Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.05.2025, Qupperneq 13

Víkurfréttir - 14.05.2025, Qupperneq 13
Skjólið fær nýja aðstöðu að Grænásbraut 910 Velferðarráð Reykjanesbæjar leggur til að frístundastarfið Skjólið, sem þjónar fötluðum börnum, flytjist í húsnæði leik- skólans Drekadals að Grænás- braut 910 þegar það losnar sum- arið 2025. Núverandi aðstaða Skjólsins í svokölluðu 88-húsi er orðin of lítil, og fyrirhuguð fjölgun barna í þjónustunni kallar á rýmri húsnæði. Á fundi velferðarráðs 8. maí lagði sviðsstjóri velferðarsviðs til að nýta aðstöðuna sem Drekadalur skilur eftir sig þegar leikskólinn flytur í nýtt húsnæði í sumar. Vilborg Pétursdóttir, teymisstjóri barna- og fjölskylduteymis, sat fundinn og útskýrði þörfina fyrir stækkun. Áætlað er að fimm til átta fötluð börn til viðbótar við þau sem þegar sækja Skjólið þurfi pláss í haust. Þar sem ekki er unnt að fjölga börnum í núverandi húsnæði, er flutningur nauðsynlegur. Húsnæðið að Grænásbraut 910 er í góðu ásigkomulagi og hentar vel fyrir starfsemi Skjólsins. Þar er sérinngangur, afmarkað útisvæði og ekki þörf á miklum aðlögunum til að mæta þörfum barnanna og starfsfólks. Ráðið telur flutninginn hagkvæman og skynsaman kost. Velferðarráð hefur því óskað eftir því við bæjarráð að veita formlega heimild til að Skjólið fái húsnæðið til umráða þegar Drekadalur flytur út í sumar. Styrkjum úr Menningarsjóði Suðurnesjabæjar var formlega úthlutað á sumardaginn fyrsta, þann 24. apríl síðastliðinn. At- höfnin fór fram á Bókasafni Suðurnesjabæjar. Að þessu sinni hlutu sex verkefni styrki fyrir samtals 1.960.000 krónur, en alls bárust níu umsóknir innan umsóknarfrests. Ein um- sókn barst of seint til að koma til greina við úthlutun. Þau sem hlutu styrk í ár voru: • Kristjana Kjartansdóttir og Helga S. Ingimundardóttir – fyrir gerð söguskiltis við Prestvörðu í Leiru. 500.000 kr. • Þekkingasetur Suðurnesja – vegna markaðs- og kynningar- verkefnis tengt Háskólaþjónustu setursins. 250.000 kr. • Bogi Jónsson – fyrir lokafrágang við listaverkið Sólgangur. 150.000 kr. • Byggðasafnið á Garðskaga – fyrir fræðslu um gömlu jólin og jólasiði. 110.000 kr. • Bókasafn Suðurnesjabæjar – fyrir annan áfanga málþings um rithöfundinn Ingibjörgu Sigurðardóttur sem hefði orðið 100 ára í ár. 550.000 kr. • Sigurbjörg Hjálmarsdóttir og Kári Sæbjörn Kárason – fyrir tónlistar- og bókakvöldið Inn með gleði og frið. 400.000 kr. Í reglum sjóðsins kemur fram að hlutverk hans sé að efla menning- arlíf í Suðurnesjabæ með því að styrkja einstaklinga og félagasamtök til virkrar þátttöku í menningarstarfsemi. Sjóðurinn fær árlegt framlag úr fjárhagsáætlun bæjarins og getur auk þess tekið við gjöfum til að styðja menningarverkefni. Styrkjum til sex verkefna úthlutað úr Menningar- sjóði Suðurnesjabæjar Styrkhafar menningarsjóðs Suðurnesjabæjar. Umhverfisdagar Suðurnesjabæjar fara fram dagana 19. til 26. maí og er bæjarbúum boðið að taka virkan þátt í fegrun bæjarins í aðdrag- anda sumarsins. Starfsmenn umhverfismiðstöðvar verða á ferðinni um bæinn og aðstoða við hreinsun og snyrtingu þar sem þörf er á. Eins og síðustu ár er lögð sér- stök áhersla á að bæta nærum- hverfi íbúa og hvetja alla til að taka til hjá sér. Íbúar eru hvattir til að klippa tré, hreinsa beð og raka lauf — og má garðaúrgangur, svo sem greinar og lauf, skilja eftir snyrti- lega í pokum við lóðamörk, þar sem hann verður sóttur af starfs- mönnum bæjarins. Áburður verður borinn á opin svæði á vegum sveitarfélagsins og eru íbúar hvattir til að gera slíkt hið sama á eigin lóðum og huga þannig bæði að fegurð og vellíðan gróðursins. Sú vinna sem íbúar leggja sjálfir í mun nýtast vel þar sem götu- og gangstéttarsópar sveitarfélagsins verða á ferð og sækja upp hrífur og rusl sem látið er liggja utan lóða- marka. Þeir sem vilja losa sig við stærri úrgang eða aðra ruslagáma eru hvattir til að nýta sér móttöku- stöð Kölku í Helguvík. Umhverfisdagar Suðurnesjabæjar haldnir 19.