Leikskrár Þjóðleikhússins - 05.01.1996, Qupperneq 12
Margrét Guðmundsdóttir (Ida)
lauk námi frá Leiklistarskóla Þjóðleikhússins 1953 og hefur
starfað hér samfellt síðan eða á fimmta áratug. Illutverk Idu
mun vera hundraðasta hlutverk hennar í Þjóðleikhúsinu.
Margrét er í hópi okkar fremstu leikkvenna og verða hér
aðeins nefnd örfá af öllum þeim hlutverkum, sem hún
hefur gert minnisstæð á ferli sínum. Hún kom fyrst fram í
hlutverki Lísu, konu Litla-Kláusar í Litli Kláus og Stóri-
Kláus og hefur leikið í fjölmörgum barnasýningum
leikhússins, m.a. Dórotheu í Galdrakarlinum í Oz, Möllu
mús í Ferðinni til Limbó, mömmu Emils í Emil I Kattholti
og eitt hlutverkanna í Næturgalanum, sem sýndur var um
allt land. Hún lék Isabelle í Stefnumótinu í Senlis,
Tsehang-IIaiting í Krítarhringnum, Gharlotte Corday í
Marat/ Sade, Dísu í Galdra-Lofti, Maríu í Þrettándakvöldi,
Blumu og Ghövu í Fiðlaranum á þakinu, Sólveigu í Pétri
Gaut, Teresu í Gísl, titilhlutverkið í Lysiströtu, Stellu
Kowalski í Sporvagninum Girnd, Sén Te í Góðus sálinni í
Sesúan, annað aðalhlutverkið, Doris í A sama tíma að ári,
Lindu í Sölumaður deyr og Elísabetu drottningu í Ríkharði
þriðja. Á síðustu árum hefur hún m.a. leikið Kristínu í
Hafinu, Frú Einsford-Hill í My Fair Lady, Stóra dverg í
Skilaboðaskjóðunni og Kristínu koppaþeyti í Gauragangi.
Margrét átti um árabil sæti í þjóðleikhúsráði sem fulltrúi
Félags íslenskra leikara.
10