókaendatafl - ekki er betra 27. - Dxg7 28. Rd6t ásamt 29. Rxc4. Eina mótspil svarts er fólgið í peðunum á drottningavængnum, en Ivantsjúk kemur strax í veg fyrir það. 27. - Dxb2 28. Rd6t Kb8 29. Hdbl! Dxg7 Eða 29. - Dc3 30. Re4 og b-peð svarts fellur. 30. Hxb4t Kc7 31. Ha6! Hb8 Ef 31. - Ha8, þá 32. Hb7t Kd8 33. Rxf7t. 32. Hxa7t! Einfaldast. Eftir 32. Hb7t Hxb7 33. Re8t Kd7 34. Rxg7 c3 og verður hvítur að hafa gát á c-peðinu. 32. - Kxd6 33. Hxb8 Dg4 34. Hd8t Kc6 35. Hal Gefið Spánn Fimmta „Torneo Magistral Com- unidad de Madrid” lauk með sigri búlgaska stórmeistarans Veselin Topalov og heimamannsins Miguel Illescas, en þeir hlutu 602 v. af 9. í 3.-4. sæti komu Salov og Shirov með 6 v., 5.-6. Azmaipara- shvili og Gelfand 5 v., 7.-8. Morozevich og Adams 3 v., 9. Kortsnoj 21/2 v. og 10. San Seg- undo 11/2 v. Með þessum glæsilega árangri sínum er Illescas orðinn fremsti skákmeistari Spánar. Það veitir honum tækifæri til að tefla á sterkustu alþjóðamótum og þá sérstaklega í Linares. I áðurgreindu móti var heppnin ekki með þessum þrítuga Spán- verja er hann tapaði vinnings- stöðu gegn Topalov. I fimmtu umferð vann Illescas glæstan sigur gegn Gelfand. Lít- um á handbragð spænska stór- meistarans. Skák nr. 7974 Hvítt: Boris Gelfand Svart: Miguel lllescas Bogo-indversk vörn 1. d4 Rf6 2. RO e6 3. c4 Bb4t 4. Rbd2 b6 5. a3 Strangt til tekið er þessi leikur ekki nauðsynlegur, en Gelfand hefur mikið dálæti á biskupapar- inu. 5. - Bxd2t 6. Dxd2 Bb7 7. e3 0-0 8. Be2 d6 9. 0-0 Rbd7 10. b4 Re4 11. Dd3 f5 12. Bb2 Hf6! Það er greinilegt að Illescas er vel heima í fræðunum. Hér hefur hann grafið upp skák frá árinu 1988, þar sem Gelfand náði ör- uggum yfirburðum gegn Ivanov eftir 12. - Df6? 13. Rd2 Dg6 14. f3 Rg5 15. a4! Nýjung spænska stórmeistarans er mun betri. 13. d5 Hg6 14. dxe6? Þetta jaðrar við sjálfsmorð! Hér var nauðsynlegt að leika 15. Hadl Rdf6 16. Db3. Nú hefst athyglis- vert ferðalag riddarans á d7. 14. Rf8! 15. c5? Að mati svarts var 15. Rel síðasti möguleiki hvíts. 15. - Rxe6 16. cxd6 cxd6 17. Hadl Þrátt fyrir að fyrstu tólf leikirnir séu samkvæmt fræðunum hafði hvítur eytt rúmum klukkutíma í þá. 17. - Kh8 18. Rel? Þremur leikjum of seint, en ef til vill hefði 18. Khl R6g5 19. Rh4!? verið reynandi. 18. - R6g5 19. Khl 19. - Rh3! Hvítur gafst upp, því eftir 20. Dd4 Rexf2t 21. Hxf2 Rxf2t 22. Kgl Rxdl er staða hans vonlaus. Karpov sigurvegari í Biel Anatoly Karpov vann 139. móta- sigur sinn á 29. skákhátíðinni í Biel (Sviss) sl. sumar. Þetta var fyrsta mótið eftir að hann varði FIDE-heimsmeistaratitil sinn. Karpov hlaut 7'/2 v. af 11 og vann á stigum gegn Vadim Milov (Sviss). Röðin varð annars þessi: Jaan Ehlvest (Eistland) 7 v., Ulf Andersson (Svíþjóð), Zoltan Almasi (Ungverjal.), Joel Lautier (Frakkl.) og Igor Glek (Rússl.) 6 v., 8. Portisch (Ungv.l.) 5'/2 v., 9. Tukmakov (Rússl.) 4]/2 v., 10.-11. Romanishin og Onis (Rússl.) 3V2 v. og 12. Miles (England) 3 v. Ert þú áskrifandi að Skák? 182 SKÁK

x

Skák

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.