Vonin


Vonin - 28.08.2025, Síða 4

Vonin - 28.08.2025, Síða 4
Kæru lesendur, Ég heiti Naima og það er mér sönn ánægja að ég fái að ávarpa ykkur í fyrsta sinn sem ritstjóri Viljans. Þessi útgáfa er sérstaklega tileinkuð þér sem ert að stíga fyrstu skrefin í átt að þessum frábæru árum sem nemandi í VERZLUNARSKÓLA ÍSLANDS LFG. Að sitja sem ritstjóri Viljans hefur verið svo skemmtilegt hingað til, ég hef kynnst frábærum hópi af yndislegum einstaklingum og fengið þann heiður að vinna með þeim að fyrsta blaði Viljans, Voninni. Við höfum stungið höfðum saman og gefið okkur tíma til að skapa efni sem við vonum að verði þér bæði gagnlegt og skemmtilegt. Hér finnur þú góð ráð, æskileg orð, létt grín og mögulega framtíðar nefndina þína, allt skapað og skrifað af fólki sem hefur verið í þínum sporum. Prófaðu allt sem þú getur og ekki taka þér of alvarlega, það er enginn að pæla í því sem þú gerir því það er í raun ekkert rétt og rangt við þessa skemmtiferð sem þú mótar, þú munt ábyggilega týnast á leiðinni en átt eflaust eftir að finna þinn stað, þinn hóp og þinn takt. Og við vonum að Vonin geti verið þér smá ljós í þeirri byrjun. Njótið lestursins elsku nýnemar. Kær kveðja, Naima Emilía Emilsdóttir, Ritstýra Viljans. ÁVARP RITSTÝRU ODDUR HILDUR TÍM I NAIMA BIRNA DAVÍD GERDA NATAL ÍA

x

Vonin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vonin
https://timarit.is/publication/2078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.