Skák


Skák - 01.10.1996, Síða 22

Skák - 01.10.1996, Síða 22
Hér skilur á milli feigs og ófeigs... Upp er nú komin jafnteflisstaða, en það jafntefli byggist á að svart- ur verður að geta skákað á sjöttu reitaröðinni. Staðan er kennd við franska skák og tónlistarmanninn Philidor sem uppgvötaði eða setti hana fram fyrstur. Philidor var upp á sitt besta í frönsku byltingunni, um 1789. Svartur verður að leika hér eða í næsta leik Hb2 og heldur þá auðveldlega jafntefli. Jón gefur Margeiri kost á að skýla sér bak við f-peð sitt og tapar. Hann hefur örugglega hugsað sitt um Fýlu- Dóra eins og hann er stundum nefndur á ástkæra ylhýra... 61. - a5? 62. f5 a4?? 63. Ke6! Kg8 64. Ha8t Kh7 65. f6 He2t 66. Kf7 Hb2 67. Ke8 He2t 68. Kf8 Hb2 69. f7 He2 70. Hxa4 Gefið I síðustu umferð á Skákþingi ís- lands mætast þriðja árið í röð þeir Hannes og Jóhann. Jóhann á í þriðja sinn möguleika á titlinum en Hannes stóð með pálmann í hönd- unum í hin tvö skiptin en glutraði möguleikum sínum í aukakeppn- um. Hannes hefur sjálfsagt hugsað Jóhanni þegjandi þörfína, þar sem hann sjálfur var án möguleika. Allavega komst Jóhann ekkert á- leiðis og Hannes náði aðeins betra tafli. Það dugði ekki til sigurs en Jóhann neyddist til að þvinga fram jafnteflið. Sælt er sameiginlegt skipbrot eða hvað? Nei við vitum betur og það sem einkennir sér- staklega þá Jóhann og Hannes er baráttuvilji og sannur keppnisandi. Skák nr. 7971 Hvítt: Jóhann Hjartarson Svart: Hannes H. Stefánsson Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 Rc6 6. Bg5 e6 7. Dd2 a6 8. 0-0-0 h6 9. Be3 Dc7 10. f4 Bd7 11. Bd3 Be7 12. h3 b5 13. Kbl Rxd4 14. Bxd4 Bc6 15. De3 0-0 16. Hhel Hac8 Eftirfarandi framrás léttir óþarf- lega á stöðu Hannesar. 17. g4 var kannski meira í takt við stöðuna í mótinu. Að vísu er hægt að tefla til vinnings á rólegan hátt og það reynir Jóhann. 17. e5 dxe5 18. Bxe5 Db7 19. g4 b4 20. Bxf6 Bxf6 21. Re4 Bxe4 22. Bxe4 De7 23. Db6 Frumkvæði hvíts fjarar hér út og staðan gerist jafnteflisleg. Reyna má þó áfram að ósekju, Helgi Olafsson samdi um jafntefli um þessar mundir í sinni skák, þannig að það var ljóst að Jóhann gat náð Helga með sigri. 23. - Dc7 24. Dxc7 Hxc7 25. Hd6 a5 26. Bd3 Hc5 27. He4 Hfc8 28. b3 g6 29. Bc4 g5 30. Hd7 H8c7 31. Hdl Kg7 32. Hfl Hd7 33. Bd3 Hcd5 34. fxg5 hxg5 35. Hf3 Be5 36. Kcl Svartur hefur náð örlitlu frum- kvæði og það er í raun Hannes sem reynir að vinna. En vinnings- tilraunum fylgir áhætta svo Jóhann heldur í vonina. 36. - Bf4t 37. Kdl e5 38. Kel Hd4 39. He2 Ha7 40. He4 Had7 41. He2 Kf6 42. Kf2 Ha7 43. He4 Had7 44. He2 Hd8 45. Kg2 Ke6 46. Bf5t Kd5 47. Hd3 Hxd3 48. cxd3 Kd4 49. Hc2 Ke3 50. Hc5 Ha8 51. Hc4 Ha7 52. He4t Kd2 Jóhann afræður að bjarga sér í jafnteflishöfn meðan fært er. 53. d4 exd4 54. Hxd4t Kc3 55. Hd7 Jafntefli 178 SKÁK

x

Skák

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.