–26. maí ÍBÚAR HVATTIR TIL SAMEIGINLEGS ÁTAKS FYRIR SNYRTILEGRA OG GRÆNNA SAMFÉLAG Störf í boði hjá Reykjanesbæ Upplýsingar um laus störf má finna á reykjanesbaer.is Akurskóli Hönnun og smíði Heiðarskóli Starfsmaður skóla Háaleitisskóli Aðstoðarskólastjóri Starfsfólk skóla Sérkennari Heilsuleikskólinn Heiðarsel Leikskólakennari/starfsmaður í leikskóla Sérkennari Leikskólinn Hjallatún Aðstoðarleikskólastjóri Stapaskjól Forstöðumaður frístundaheimilis Bókasafn Reykjanesbæjar Sumarstarfsmaður Þjónustufulltrúi Velferðarsvið Sumarstarfsmaður í heima-og stuðningsþjónunstu Búsetuúrræði fyrir fatlaða í Aspardal Dagdvalir aldraðra - Sumarstörf AÐALFUNDUR Hviðu fjárfestingarfélags (áður Eignarhaldsfélag Suðurnesja) Aðalfundur Hviðu fjárfestingarfélags verður haldinn mánudaginn 2. júní kl. 16 hjá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbæ. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. Sótt er um rafrænt á vefsíðu Hviðu fjár- festingafélags hvida.is. Á sömu vefsíðu er hægt að skoða fjárfestingastefnu og lánareglur sjóðsins. Einnig má hafa samband við Snjólaugu Jakobsdóttur, framkvæmdastjóra á netfangið snjolaug@hvida.is Hviða fjárfestingafélag Suðurnesja auglýsir eftir umsóknum Umsóknarfrestur er frá 10. apríl - 15. maí Hviða fjárfestingafélag Suðurnesja áður Eignarhaldsfélag Suðurnesja hefur gengið í gegnum nafnabreytingu til að endurspegla betur hlutverk sitt og framtíðarsýn. Nafnið Hviða táknar kraft og hreyfingu – sem minnir á Suðurnesin og möguleikana þar. Við leitum að öflugum fyrirtækjum sem vantar fjármagn. Fyrirtækjum með góðar hugmyndir sem hafa vaxtarmöguleika á Suðurnesjum. hvida@hvida.is hvida.is Skógarbraut 945 Sími 420 3288 Hviða fjárfestingafélag Suðurnesja Sótt er um rafrænt á vefsíðu Hviðu fjár- festingafélags hvida.is. Á sömu vefsíðu er hægt að skoða fjárfestingastefnu og lánareglur sjóðsins. Einnig má hafa samband við Snjólaugu Jakobsdóttur, framkvæmdastjóra á netfangið snjolaug@hvida.is Hviða fjárfestingafélag Suðurnesja auglýsi eftir umsóknum Umsóknarfrestur er frá 10. apríl - 15. maí Hviða fjárfestingafélag Suðurnesja áður Eignarhaldsfélag Suðurnesja hefur gengið í gegnum nafnabreytingu til að endurspegla betur hlutverk sitt og framtíðarsýn. Nafnið Hviða táknar kraft og hreyfingu – sem minnir á Suðurnesin og möguleikana þar. Við leitum að öflugum fyrirtækjum sem vantar fjármagn. Fyrirtækjum með góðar hugmyndir sem hafa vaxtarmöguleika á Suðurnesjum. hvida@hvida.is hvida.is Skógarbraut 945 Sími 420 3288 Hviða fjárfestingafélag Suðurnesja Aprílmánuður var annasamur hjá Brunavörnum Suðurnesja. Alls bárust 295 sjúkraútköll, þar af 86 í hæstu forgangsflokkum (F1 og F2), auk sautján slökkvi- útkalla, þar sem 8 voru í sömu forgangi. Samhliða mikilli út- kallavirkni náðu sex starfsmenn merkum áfanga í menntun og hlutu sérstakar viðurkenningar. Æfing, viðurkenningar og ný réttindi Slökkviliðið stóð á dögunum fyrir umfangsmikilli æfingu sem gekk afar vel. Í kjölfarið var haldin há- tíðleg athöfn þar sem árangri starfsfólksins var fagnað. Tveir starfsmenn luku fram- haldsmenntun frá Sjúkraflutninga- skólanum og bera nú starfsheitið EMT-Advanced. Þeir fengu að gjöf hlustunarpípu frá BS í tilefni þessa árangurs. Þá luku fjórir aðrir starfsmenn námi sem atvinnuslökkviliðsmenn. Þeir hlutu að gjöf Leatherman- hníf merktum starfsmannanúmeri þeirra, tákn um traust og fag- mennsku í starfi. Stöðug þróun og þjálfun Brunavarnir Suðurnesja leggja mikla áherslu á stöðuga þjálfun og menntun starfsfólks síns, sam- hliða því að sinna krefjandi daglegu starfi við öryggi og björgun í sam- félaginu. Frá stofnun hafa slökkvi- liðsmenn og sjúkraflutningateymi verið í fremstu víglínu við áföll, slysa- og eldviðbrögð – og apríl var engin undantekning. Fjöldi útkalla og fag- legur árangur starfs- fólks Brunavarna Suðurnesja í apríl Grænásbraut 910 er húsnæði Keilis, þar sem nú eru bæjarskrifstofur Reykjanesbæjar. VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 13

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.