Skák - 01.10.1996, Blaðsíða 22
Hér skilur á milli feigs og ófeigs...
Upp er nú komin jafnteflisstaða,
en það jafntefli byggist á að svart-
ur verður að geta skákað á sjöttu
reitaröðinni. Staðan er kennd við
franska skák og tónlistarmanninn
Philidor sem uppgvötaði eða setti
hana fram fyrstur. Philidor var upp
á sitt besta í frönsku byltingunni,
um 1789. Svartur verður að leika
hér eða í næsta leik Hb2 og heldur
þá auðveldlega jafntefli. Jón gefur
Margeiri kost á að skýla sér bak
við f-peð sitt og tapar. Hann hefur
örugglega hugsað sitt um Fýlu-
Dóra eins og hann er stundum
nefndur á ástkæra ylhýra...
61. - a5? 62. f5 a4?? 63. Ke6!
Kg8 64. Ha8t Kh7 65. f6 He2t
66. Kf7 Hb2 67. Ke8 He2t 68.
Kf8 Hb2 69. f7 He2 70. Hxa4
Gefið
I síðustu umferð á Skákþingi ís-
lands mætast þriðja árið í röð þeir
Hannes og Jóhann. Jóhann á í
þriðja sinn möguleika á titlinum en
Hannes stóð með pálmann í hönd-
unum í hin tvö skiptin en glutraði
möguleikum sínum í aukakeppn-
um. Hannes hefur sjálfsagt hugsað
Jóhanni þegjandi þörfína, þar sem
hann sjálfur var án möguleika.
Allavega komst Jóhann ekkert á-
leiðis og Hannes náði aðeins betra
tafli. Það dugði ekki til sigurs en
Jóhann neyddist til að þvinga fram
jafnteflið. Sælt er sameiginlegt
skipbrot eða hvað? Nei við vitum
betur og það sem einkennir sér-
staklega þá Jóhann og Hannes er
baráttuvilji og sannur keppnisandi.
Skák nr. 7971
Hvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: Hannes H. Stefánsson
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 Rc6 6. Bg5 e6
7. Dd2 a6 8. 0-0-0 h6 9. Be3
Dc7 10. f4 Bd7 11. Bd3 Be7 12.
h3 b5 13. Kbl Rxd4 14. Bxd4
Bc6 15. De3 0-0 16. Hhel
Hac8
Eftirfarandi framrás léttir óþarf-
lega á stöðu Hannesar. 17. g4 var
kannski meira í takt við stöðuna í
mótinu. Að vísu er hægt að tefla
til vinnings á rólegan hátt og það
reynir Jóhann.
17. e5 dxe5 18. Bxe5 Db7 19. g4
b4 20. Bxf6 Bxf6 21. Re4 Bxe4
22. Bxe4 De7 23. Db6
Frumkvæði hvíts fjarar hér út og
staðan gerist jafnteflisleg. Reyna
má þó áfram að ósekju, Helgi
Olafsson samdi um jafntefli um
þessar mundir í sinni skák, þannig
að það var ljóst að Jóhann gat náð
Helga með sigri.
23. - Dc7 24. Dxc7 Hxc7 25.
Hd6 a5 26. Bd3 Hc5 27. He4
Hfc8 28. b3 g6 29. Bc4 g5 30.
Hd7 H8c7 31. Hdl Kg7 32. Hfl
Hd7 33. Bd3 Hcd5 34. fxg5
hxg5 35. Hf3 Be5 36. Kcl
Svartur hefur náð örlitlu frum-
kvæði og það er í raun Hannes
sem reynir að vinna. En vinnings-
tilraunum fylgir áhætta svo
Jóhann heldur í vonina.
36. - Bf4t 37. Kdl e5 38. Kel
Hd4 39. He2 Ha7 40. He4 Had7
41. He2 Kf6 42. Kf2 Ha7 43.
He4 Had7 44. He2 Hd8 45. Kg2
Ke6 46. Bf5t Kd5 47. Hd3
Hxd3 48. cxd3 Kd4 49. Hc2 Ke3
50. Hc5 Ha8 51. Hc4 Ha7 52.
He4t Kd2
Jóhann afræður að bjarga sér í
jafnteflishöfn meðan fært er.
53. d4 exd4 54. Hxd4t Kc3
55. Hd7 Jafntefli
178 SKÁK