Alþýðublaðið - 19.02.1926, Blaðsíða 1
Gefið út af Al|>ýðuflokknuisa
1926.
Föstudaginn 19. febrúar.
43. tölublað.
Varhugaverðar tölur.
„Morgunblaðið“ í dag tilfærir
vísitölur búreikningaskýrslu Hag-
stofunnar þvi til stuðnings, að
kaup vérkámanna eigi að lækka.
Af því tilefni má geta þess, að
það er með samningi viðurkent
af sanngjörnustu atvinnurekenda-
samtökum landsins, Félagi ís-
lenzkra préntsmiðjueigenda, að sú
vísitala sýni dýrtíðina minni en
hún er í raun og veru, og sam-
kvæmt þeirri viðurkenningu ætti
kaup verkafólks að vera hærra
en það er rfú, eins og áður hefir
verið sýnt og reiknað út hér í
blaðinu. Tölur „Morgunblaðsins“
eru því mjög varhugaverðar,
Frá Fiskiþinginu.
úr alullarefni í stóru úrvali
mjög odýr,
Aðalstræti 9
sunnudaginn 21. n. k. í Bárunni (niðri) kl. 2 e. h.
Mætlð féMfgOI*
Vitamál.
Björgunarmálanefndin hefir haft
til meðferðar ýmsar tillögur, er
samþyktar hafa verið á fjórðungs-
þingum í haust þess efnis, að
reistir verði nýir vitar og gamlir
endurbættir. Enn fremur hefir hún
tekið til athugunar beiðnir um
það, að ljósker verði sett við
Raufarhöfn og á Flateyrartanga
við önundarfjörð, og bréf frá
Skipstjórafélagi Norðlendinga um,
að klukkudufl verði sett á Hellu-
boða viÖ Siglunes.
Nefndin hefir leitað upplýsinga
um þessi efni á skrifstofu vita-
málastjóra og þá einkum um vita
þá, er ætlast er til að reistir verði
á næstu árum. Vitar þeir, er gert
er ráð fyrir að reistir verði í nán-
ustu framtíð, eru Hornviti á
Ströndum, Tjörnesviti, Rauðnúps-
viti á Sléttu og Glettinganessviti
norðan við Seyðisfjörð. Auk þess
mun ákveðið að reisa Dyrhólavit-
arín nú þegar.
Mælir nefndin eindregið með
• því, að vitar þessir verði reistir
hið allra fyrsta.
Frá fjórðungsþingunum liggur
fyrir: Beiðni um, að nýr viti verði
reistur á Seley við Reyðarfjörð,
að nýr smáviti verði reistur á
Ögurhólmum við Isafjarðardjúp.
Enn fremur áskorun um, að ljós-
magn Arnarnessvitans verði auk-
ið, og beiðni frá Austfirðingum
um, að ljósmerkjum Hvanneyjar-
vitans verði breytt. Þá hefir og
komið beiðni frá Austfirðinga-
fjórðungi um, að rannsakað verði,
hvort tiltækilegt rnuni að setja
vita á Hvalbak.
Tillögur nefndarinnar eru svo
hljóðandi: 1. Fiskiþingið skorar
á alþingi, að hlutast til um: a.
Að reistur verði nýr viti á Seley
við Reyðarfjörð. b. Að smáviti
verði reistur á Ögurhólmum við
fsafjarðardjúp. c. Að Arnarness-
vitinn verði aukinn að ljósmagni
svo, að hann lýsi að rninsta kosti
22 sjómílur. d. Að sett verði
klukkudufl á Helluboða við Siglu-
nes .
2. Fiskiþingið skorar á stjórn
Fislufélagsins að hlutast til um
við vitamálastjóra,: a. Að rann-
sakað verði, hvort tiltækilegt muni
að reisa og viðhalda viía á Hvaí-
bak. b. Að athuga, hvort unt muni
að breyta Hvanneyjarvita þanhig,
að hann sýni framvegis grænt ljós
yfir Hvanneyjársker og rauít ljós
yfir Borgeyjarboða.
Nefndin leggur til, að veitt
verði úr sjóði Fiskifélagsins fé
til að koma upp Ijóskerum á
Raufarhöfn og á Flateyri við Ön-
undarfjörð.
Pölitiskan öskupoka
úr vönduðu skinni, hið mesta lista-
verk, fékk Kristján Albertsson á
öskudaginn. Á annari hliðinni var
mynd af Kristjáni, og birtist myndin
í eldsloga brennanda. Geislabaugur
var um höfuð ritstjóranum, og sveif
hann á arnarvængjum. Yfir stóð
letrað: „Eldvígsla" með fagurgræn-
um stöfum. Á hinni hlið pokáns var
fangamark Kr. A. með rauðu letri.
Fylgdi pokanum spjald með áletr-
un: „Kær kveðja frá íhaldsbolsa".