Skák


Skák - 01.10.1996, Blaðsíða 35

Skák - 01.10.1996, Blaðsíða 35
Snarpar og snöggar Skákþátturinn er venjulega það fyrsta sem ég lít á í vikuritinu GUARDIAN WEEKLY sem ég er áskrifandi að. Honum stýrir Leonard Barden sem eitt sinn var einn hinna efnilegustu meðal ungra enskra skákmanna. Hann varð Englandsmeistari einu sinni eða tvisvar og í sveit þeirra á ólympíumótum, en dró sig svo í hlé við kapptefli og fór að skrifa um skák í staðinn. Hann hefur skrifað nokkrar bækur um skák og svo hefur hann stýrt þessum skákþætti í hálfa öld, frá árinu 1956. Þátturinn hefur þótt býsna góður og er það raunar enn, þótt ekki sé hann alltaf jafn skemmti- legur. I tölublaðinu frá 7. júlí segir Barden dálítið frá Kramnik. Það er dálítið skondin tilviljun að fjóra af fremstu taflmeisturum heims sem allir eru fyrrverandi Sovétborgarar, skuli alla vera að finna í k-unum í stafrófsröðinni: Kamsky - Karpov - Kasparov - Kramnik. Af þeim er Kramnik yngstur, nýorðinn tuttugu og eins árs þegar þetta er ritað. Hann er ættaður frá Svartahafsströnd og foreldrar hans eru báðir lista- menn, faðirinn myndhöggvari, móðirin tónlistarkona. Hjá Kram- nik kemur listgáfan í ljós í skák- inni, ekki síst í blindskák, en þar er hann fremstur meðal jafningja. Hann hefur sigrað í þeirri grein tvö seinustu árin á margþætta mótinu í Monaco og John Nunn segir að hann sé hinn eini stór- meistaranna sem geti rakið leikj- araðir úr blindskák upp úr sér eftir að skákin var tefld, greint ólík afbrigði og sett síðan upphafs- stöðuna upp eftir minni. Kramnik játar að hann sé latur og segist hafa haft mjög gott af því að vinna með Kasparov sem aðstoðamaður við undirbúninginn undir einvígið við Anand, enda sigraði hann á tveimur alþjóða- mótum á eftir í Zúrich og Bel- grad. Honum finnst hann vera orðinn jafningi Karpovs og Kasparovs við skákborðið og kærir sig kollóttan um hvort hann er fremstur í Elo-röðinni eða þriðji. Gegn Kasparov stendur hann jafnt, hvort sem er í atskák- um eða rólegum kappskákum. Hér koma tvær skákir Kramniks frá Sevilla og verður ekki af þeim séð annað en að þótt Karpov hafi verið og Kasparov sé heims- meistari, þá teflir Kramnik eins og heimsmeistari, svo að snjöll ummæli Tartakowers um Aljekín séu tekin að láni. Það er athyglivert að báðar skákirnar vinnur hann á svart. G.A. Skák nr. 7979 Hvítt: Ivantsjúk Svart: Kramnik Sikileyjarleikur 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 d6 6. Bg5 e6 7. Dd2 a6 8. 0-0-0 h6 9. Be3 Be7 10. f4 Rxd4 11. Bxd4 b5 12. De3 Dc7 13. e5 de5 14. Bxe5? Þetta kann að vera rétt samkvæmt fræðunum, en kemur ekki vel út. Líklega var 14. fe5 Rd7 15. Dg3 0-0 16. Bd3 betra. 14. - Rg4! 15. Df3 Rxe5 16. Dxa8 Rd7 17. g3? Betra var Df3, Bb7, Dg3, þótt svartur hafi þá líka nokkurt spil fyrir skiptamuninn. 17. - Rb6 18. Df3 Bb7 19. Re4 f5! 20. Dh5t Kf8 21. Rf2 Bf6! Svartur hirðir ekki um skipta- muninn, en teflir til sóknar. Hvíti kóngurinn er ekki eins öruggur og í fljótu bragði sýnist. 22. Bd3 Ra4 Nú strandar c3 vitaskuld á Rxb2! 23. Hhel Bxb2t 24. Kbl Bd5 25. Bxb5! Bxa2t! Svartur gengur ekki í gildruna 25. - ab5 26. Hxd5! ed5 27. He8 mát. 26. Kxa2 ab5 Nú dugar hvorki Hxe6, Dc4t og Dxe6, né Df3, Dxc2. 27. Kbl Da5 Ekki dugar Hxe6 enn: 28. Hxe6 Rc3t 29. Kxb2 Db4t 30. Kcl Ra2 mát. Alltaf skortir herslu- muninn til þess að hvítur geti ráð- ist að kóngi svarts, eins og hann virðist standa á hættulegum stað. SKÁK191

x

Skák

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.