Tímarit SÁÁ - nov 1977, Side 5

Tímarit SÁÁ - nov 1977, Side 5
»cUöldum sameinuð til starfa« 900 tnanna, stofnfundur~t Skólahljómsveit Kópavogs, undir stjórn Björns Guðjónssonar, lék létt lög meðan menn komu sér fyrir í sætum sínum. Eggert G. Þorsteinsson, alþingismaður, setti fundinn kl. 14. Fyrir hönd undirbúnings- nefndar bauð hann velkominn hinn stóra hóp, sem til fundarins kom, og þakkaði lands- mönnum öllum fyrir góðar undirtektir. Hann ræddi nokkuð aðdraganda að stofnun félags- ins og markmið þess. Umburðarlyr.di, kjarkur, vit, ætti vel við sem einkunnarorð samtak- anna, sagði hann. Áfengið er sá bergrisi, sem ekki verður að velli lagður nema með sam- stilltu átaki. Matthías Bjarnason, heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra, tók næstur til máls. Hann taldi áfengismisnotkun meiri háttar vandamál í þjóðfélaginu. Erfitt væri að finna þá stefnu í aðgerðum í þessum málum, sem allir gætu sætt sig við, en tæki jafnframt stefnumið af vandamálinu. Afskipti ríkisvaldsins ættu að stefna að því að draga úr áfengisneyzlu. Nefndi ráðherrann sem dæmi lög um með- ferð áfengis, stuðning við ýmis bindindissam- tök o. fl. Samt sem áður væri það staðreynd, að of stór hluti tekna ríkisins kæmi af sölu áfengis. Hann sagði, að kannanir hérlendis og erlendis bentu til þess að áfengissjúkling- um fjölgaði, það er því fólki, er ítrekað mis- notaði áfengi svo það hefði áhrif á líkamlega og andlega hehsu og félagslega stöðu. Þar eð aðgerðir hefðu 'frekast beinst að þeim, sem mjög sjúkir voru orðnir, líkamlega og and- lega, væri kannski skiljanlegt að meðferð áfengissjúklinga hefði til þessa verið á vegum geðsjúkrahúsa. Ráðherrann ræddi nokkuð um, hvað gert hefur verið í áfengisvandamál- inu af hálfu ríkisins. Minntist hann meðal annars á þá skipan að fela einum yfirlækni stjórn allra áfengislækninga í landinu, stofn- un Gæzluvistarsjóðs á sínum tíma, sjúkrahús og aðrar stofnanir ríkisins o. fl o. fl. Þá gat ráðherrann um merkilegt starf AA- samtakanna. Hann kvaðst fagna samstarfi AA-manna og stofnana til hjálpar alkóhólist- um og væri vafalaust, að það ætti góðan þátt í árangri meðferðar. Samtök áhugamanna hafa hlutverki að gegna í þjóðfélaginu á mörgum sviðum, sagði ráðherrann. Hann sagðist fagna stofnun SÁÁ og stefnu þess; „Samtök eiga að starfa sjálf en ekki vera þrýstihópar. SÁÁ ætlar að starfa sjálfstætt við hlið heilbrigðisstjórnarinnar.“ Að lokum óskaði ráðherrann samtökunum góðs gengis og bauð þau velkomin til samstarfs við alla aðila, sem að heilbrigðismálum vinna í land- inu. Næst talaði Vilborg Helgadóttir, hjúkrun- arkona. Hún rakti í stórum dráttum sögu áfengismála síðustu áratugi. Almenna áfeng- issölu í upphafi aldarinnar, áfengisbannið og fylgifiska þess, leynivínsölu, brugg og smygl, svo og starf góðtemplara. Hún gat um drykkjumannahæli þeirra að Kumbaravogi á árunum 1940—1947. Hún minntist þess, er Kleppsspítalanum var falin yfirstjórn með- ferðar drykkjusjúkra árið 1949, stofnunar

x

Tímarit SÁÁ

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit SÁÁ
https://timarit.is/publication/2068

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.