Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.05.2025, Page 16

Víkurfréttir - 14.05.2025, Page 16
Mundi Það sprettur ekki nýtt íþróttafélag úr (gervi)grasi í Suðurnesjabæ! w Tímapantanir í síma 420-0077 og á heimasíðu www.reykjanesoptikk.is Fylgdu okkur á Instagram og Facebook @reykjanesoptikk.is 25% afsláttur af öllu dagana 16. - 23. maí 3ja ára afmælisafsláttur Auka margskipt gler fylgir Zeiss margskiptum glerjum. Panamaskurðurinn Panamaskurðurinn hefur verið mikið í fréttum síðustu vikur eftir að Donald Trump upplýsti heiminn um stórkallalegar fyrir- ætlanir sínar um að taka hann „til baka“ af Panama. Að hans mati var þetta ljómandi hugmynd af því að Bandaríkin jú byggðu hann og ættu hann þá tæknilega ennþá. Einmitt það. Sagan er reyndar aðeins flóknari en það og gríðarlegar fjárfestingar hafa til að mynda verið gerðar síðan Panama tók alfarið við skurð- inum 1999 á grundvelli samninga sem gerðir voru 1977. En það er ekki efni þessa pistils, heldur langar mig að deila þeirri mögnuðu upplifun sem ég fékk þegar ég skoðaði þetta stórkost- lega mannvirki í vinnuferð til Pa- nama í síðustu viku. Og það sem var stórbrotnast var að fræðast um söguna, verkfræðina á bakvið framkvæmdina, framsýnina, stór- hugann og fyrirhyggjuna sem skurðurinn stendur fyrir. Án þess að fara í þá sögu í smá- atriðum þá segja menn að fyrstu hugmyndir um skurðinn hafi komið fram 1513. Framkvæmdir hófust þó ekki af alvöru fyrr en um 1880 og var skurðurinn svo vígður 1914. Hvernig mönnum tókst að hanna og byggja slíkt mannvirki á þeim tíma er algjörlega magnað. Verkfræðin sem þarna liggur að baki stenst enn tímans tönn og eru til að mynda hlerar sem opna og loka fyrir vatnið á milli hólfa enn þeir sömu og þegar skurðurinn var opnaður 1914. Verkfræði með engu interneti, bara með hugviti, bókum og góðum útreikningum. Þarna sá ég litla báta, risaskip og allt þar á milli ferðast um skurðinn. Hólf opnast og lokast, tæmd og fyllt og skipin mjakast áfram í gegn. Það tekur um 11 klukku- tíma að fara í gegn og kostar dá- góðar upphæðir, en á móti kemur að það sparast 21 dagur á siglingu, ótrúlegir fjármunir og eldsneytis- notkun með tilheyrandi mengun og umhverfisáhrifum. Panamabúar eru mjög stoltir af skurðinum sínum og halda sögunni vel til haga. Hann er stór efnahagsleg stoð í hagkerfinu, sem og þeir ótal aðrir atvinnu- vegir sem hann hefur byggt undir. Skurðurinn er mjög aðgengilegur ferðamönnum og er einn mest sótti ferðamannastaður landsins. Þetta minnti mig að því leyti til á Ísland, þar sem okkur hefur giftursamlega tekist að samræma sjálfbæra nýt- ingu náttúruauðlinda okkar með uppbyggingu í ferðaþjónustunni – Bláa lónið verandi skýrt dæmi. Þetta getur nefnilega allt farið svo ljómandi vel saman. Þetta var algjörlega ógleymanleg heimsókn. RAGNHEIÐAR ELÍNAR Leiksvæðið við Drekadal opnað Leiksvæði við leikskólann Drekadal í Innri Njarðvík var vígt í síðustu viku og klipptu leik- skólabörn á borða sem þau höfðu gert í tilefni opnunarinnar. Róbert J. Guðmundsson, formaður umhverfis- og skipulagsráðs sagði frá verkefninu við opnunina en leiksvæðið er opið alla daga eftir kl. 16.30 en mun síðan verða opið fyrir leikskólann þegar hann opnar síðar í sumar. Á leiksvæðinu er stór dreki sem vísar í Drekadal, einnig er kastalinn skip sem vísar í nálægð við sjóinn. Afgirt svæði er fyrir yngstu börn leikskólans, með leik- tæki við hæfi. Aftan við leikskólann er hreyfisvæði, með þrautabraut, hreyfivelli og tjöldum. Forsvarsfólk Reykjanesbæjar tyllti sér á drekann. Tillaga um stofnun nýs sameinaðs íþróttafélags í Suðurnesjabæ var felld á auka aðalfundum beggja aðildarfélaga, Reynis í Sandgerði og Víðis í Garði, sem haldnir voru mánudaginn 12. maí. Í Sandgerði var niðurstaðan afgerandi: Af 168 greiddum at- kvæðum sögðu 29 já, 138 nei og 1 seðill var auður. Í Garði var niðurstaðan naum, en ekki nægilega sterk: Alls greiddu 91 atkvæði. 46 sögðu já, 45 sögðu nei – en samkvæmt reglum þurfti 2/3 samþykki til að tillagan næðist. Það náðist ekki. Með því er ljóst að hvorugt fé- lagið samþykkti tillöguna og því verður ekki af sameiningu félag- anna í nýtt íþróttafélag. Tillaga um nýtt íþróttafélag felld í báðum byggðarkjörnum Suðurnesjabæjar Íbúar í Suðurnesjabæ fjölmenntu á íbúafund sem Heilbrigðisstofnun Suðurnesja efndi til í Sandgerði á þriðjudag til að kynna starfsemi heilsugæslu sem opnar í Vörðunni í Sandgerði í byrjun júní. Heilsu- gæslustöðin verður opin á mánudags- og miðvikudagsmorgnum í sumar en þjónustudögum mun fjölga með haustinu. Í boði verður öll almenn heilsugæsluþjónusta fyrir íbúa Suðurnesjabæjar. Fjölmenntu til HSS

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.