Víkurfréttir - 14.05.2025, Side 10
Kvennakór Suðurnesja býður til
vortónleika undir yfirskriftinni
Litagleði dagana 19. og 21. maí í
Bíósal Duus safnahúsa í Reykja-
nesbæ. Tónleikarnir eru hluti af
árvissum viðburðum kórsins en
að þessu sinni er þemað tileinkað
fjölbreytileikanum í samfélaginu
– og það með tónlistarvali sem
spannar áratugi, heimsálfur og
geira.
„Við vildum fagna vorinu og
lífinu sjálfu með tónleikum sem
bjóða upp á bæði gleði og dýpt,“
segir Guðrún Karítas Karlsdóttir,
talskona kórsins. „Þetta er litrík
dagskrá, bæði í efnisskrá og fram-
setningu – og við vonum að gestir
fari heim með sól í hjarta.“
Fjölbreytt efnisskrá og litagleði í
orðsins fyllstu merkingu
Á efnisskránni eru vel þekkt dæg-
urlög og poppsmellir á borð við
True Colors eftir Cindy Lauper,
Viva la Vida með Coldplay og
Undir þínum áhrifum með Sálinni
hans Jóns míns. Einnig verður flutt
Only Time eftir Enyu, gospelverk,
indjánasöngur og þjóðlag frá Fil-
ippseyjum.
„Við höfum valið lög sem við
höfum elskað að syngja síðustu 20
ár – og bætt við nokkrum nýjum
sem við vonum að verði vel tekið,“
segir Guðrún Karítas. „Það er eitt-
hvað fyrir alla, og tónlistin á að
höfða til fólks á öllum aldri.“
Kórkonur munu skreyta sig
og salinn í litadýrð sem hæfir
yfirskriftinni – og árstíðinni. „Við
vildum fanga þetta augnablik
vorsins þegar allt lifnar við og
samfélagið vaknar til lífsins eftir
veturinn.“
Tónleikarnir verða leiddir af kór-
stjóranum Dagnýju Þórunni Jóns-
dóttur, með Geirþrúði Fanneyju
Bogadóttur við píanóið. Auk þeirra
taka þátt Þorvaldur Halldórsson
(trommur), Sigurður B. Ólafsson
(gítar), Jón Árni Benediktsson
(bassi) og Ragnheiður Eir Magnús-
dóttir (þverflauta).
Viðburðarríkur vetur að baki
Veturinn 2024–2025 hefur verið
annasamur. Í september tók kórinn
þátt í Ljósanótt með Syngjandi
sveiflu í Duus safnahúsum og í
október hélt kórinn utan til Grikk-
lands þar sem hann keppti á al-
þjóðlegu kóramóti í Kalamata.
Þar hlaut kórinn silfurverðlaun
í tveimur flokkum – fyrir popp,
djass og gospel annars vegar og í
almennum flokki kvennakóra hins
vegar.
„Við vorum ótrúlega stoltar af
frammistöðunni,“ segir Guðrún
Karítas. „Að fá viðurkenningu í al-
þjóðlegu samhengi er góð hvatning
fyrir áframhaldandi starf.“
TÓNLIST, LITADÝRÐ OG SAMFÉLAGSGLEÐI 19. OG 21. MAÍ Í BÍÓSAL DUUS HÚSA
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
GTS tekur við almennings-
samgöngum í Reykjanesbæ
GTS og YES -EU leiða vistvænar samgöngur í Reykjanesbæ
Samþykkt hefur verið í bæjar-
stjórn Reykjanesbæjar að ganga
til samninga við GTS ehf. um að
sinna almenningssamgöngum í
Reykjanesbæ. Tvö tilboð bárust
en GTS ehf. átti hagstæðasta til-
boðið í opnu útboði undir um-
sjón ráðgjafarfyrirtækisins Con-
sensa.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu sem
fékk samninginn segir að verkefnið
felur í sér innleiðingu rafknúinna
vagna sem uppfylla ströngustu
umhverf iskröfur og draga úr
losun gróðurhúsalofttegunda. Með
nýjum rafvögnum stefnir GTS að
því að bæta loftgæði á svæðinu og
lækka rekstrarkostnað.
Markmið GTS er að bæta al-
menningssamgöngur með vist-
vænum lausnum og háþróuðum
rafhlöðukerfum. Þetta mun ekki
aðeins stuðla að bættum loft-
gæðum heldur einnig auka gæði
þjónustunnar fyrir íbúa, eins og
segir í tilkynningunni.
Erlingur Bjarnason hefur verið
ráðinn rekstrarstjóri GTS í Reykja-
nesbæ. Hann er Suðurnesjamaður
með mikla stjórnunarreynslu,
meðal annars frá Varnarliðinu og
Kapalvæðingu.
„Við viljum veita íbúum fyrsta
flokks þjónustu og gera almenn-
ingssamgöngur að raunhæfum
valkosti fyrir alla,“ segir Erlingur.
YES-EU kemur með nýsköpun í
rafvæðingu
YES-EU ehf., íslenskt nýsköpunar-
fyrirtæki, mun setja upp starfs-
stöð í Reykjanesbæ þar sem unnið
verður að viðhaldi rafmagnsrútna
og rafhlöðukerfa. Fyrirtækið leggur
áherslu á innflutning, sölu og þjón-
ustu við rafmagnsrútur og hleðslu-
lausnir.
YES-EU mun leita eftir einstakl-
ingum til að vinna við rafvæðingu
almenningssamgangna. Starfs-
stöðin verður í Reykjanesbæ þar
sem unnið verður við nýsköpunar
í vistvænum lausnum fyrir rútur,
sendibíla og staðbundin rafhlöðu-
kerfi (BESS).
„Við viljum stuðla að grænni
framtíð með tæknilausnum sem
gera samgöngur umhverfisvænni
og hagkvæmari,“ segir Hjalti Sig-
mundsson, framkvæmdastjóri
YES-EU.
Þá segir í tilkynningunni að
þessar nýju vistvænu samgöngu-
lausnir munu bæði auka atvinnu og
styrkja samfélagið í Reykjanesbæ.
Samstarf GTS og YES-EU er mikil-
vægt skref í átt að sjálfbærni og ný-
sköpun á Suðurnesjum.
Meiraprófsbílstjóri óskast í sumar
Aalborg Portland Íslandi ehf (API) hefur starfað hér á landi frá árinu 2000
við innflutning, sölu og dreifingu á hágæðasementi. Félagið rekur tvö 5
þúsund tonna síló fyrir sement í Helguvík í Reykjanesbæ. Bílstjórar félagsins
dreifa sementi á sementssíló viðskiptavina.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Dreifing á sementi til viðskiptavina félagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Meirapróf og reynsla af akstri dráttarbíla með vagn,
góð samskiptahæfni og reglusemi.
• Lyftarapróf.
Kostur ef umsækjandi býr á Suðurnesjum.
Sótt er um starfið á Alfred.is
https://alfred.is/starf/meiraprofsbilstjori-oskast-i-sumar
Litagleði og sól í hjarta á vortónleikum Kvennakórs Suðurnesja
Kórkonur tóku einnig þátt í
Þrett-ándagleði í Reykjanesbæ
í janúar, fóru í æfingabúðir í
Borgarf irði í mars og eru nú
þegar byrjaðar að skipuleggja eitt
stærsta verkefni kórsins til þessa
– Landsmót íslenskra kvennakóra
sem verður haldið í Reykjanesbæ
11.–13. júní 2026. „Við reiknum
með um 500 kórkonum víðs vegar
að af landinu,“ segir Guðrún Kar-
ítas. „Það verður stór stund fyrir
bæinn okkar.“
Vortónleikarnir Litagleði fara
fram í Bíósal Duus safnahúsa
sunnudaginn 19. maí og þriðju-
daginn 21. maí. Miðasala er hafin
á tix.is og frekari upplýsingar má
finna á samfélagsmiðlum Kvenna-
kórs Suðurnesja.
Erlingur Bjarnason er rekstrarstjóri
GTS í Reykjanesbæ.
10 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM