Leikskrár Þjóðleikhússins


Leikskrár Þjóðleikhússins - 27.05.1994, Blaðsíða 8

Leikskrár Þjóðleikhússins - 27.05.1994, Blaðsíða 8
Hundingi þá auðveld liráð og hann fellur. Bryn- hildur laumast á brott með Signýju og hefur með sér sverðsbrotin. Oðinn, yfirkominn af sorg og reiði, sér Hunding standa sigri hrósandi yfir líki Sigmundar. Með einni bendingu fellir Óðinn Hunding og segir honum að hunskast til Friggjar. Hann svipast um eftir Brynhildi og heitir því að refsa henni grimmilega. 3■ þáttur. Á HindarJjalli Valkyrjur koma til fundar og reiða fallna kappa.10 Þær glettast yfir hestum sínum og þeim hetjum, sem falliö hafa. Um það bil sem þær búa ferð sína til Valhallar kemur Brynhildur þeys- andi. Sér til mikillar furðu sjá þær aö hún reiöir konu í söðli sinum. Brynhildur segir Valkyrjum sögu sína. Hún biöur þær að forða sér undan reiði Óðins og hjálpa sér viö að koma Signýju undan en þær hika. Signý kveðst vilja deyja en Bryn- hildur tjáir henni þá að hún beri barn þeirra Sigmundar undir belti. Hún skuli því strax halda á brott og fela sig á Gnitaheiöi þar sem ormurinn hvílir því J^ar sé hún óhult fyrir Óðni. Brynhildur biður Signýju að varðveita brotin úr sverðinu Gram handa syni sínum, sem hún skuli kalla Sigurð, en sjálf bíður hún komu Óðins. Óðinn birtist þykkjuþungur og spyr eftir Brynhildi. Valkyrjurnar freista þess að sefa reiði Óðins, en hann fyrirbýður þeim öll afskipti. Óðinn kveðst hafa trúað Brynhildi fyrir hugrenningum sínum, en hún hafi 10 Forspii 3- þáttar Valkyrjunnar; „valkyrjureiðin”. 11 War es so schmáhlich (Briinnhilde). 1 2 l.eb’ wohl, du kúhnes, herrliches Kind (Wotan). svikiö sig. Brynhilclur gengtir fram fyrir skjöldu og býður Óðni að clæma sig. Hann segir að hún clæmi sig sjálf með óhlýðni sinni; áður hafi hún verið sér kærust, en nú muni hann útskúfa henni úr heimi goða og gera hana að mennskri konu. Óðinn kveðst munu svæfa hana löngum svefni og muni hún ekki vakna fyrr en mennskur maður veki hana og eigi hann að fá hennar. Val- kyrjur biðja Brynhildi miskunnar, en Óðinn rekur þær á braut með harðri hencli. Brynhildur spyr hvort gjörð sín hafi verið svo smánarleg; hún hafi aðeins framkvæmt hans innstu ósk.* 11 Hún lýsir því hvernig ást Sigmundar hafi brætt hjarta sitt en Óðinn svarar að hjarta hans sjálfs hafi brostiö er hann ákvað að fórna honum. Með óhlýðni sinni hafi Brynhildur leyft sér þann munað aö láta stjórnast af tilfinningum sínum. Þetta brot skuli hún nú gjalda dýru veröi. Brynhildur óttast að hvaða heigull sem er muni geta vakið sig og hún biður Óðin að búa svo um hnúta að aðeins óttalaus hetja geti komist að sér. Fyrir þrábeiðni Brynhilclar lofar Óðinn að um- girða hana vafurloga, sem aðeins hin mesta hetja fái sigrast á. Yfirkominn af harmi kveður Óðinn loks Brynhildi og svæfir meö kossi.12 Við svo búið kallar hann á Loka og býður honum að kveikja vafurlogann, sem skuli umlykja Brynhilcli sofandi á Hindarfjalli, og mælir svo um að aðeins sá, sem ekki hræöist spjót hans, skuli fá sigrast á loganum. 8

x

Leikskrár Þjóðleikhússins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Leikskrár Þjóðleikhússins
https://timarit.is/publication/2016

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.