Víkurfréttir - 14.05.2025, Side 4
Nýtt 90-180 rýma hjúkrunarheimili miðsvæðis á Ásbrú gæti risið á
18-24 mánuðum en eigendur fyrirtækisins Icelandic Home ehf. hafa
sent Framkvæmdasýslunni - Ríkiseignum tilboð í kjölfar markaðs-
könnunar sem hún sendi út en þar er óskað eftir leiguhúsnæði fyrir
allt að 80 til 120 hjúkrunarrými á Suðurnesjum og væri afhent innan
tveggja ára. Forsvarsmenn Icelandic home telja að verði tilboði þeirra
tekið geti bygging hjúkrunarheimilis á Ásbrú verið gríðarleg lyfti-
stöng fyrir hverfið og haft jákvæð áhrif á framtíðar uppbyggingu
þess og þróun.
Í eigendahópi Icelandic Home
ehf. eru að mestu Suðurnesjamenn
en fyrirtækið hefur sérhæft sig í
leigu húsnæðis til einstaklinga og
fyrirtækja á síðustu tíu árum. Fyr-
irtækið er með á fimmta hundrað
leigueiningar á sínum snærum
og hjá félaginu starfa 10 manns.
Á upphafsárum fyrirtækisins var
áhersla á að þjónusta starfsfólk í
flugtengdria starfsemi en hefur
þróast og víkkað út.
Lífsgæðakjarni í miðju Ásbrúar
Sigurður Garðarsson, verkfræð-
ingur og fyrrverandi framkvæmda-
stjóri Nesvalla og Sjómannadags-
ráðs vann tilboð Icelandic Home og
er ráðgjafi fyrirtækisins í því. Hann
ásamt Þorleifi Björnssyni og Karli
Finnbogasyni hjá Icelandic Home
hafa kynnt verkefnið og tilboðið að
undanförnu.
Þeir segja mikilvægt að styrkja
Ásbrú og telja að uppbygging lífs-
gæðakjarna sem muni tengjast
nýju hjúkrunarheimili muni skapa
fleiri tækifæri til uppbyggingar og
styrkingar Ásbrúar.
Þróun og uppbygging
„Framtíðarsýn okkar er að
taka þátt í þróun og uppbygg-
ingu Ásbrúar hverfisins. Verði
af leigusamningi um nýtt hjúkr-
unarheimili í húsnæði félagsins
opnast tækifæri til frekari þróunar
svæðisins. Má þar nefna fjölgun
þjónustu- og öryggisíbúða annað-
hvort með því að þétta byggð, eða
með því að nýta byggingar sem nú
þegar eru til staðar. Við það opnast
einnig tækifæri til að halda áfram
þróun svæðisins í samstarfi við
Reykjanesbæ, heilbrigðisyfirvöld
og aðra hagaðila. Þannig væri hægt
að halda áfram með uppbyggingu
aðstöðu og þjónustu fyrir heilsu-
gæslu, félagsmiðstöð, matarþjón-
ustu, líkamsrækt og aðra þjónustu.
Með því að þétta byggðina og auka
nýtingu lóða í nánasta umhverfi
má skapa tengingar innandyra, eða
með skjólgóðum gönguleiðum við
hið nýja hjúkrunarheimili. Með því
skapast grundvöllur fyrir uppbygg-
ingu á lífsgæðakjarna fyrir eldra
fólk, með áherslu á að auðvelda
eldra fólki að nýta sér þjónustu
og aðstöðu sem styður við lífsgæði
þeirra á eigin heimili sem lengst
fram eftir ævinni.“
Við undirbúning tillögunnar
hefur farið fram kynning á þessum
tækifærum fyrir sveitarfélagið
Reykjanesbæ og þróunarfélagið
Kadeco. Báðir aðilar hafa lýst sig
reiðubúna til að vinna að brautar-
gengi áframhaldandi uppbyggingar
komi til þess að nýtt hjúkrunar-
heimili rísi við Keilisbraut. Enda
samræmist slík uppbygging mark-
miðum og framtíðarsýn beggja
aðila fyrir svæðið. Þá passi þessi
framtíðarsýn vel inn í þróunará-
ætlun Kadeco sem nefnist K64.
Kanablokkir fá nýtt hlutverk
Hugmynd Icelandic Home ehf.
byggir á því að endurnýta og sam-
eina tvær eldri byggingar sem nú
eru í fullri útleigu, fyrrverandi
íbúðarblokkir varnarliðsmanna,
og gera á milli þeirra þriggja hæða
viðbyggingu með lyftu- og stiga-
húsi ásamt fleiru sem þarf að vera
til staðar fyrir starfsemi hjúkrunar-
heimilis. Byggingarnar sem voru
upphaflega byggðar á árunum 1951
til 1957 gengu í gegnum mikla end-
urnýjunm á árunum 1996 til 2004,
þar sem gagngerar og viðamiklar
endurbætur áttu sér stað. Fyrir-
hugað er að núverandi húsnæði
fari í gegnum allsherjar endurnýj-
unarferli með umhverfisvænum
áherslum til þess að það uppfylli
Nýtt hjúkrunarheimili á Ásbrú innan tveggja ára?
Hér má sjá dæmigert einkarými 28 m2.
n Gæti orðið gríðarleg lyftistöng fyrir hverfið og haft jákvæð áhrif á framtíðar uppbyggingu þess og þróun.
...Framtíðarsýn okkar er að taka þátt
í þróun og uppbyggingu Ásbrúar
hverfisins. Verði af leigusamningi
um nýtt hjúkrunarheimili í húsnæði
félagsins opnast tækifæri til frekari
þróunar svæðisins......
kröfur um skipulag og húslýsingu
í fylgigögnum markaðskönnunar.
„Við teljum og höfum mikla trú á
því að með tilboði okkar sé komin
raunhæf og hagkvæm lausn og sé
samfélagslega sterk. Eftir 19 ár er
nú er lag að gjörbylta Ásbrú sem er
virkileg þörf á og mun hafa gríðar-
lega jákvæð áhrif á þróun svæð-
isins,“ sögðu þremenningarnir.
Tölvuteikning af hjúkrunarheimili á
Ásbrú þar sem búið er að tengja tvö
fjölbýlishús með viðbyggingu á milli.
Þessi mynd sýnir stóran hluta
svæðisins á teikningunni hér a ð ofan.
Litríkur söngur hjá
Kvennakór Suðurnesja
í innslagi á vf.is
á föstudaginn.
4 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM