Skák


Skák - 01.10.1996, Blaðsíða 6

Skák - 01.10.1996, Blaðsíða 6
Sævar Bjarnason, alþjóðlegur skákmeistari: Skákþing íslands 1996 Landsliðsflokkur Mótið í ár var vel skipað og ég er eiginlega viss um að þátttakendurnir í ár eigi eftir að berjast um Islandsmeistaratitilinn næsta áratuginn með örfáum und- antekningum. Ungir menn eru farnir að berja á dymar hjá hinum rótgrónu og spuminginn er aðeins hvenær þær opnast! Stórmeistar- arnir á þátttakendalistanum í ár vom eiginlega sex, þar sem Þröst- ur fékk titilinn viðurkenndan ör- fáum mánuðum seinna. Einhvern tíma hefði það þótt saga til næsta bæjar að helmingur keppenda í landliðsflokki væm stórmeistarar. Meirihluti keppenda vora að auki titilhafar, svo ég komi mínum al- þjóðatitli til sögunnar! Þar að auki voru allir stórmeistararnir at- vinnumenn og þeir þrír sem lýstu með fjarveru sinni, Friðrik, Guð- mundur og Jón L. eru allir hættir í atvinnumennskunni. En það er skemmtilegt að hugleiða það að Islandsmót með ríflega tug stór- meistara er ekki svo fjarlægur draumur. Það var ljóst að baráttan um titil- inn myndi standa á milli stór- meistaranna og í því sambandi er gaman að skoða hversu oft þeir hafa verið með í landliðsflokki (árið í ár meðtalið). Helgi Ólafs- son var með í 13. skipti og sú óhappatala hafði engin áhrif á ár- angur hans. Sjötti sigurinn leit dagsins ljós og var Helgi óvenju vel að honum kominn í þetta skipti. Einn aðalkeppinautanna, Margeir, mátti játa sig sigraðan í fyrstu umferð og síðan var nánast um einstefnu að ræða. Þeir Mar- geir og Jóhann deildu 2.-3. sæti og hafa þeir verið með báðir 12 sinnum. Jóhann hefur unnið fjór- um sinnum en Margeir aðeins tvisvar. Þá vantaði aðeins herslumuninn að þessu sinni eins og sagt er! Hannes Hlífar varð í 4. sæti en hann hefur verið með í tíu skipti og tvisvar verið kominn með titilnn eiginlega í hendurnar. Helgi Olafsson, skákmeistari íslands 1996. Jóhann Hjartarson er sökudólgur- inn ef litið er á málið frá sjónar- honi Hannesar. Taflmennskan í ár var ekki nógu kröftug hjá Hann- esi og varð hann að sjá af titlinum í enn eitt skiptið. Koma tímar og koma ráð! Helgi Áss varð fimmti og hann var með í fjórða skipti. Það verður að segjast eins og er að það er erfiðra á þessum áratug að vinna mótið en áður og veldur þar aðallega að með fjölda stór- meistara eykst samkeppnin! Helgi líkt og Hannes og Þröstur sem varð í sjötta sæti eru líklegastir til að rjúfa sigurgöngu fjórmenning- aklíkunnar, sérstaklega núna eftir að hún breyttist í tríó. Þröstur var með í 11. skipti. Undirritaður sem kom í 7. sæti og hefur verið - með í 12 skipti hefur heldur ekki náð titlinum ennþá! Þar sem ég er nú orðinn aldursforseti með mín 42 ár, þá hef ég líklega ekki sömu möguleika og ungviðið. En hver veit, furðulegri hlutir hafa nú gerst. Magnús Örn, Jón Viktor og Torfi eru ungu mennirnir í T.R. sem hvað efnilegastir em og þeir eiga eftir að standa sig betur á þessum vettvangi. Þeir Jón Garð- ar, sem var með í sjöunda sinn, og Benedikt, sem var með í sjötta sinn, eru góðir skákmenn og geta hvenær sem er staðið sig betur. Uppskeran var rýr að þessu sinni hjá þeim félögum, en gróskan í íslensku skáklífi heldur áfram! 162 SKÁK

x

Skák

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.