Leikskrár Þjóðleikhússins


Leikskrár Þjóðleikhússins - 27.05.1994, Blaðsíða 7

Leikskrár Þjóðleikhússins - 27.05.1994, Blaðsíða 7
bandi þeirra Signýjar og Hundings og krefst þess að honum verði refsað. Óðinn mælir í mót og þau deila heiftarlega. Óðinn leggur áherslu á gildi ástarinnar í lífinu og bendir á að hetjunni Sigmundi sé ætlað að ná hringnum úr klóm Fáfnis án afskipta goð- anna og bjarga þar með þeim sjálfum frá glötun. Frigg segir Óðin hræsnara. Ekki sé nóg meö að hann haldi fram hjá henni heldur vilji hann rjúfa þau lögmál sem hann hafi sett hana, Frigg, til að gæta í mann- heimum. Hlutverk Sigmundar sé dæmt til að mistakast jiví Óðinn hafi þegar haft afskipti af honum með því fá honum sverðið og hún krefst þess að jiaö verði tekið af honum. Hún heimtar að Óðinn kalli á Brynhildi og taki aftur skipun sína um stuðning við hann. Frigg krefst þess að Sigmundur láti lífið í einvíginu svo heiður hennar sem gyðju hjóna- bandsins verði tryggður og Óðinn neyðist til að heita þvi. Fullur beiskju kallar hann á Brynhildi og í löngu samtali rekur hann sögu hringsins og trúir henni fyrir ráðagerðum sínum, innstu hugrenningum og áhyggjum. Óðinn rekur fyrir Brynhildi hvernig valkyrjur og einherjar muni verja Asgarð, en það muni þó lílt duga nái Niflungar aftur valdi á hring- num. Hringurinn sé nú í gæslu Fáfnis, en vegna samninga sinna við hann geti Óðinn ekki beitt sér fyrir að ná hringnum frá honum. Aðeins mannleg hetja, án afskipta annarra, geti náð hringnum og kveðst Óðinn hafa ætlað Sigmundi það hlutverk. Hann hafi ætlaö Sigmundi sverðið Gram, en Frigg hafi séð í gegnum þá blekkingu og hann neyðist nú til að láta að vilja hennar. Allt hafi því verið til einskis, Sigmundur verði að láta lífið og bölvun gullsins hvíli á honum. Óðinn segir öllu vera lokiö og að hann óski sér aðeins eins, endalokanna. Loks skipar Óðinn 9 Siegmund! Sieh auf mich! (Briinnhilde). Brynhildi að fara og framfylgja ósk Friggjar, nú sé það einnig sinn vilji að Sigmundur láti lífið. Brynhiklur reynir árangurslaust að telja Óðni hughvarf áður en hún heldur af stað. Nú víkur sögunni aftur til Sigmundar og Sig- nýjar, sem eru á flótta undan Hundingi og mönnum hans. Signý er örmagna og full örvæntingar, en Sigmundur sefar hana og biður hana að hvílast. Um síðir líður Signý út af í örmum hans. Brynhildur birtist Sigmundi og boðar honum feigð.9 Hún tjáir honum að hann eigi brátt að fyigja sér til Valhallar. Sigmundur spyr þá hvort Signý fái að fylgja honum, en Brynhildur svarar því neitancli. Sigmundur biður þá fyrir kveðju til Valhallar og segist ekki munu fyigja Brynhilcli þangað. Brynhildur segir að þessu ráði Sigmundur ekki, þegar sé ákveðið að hann falli í bardaganum við Hunding. Sigmundur kveðst ekki hræðast hann því sverðið Gramur, sem faðir hans sencii honum, muni vel duga. Brynhildur segir að sá hinn sami hafi nú svipt sverðið mætti sínum. Sigmundur lætur gott heita að hann deyi, en til Valhallar fari hann ekki, heldur fylgi hann systur sinni og brúði til Heljar. Staðfesta Sigmundar og fölskvalaus ást hans á Signýju snertir Brynhilcli cljúpt. Hún reynir þó að telja honum hughvarf og lofar að gæta Signýjar. Sigmundur vísar orðum Brynhildar á bug, tekur sverð sitt og ætlar að ctrepa Signýju og sjálfan sig svo þau megi fylgjast að til Heljar. Við þetta snýst Brynhilcli hugur og hún lofar að styðja Sigmund í þeim bardaga sem bíður hans. Hundingur kemur. Þeir Sigmundur berjast og veitir Brynhildur Sigmundi fulltingi sitt, en þá birtist Óöinn æfareiður og brýtur sverð Sig- niundar með spjóti sínu. Sigmundur verður 7

x

Leikskrár Þjóðleikhússins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Leikskrár Þjóðleikhússins
https://timarit.is/publication/2016

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.