Tímarit SÁÁ - Nov 1977, Page 4

Tímarit SÁÁ - Nov 1977, Page 4
éWtfólk. ef göttfolf^ Þetta er setning, sem fóstri minn, Lilli Berndsen, notaði í tíma og ótíma meðan unnið var að stofnsetningu heimilisins að Ránargötu 6. Alls staðar voru útréttar hendur okkur til hjálpar og allir virtust samhuga um að taka þátt í ævintýrinu. Eg verð að viðurkenna, að ég gerði mér ekki grein fyrir hvað Lilli meinti, fyrr en undirbúningur að stofnun SÁÁ var í algleymingi. Þá fyrst skynjaði ég vellíðanina og gleðina sem fylgir því, að andlegir og veraldlegir kraftar sameinast í eitt til þess að gera það óframkvæman- lega framkvæmanlegt. Mér er ókleift að lýsa, en vona að fleiri en ég hafi lifað þá stórkostlegu tilfinningu sem fylgir slíkum samhug í hita leiksins urðu mér á þau leiðu mistök að gleyma að þakka undir- búningsnefnd að stofnun SÁÁ fyrir góð störf og óeigingirni. Við að líta yfir liðinn tíma sannfærist ég um að sjaldan hefur valist samhent- ari hópur af handahófi en þar. Hver og einn gerði sitt besta til að laða það besta fram úr hinum. Brennandi áhugi Vals Júlíussonar á að hjálpa alkóhólistum yljaði okkur og afsannaði þá kenningu að læknum lærist að líta á sjúklinga sína án tilfinninga. Eyjólfur Jónsson sýndi okkur fram á, að með kurteisi og hlýjum orðum á réttum stað vannst allt miklu betur en ella. Eggert G. Þorsteinsson lagði til mannvisku sína og lagði fast að okkur að taka tillit til allra og sameina alla þá krafta sem áhuga höfðu á málinu. Ewald Berndsen hélt okkur að stað- reyndunum, ómyrkur í máli þegar honum fannst við ekki líta hlutina nógu raunsæjum augum. Pétur Sigurðsson kenndi okkur að ekki er nóg að tala um hlutina, það verður að framkvæma þá líka og það strax. Ég er ekki aðeins þakklátur þessum mönnum fyrir störf þeirra, heldur einnig fyrir að fá tækifæri til þess að vinna með þeim og læra af þeim. En þakklátastur er ég þó þeim þúsundum manna sem lögðu hönd á plóginn og gerðu stofnun SÁÁ að veruleika. Ég á þessu fólki það að þakka að ég lít á allt fólk sem gott fólk og það er það sem gefur lífi mínu gildi í dag. yp

x

Tímarit SÁÁ

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit SÁÁ
https://timarit.is/publication/2068

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.