Tímarit SÁÁ - Nov 1977, Page 9
það traust, er sér og meðstjórnarmönnum sín-
um væri sýnt; nú væri hins vegar brýnt, að
standa vel og dyggilega að baki stjórnarinn-
ar og veita verkefnum og baráttumálum sam-
takanna öflugan stuðning — án sameiginlegs
allsherjarátaks væri ekki mikils að vænta.
„Höldum sameinuð til starfa“, sagði formað-
ur að lokum.
Fundarstjóri þakkaði undirbúningsnefnd
afburða störf að stofnun samtakanna, svo og
félögum og einstaklingum, er að undirbúningi
hinna tveggja funda hefðu staðið. Þeir hefðu
verið hinir glæsilegustu. — Fundarmönnum
þakkaði hann frjóar, hófsamar umræður og
sagði fundi slitið kl. 16.30. — Blómaskreyting-
ar á fundinum, er voru frá Blómum og ávöxt-
um, voru sendar á heimilið Ris, Brautarholti
22. TAT
Ákureyœrferð
Fljótlega eftir stofnun SÁÁ ákvað fram-
kvæmdastjórnin að haldnir skyldu borgara-
fundir úti á landi til kynningar á starfsemi
SÁÁ. Hinum fyrsta af þessum kyrningar-
fundum var valinn staður á Akureyri, og var
þá haft í huga að um 10% Akureyriiga hafa
gerst stofnfélagar SÁÁ og að mikill áhugi er
á raunhæfum aðgerðum í áfengisvandamál-
inu þar í bæ. Var þeim Hilmari Helgasyni,
formanni SÁÁ, Pétri Sigurðssyni, alþingis-
manni og Steinari Guðmundssyni, skrifstofu-
manni, falið að fara norður laugardaginn 29.
október og sjá um þessa kynningu ásamt norð-
anmönnum. Heppnaðist ferðin öll hið bezta
og er greinilegt að sízt minni meðbyr er með
stefnumálum SÁÁ fyrir norðan en sunnan
heiða. Hér á eftir fara nokkrir punktar úr
ferðinni.
Um morguninn var haldinn blaðamanna-
fundur þar sem Hilmar, Pétur og Steinar sátu
fyrir svörum ásamt norðanmönnunum Þór-
halli Einarssyni, Magnúsi Jónsyni og Gunn-
ari Berg. Kom þar fram eindreginn vilji Ak-
ureyringa og SÁÁ til að opna Leitar- og leið-
beiningarstöð á Akureyri um næstu áramót,
og yrði þaðan einnig unnið að skipulegri
fræðslu í skólum í samráði við skólayfirvöld.
Forstöðumönnum og læknum Kristneshælis
var þökkuð sú aðstaða til afvötnunar sem
þeir hafa látið í té, og mun SÁÁ beita sér
fyrir því að sú aðstaða verði bætt og ætlar
SÁÁ að aðstoða við ráðningu starfsfólks svo
og þjálfun þess. Einnig er áhugi SÁÁ mikill
á að kanna hvort grundvöllur sé fyrir endur-
hæfingaheimili að Laugalandi í Eyjafirði.
í hádeginu var þegið matarboð bæjar-
stjórnar Akureyrar og stefnumál SÁÁ skýrð
fyrir bæjarstjórnarmönnum. Áhugi þeirra
reyndist vera mikill og vill bæjarstjórnin
styðja við bakið á SÁÁ og þeirri starfsemi
sem rekin kann að vera á Akureyri. — SÁÁ
lítur björtum augum á þetta samstarf og
væntir mikils af því, sem og starfsemi við
önnur bæjar- og sveitarfélög.
Klukkan 14 var hinn almenni borgarafund-
ur haldinn í Borgarbíói og sátu hann um 150
manns. Fundarstjóri var Gísli Jónsson,
menntaskólakennari. Ávörp fluttu Hilmar,
Pétur, Steinar, Magnús og Jón Björnsson, fé-
lagsmálastjóri Akureyrar. Ræddu þeir um
hinar ýmsu hliðar sjúkdómsins alkóhólisma
og var gerður mjög góður rómur að máli
þeirra. Síðan bað fundarstjóri um fyrirspurnir
úr sal og tóku margir til máls, þar á meðal
tnaður nokkur, sem líkt og aðrir fyrirspyrj-
endur, var óánægður með að SÁÁ skyldi ekki
hafa vínbann á stefnuskrá sinni, en er álit
SÁÁ á vínbanni hafði verið skýrt fyrir fund-
armönnum, stóð hann upp aftur og kvaðst
hafa fullt leyfi til að skipta um skoðun. Stæði
hann heilshugar með SÁÁ og bann myndi
draga illan dilk á eftir sér. Steinar lýsti yfir
dauða Snepils, er hann hefur gefið út, kvað
hann Snepil hafa lokið hlutverki sínu og væri
hann nú sem hjáróma rödd í eyðimörkinni
miðað við bassarödd SÁÁ. Gísli sleit síðan