Tímarit SÁÁ - nov. 1977, Síða 10
IO
fundinum með afburða góðri ræðu. Fjörutíu
nýir félagar skráðu sig í SÁÁ á fundinunr og
36.000 krónur söfnuðust upp í ferðakostnað.
Síðar um daginn var haldinn viðræðufund-
ur við stjórn Læknafélags Akureyrar. Kom
þar fram sú skoðun læknanna að brýn þörf
sé fyrir afvötnunaraðstöðu á Akureyri og
kváðust þeir vilja skipta með sér störfum við
afvötnunarstöð, til að byrja með eða þar til
einhver þeirra hefði tækifæri til að afla sér
sérþekkingar á málum drykkjusjúkra. SÁÁ
kvaðst reiðubúið til að aðstoða þann lækni
eftir föngum, og standa vonir til að af utan-
förinni gæti orðið fljótlega.
Er heim kom áttu norðanfararnir vart orð
til að lýsa ánægju sinni yfir móttökum og
undirtektum Akureyringa, og er það mikið
gleðiefni hve almennur stuðningur virðist
vera meðal landsmanna við stefnumál SÁÁ.
^Frá ritstjóra
Þetta fyrsta tölublaði af Tímariti SÁÁ sem
nú kemur fyrir almenningssjónir, er einkum
hugsað sem heimild um stofnun félagsins,
ásamt því að kynna stjórn þess og lög
Nafnið á blaðið okkar hefur ekki fundist
ennþá — eða að minnsta kosti ekki nafn sem
við erum nógu ánægð með. Því langar okkur
til að varpa boltanum til ykkar, lesendur góð-
ir, og biðja ykkur um uppástungur að fram-
tíðarnafni á krógann. Líka væri gaman að
heyra frá ykkur um reynslu ykkar af Bakkusi
karlinum, eða eitthvað annað sem þið teljið
áhugavert. Póstfangið okkar er: SÁÁ, Póst-
hólf 822, 121 Reykjavík
Óðalsbændur, Hafsteinn Gilsson, Óiafur Laufdal og- Jón Hjaltason afhenda
Hilmari gjöfina. (Ljósm.: Mbi..)
Itaktvió,
timanri
Fyrir nokkru afhentu Óðalsbændur SÁÁ
stórgjöf á blaðamannafundi. Voru þetta
200.000 krónur, og er Jón Hjaltason afhenti
Hilmari Helgasyni þessa gjöf sagði hann m.a.:
„Við viljum með þessari gjöf sýna, að við
treystum þessum samtökum til að vinna að
áfengismálum á þann hátt sem þarf nú á
dögum. Þetta er að mati eigenda Óðals fyrsti
félagsskapurinn sem gerir tilraun til að vinna
að áfengisvandamálinu í takt við þann tíma
sem við lifum á.“ Hilmar þakkaði þessa höfð-
inglegu gjöf og kvaðst „vita að þetta er ekki
skrum hjá þessum mönnum — ég þekki þá
persónulega — og þeir hafa oft áður sýnt
þessum málum áhuga og veitt ýmsum mönn-
um lið sitt.“ — GJG