Skák


Skák - 01.10.1996, Blaðsíða 33

Skák - 01.10.1996, Blaðsíða 33
Guðmundur Arnlaugsson: TAFLLOK Að venju voru þær margar æsi- legar skákirnar sem tefldar voru í deildakeppni Skáksambands Is- lands um daginn. En þessi sló þó öll met. Staðan kom upp í úrslita- viðureign úr annarri deild. Jón Björgvinsson (1.960), UMSE, var með hvítt og átti leik, en Matthías Kjeld (2.025), Taflfélagi Reykja- víkur, D sveit, hafði svart. Það standa augljóslega öll spjót á hvíti. Hann hafði teygt sig mjög langt, fórnað manni og er nú drottningin í uppnámi og þar að auki peðið á f2 með skák. Um- hugsunartíminn var einnig á þrot- um. En í stað þess að gefast upp fann hvítur ævintýralegan björg- unarleik: 22. Df3!! - Bxf2t (Ekki mátti þiggja drottningarfórnina, 22. - Hxf3?7 23. Rxc5 - Kf8 24. Rd7 er mát) 23. Khl - Bxel 24. Rg5 - Df6 25. Bxf7t - Kh8 26. Bxe8 - bxc3 27. bxc3 og skákin er nú orðin jafnteflisleg. En eftir fáa leiki til viðbótar gerðist óvæntur atburður: Báðir féllu á tíma! Kapparnir töldu þá skákina vera jafntefli og fannst tjölmörgum áhorfendum það vel sæmandi svo hraustlegri viðureign. En þegar skákstjóra hafði tekist að olnboga sig í gegnum þvöguna dæmdi hann jafnteflið ógilt og Jóni sig- urinn, því fallvísirinn á klukku Matthíasar hafði fallið sjónarmun á undan. Samkvæmt skáklögum FIDE er þetta réttur dómur. Það munaði minnstu að þetta fleytti UMSE upp í fyrstu deild með 26 vinninga. En Vestfirðingar unnu Vestmannaeyinga stórt í síðustu umferð, 4-1, og náðu þar með 2672 vinningi og komust upp. Margeir Pétursson HEFUR ÞÚ GREITT ÁSKRIFTARGJALDIÐ? í síðasta þætti voru skoðuð tvenn tafllok eftir armenska snillinginn Henrik Kasparjan og lofað að segja nánar frá honum. Skal það nú efnt. Kasparjan er byggingaverkfræð- ingur að mennt, fæddur í Tvílýsi (Tblisi) árið 1910 (hann kann að hafa látist síðan þær heimildir sem ég hef um hann voru skrifaðar). Hann lærði mann- ganginn fjórtán ára gamall af eldri bróður sínum. Atján ára birti hann fyrstu skákþraut sína, og á árunum 1928-29 birti hann um 40 skákþrautir, en það voru mestmegnis þríleiksdæmi. Jafn- framt varð hann all öflugur skákmaður og 1934 þegar skákþing Armeníu var haldið í fyrsta skipti varð hann skák- meistari Armena, en hann hefur tíu sinnum unnið þann titil. Hann vann titilinn sovéskur meistari með því að sigra kunnan tafl- meistara frá Leningrad, Vitalí Tjsekover, í einvígi (+6=7r4). Hann tók tólf sinnum þátt í skákþingi Sovétríkjanna og komst fjórum sinnum í lokakeppnina. Sjálfsagt hefði hann náð lengra á þeirri framabraut ef hann hefði flutt sig til Moskvu eða Leningrad þar sem öflugustu meistararnir voru, en hann hélt tryggð við ættland sitt. Einhverjum besta árangri sínum á skákþingi náði hann í Párnu 1947. Þar sigraði Keres, en Kasparjan náði sjöunda sæti og varð fyrir ofan kempur eins og Flohr, Bondarevskí, Tolusj, Makogonov og fleiri. Freistandi er að sýna eitt dæmi af taflmennsku Kasparjans. Hér koma lok skákar er hann tefldi árið 1951 í Erevan við meistarann Kalasjían. Myndin sýnir stöðuna eftir 42. leik hvíts. Kasparjan hefur svart. Hann stendur greini- lega mun betur, en ekki er alls kostar auðvelt að gera sér mat úr því. Kasparjan hjó þó á hnútinn á djarfan og fallegan hátt. Kasparjan 42. - Rxe4!! 43. fe4 Hxe2!! 44. Hxe2 f3 45. Hh2 Kf4 46. Hh6 f2 47. Hxd6 Kg5! Hefði svartur ekki átt þetta tromp, hefði fléttan ekki staðist. 48. He6 flD 49. Hxe5t Kg4 50. He7 Dc4t 51. Dal b5 52. Ha7 Da4 53. Ka2 a5 54. d6 Dc4t 55. Kal b4 56. Hc7 Dxe4 57. d7 Dhlt 58. Ka2 Dd5t 59. Kbl Dd3t 60. Kcl ba3 61. ba3 De3t og hvítur gafst upp. Hann sér fram á að hrókurinn fellur, til dæmis: 62. Kc2 Df2t 63. Kcl SKÁK 189

x

Skák

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.